Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 4
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SJÁVARÚTVEGUR „Að sjálfsögðu er
þetta ástand í Rússlandi ekki ósvip-
að og var hér á Íslandi í október 2008
og þetta hefur verið og verður áfram
gríðarlega mikilvægur markaður
fyrir okkur,“ segir Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri sjávarútvegs-
fyrirtækisins Samherja.
Efnahagsástandið í Rússlandi
hefur haft áhrif á útflutning Sam-
herja á sjávarafurðum til landsins.
Eins og kom fram í Fréttablaðinu
síðasta miðvikudag þá hafa stórir
fiskútflytjendur stöðvað útflutning
sinn til Rússlands í kjölfar falls rúbl-
unnar. Fyrirtæki þar í landi skulda
íslenskum útflytjendum á bilinu þrjá
til fimm milljarða króna fyrir upp-
sjávarfisk sem þau hafa þegar fengið
afhentan.
Samherji sendi að sögn Þorsteins
flutningaskip til Rússlands fyrir um
tíu dögum, sem er væntanlegt þang-
að í byrjun næstu viku. Spurður
hvort hann sé vongóður um að fyrir-
tækið fái útistandandi skuldir greidd-
ar, segir Þorsteinn:
„Við erum, öll þessi fyrirtæki, í
þessari stöðu og þetta er erfitt. En
eins og ég segi þá erum við með
flutningaskip sem kemur til Rúss-
lands í næstu viku. Það er hins vegar
minna magn en áætlanir gera ráð
fyrir og þetta gengur allt hægar […]
Aðstæður eru mjög erfiðar þarna,
því er ekki að neita.“
Þorsteinn segir fyrirtækið eiga
„töluvert“ af fiskbirgðum sem selja
á inn á Rússlandsmarkað. - hg
Forstjóri Samherja segir fyrirtækið eiga töluvert af fiskbirgðum sem selja á inn á Rússlandsmarkað:
Líkir ástandinu í Rússlandi við hrunið hér
FORSTJÓRINN Þorsteinn Már Baldvins-
son segir starfsmenn Samherja hafa
farið til Rússlands í síðustu viku til að
ræða við viðskiptavini fyrirtækisins og
fylgjast með ástandinu þar í landi.
SAMGÖNGUR Nýjar reglur um
ferðaþjónustu fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu hafa sætt mikilli
gagnrýni. Fatlaðir vilja meina að
reglurnar, sem taka eiga gildi 1.
janúar næstkomandi, gangi gegn
sáttmála Sameinuðu þjóðanna um
ferlimál einstaklinga.
Reglurnar eru á þá leið að fatl-
aðir sem nýta sér ferðaþjónustu
fatlaðra greiða 175 krónur fyrir
hverja ferð upp að sextíu ferð-
um á mánuði. Fyrir ferðir 61-80
greiða fatlaðir 1.100 krónur fyrir
hverja ferð. 80 ferðir á mánuði er
hámarksfjöldi ferða á mánuði og
þurfa því fatlaðir sem fara upp að
því marki að bíða til næstu mán-
aðamóta til að geta nýtt sér þjón-
ustuna aftur.
Orðrétt segir að „fjöldi ferða í
heild skal ekki fara yfir 60 ferð-
ir á mánuði. Þjónustumiðstöðvum
er þó heimilt að veita fleiri ferð-
ir til þeirra notenda sem eru, auk
þess að stunda vinnu eða skóla, í
mikilli virkni, svo sem íþróttum
eða skipulögðu félagsstarfi. Um
er að ræða að hámarki 20 ferðir
og getur því hámark ferða aldrei
verið hærra en 80 ferðir á mán-
uði.“ Þessar reglur munu taka gildi
í öllum stóru sveitarfélögunum á
höfuðborgarsvæðinu utan Kópa-
vogs.
Bergur Þorri Benjamínsson,
málefnafulltrúi Sjálfsbjargar,
gagnrýnir þessa tilhögun harð-
lega. „Mér finnst þetta ekki boð-
legt. Gjaldskráin er þannig sett
upp að ferðir eru niðurgreiddar
upp að vissu marki. Það að hækka
gjaldið svona gríðarlega fyrir síð-
ustu tuttugu ferðir mánaðarins er
aðeins til þess að ná peningunum
til baka af okkur, Það að hækka
gjaldið úr 175 krónur í 1.100 krón-
ur á einu bretti
er of bratt að
okkar mati ,“
segir Bergur.
A ndri Va l -
geirsson
háskólanemi er
einn þeirra sem
nýtir sér ferða-
þjónustu fatl-
aðra í hverjum
mánuði og er
hann einn þeirra sem notar fleiri
en áttatíu ferðir á mánuði. „Þessar
reglur koma mér alveg hrikalega
illa. Hver ferð í skólann er í raun
tvær ferðir, að heiman og heim
aftur. síðan bætast ofan á ferðir
í sjúkraþjálfun
og annað. Það er
því alveg klárt
að ég mun áfram
þurfa að nýta
mér fleiri ferðir
en 80 í mánuði,“
segir Andri.
Ha n n þa rf
því að velja og
hafna ferðum
eftir áramót. „Það segir sig sjálft
að ég þarf á næsta ári að velja og
hafna ferðum sem setur mig í erf-
iða stöðu. Ég hef verið að velta
þessu fyrir mér síðustu dagana
og tel þetta vera hreina mismun-
un. Almenningssamgöngur fyrir
fullfrískt fólk bera ekki hámarks-
ferðir. Af hverju ætti að vera þak
á fjölda ferða fyrir okkur fatlaða?“
Bergur Þorri segir engin rök
sem styðja það að sett sé þak
á heildarfjölda ferða fatlaðra.
„Meðal fjöldi ferða þeirra sem nota
þjónustuna eru í kringum 20 ferð-
ir. Örfáir einstaklingar fara yfir
áttatíu ferðir. Þegar fatlaðir eru
hvort sem er rukkaðir upp í topp,
þá skil ég ekki þessa hugmynd um
að setja þak á ferðirnar okkar. Það
á að gefa fötluðum rétt á að ferðast
á þann hátt sem það vill þegar það
vill. Með því að setja þak á fjölda
ferða er verið að gefa sáttmálanum
langt nef.“ sveinn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
166 færri hjónavígslur voru á Íslandi árið 2011
en fjörutíu árum fyrr, árið 1971.
Árið 1971 voru hjónavígslurnar 1.624
talsins en árið 2011 hafði þeim
fækkað niður í 1.458.
Nýjar reglur ferðaþjónustu
fatlaðra skerða ferðafrelsið
Fatlaðir einstaklingar gagnrýna nýjar verklagsreglur við ferðaþjónustu fatlaðra. Ákvæði um hámarksferðir í
mánuði mismuna fötluðum að þeirra mati. Eftir áttatíu ferðir í mánuði þarf fatlaður að bíða til mánaðamóta.
ÁRÉTTING
Vegna fréttar um rannsóknir á and-
legum vanda barna á Norðurlöndum
í helgarblaði Fréttablaðsins er áréttað
að íslensk börn glíma ekki við minni
andlegan vanda en börn í hinum
Norðurlöndunum. Hann er bara ekki
eins sterkt tengdur við fjárhagslega
erfiðleika foreldranna.
Vordís Eiríksdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
STÍF NA-ÁTT Á LANDINU Í DAG og snjókoma eða él á N-helmingi landsins. Á
morgun verður öllu skaplegra veður, hægari vindur en það fer kólnandi. Bjartviðri
verður um S-vert landið í dag og á morgun. Frost 1-15 stig á aðfangadag og hægviðri.
0°
16
m/s
1°
14
m/s
0°
8
m/s
0°
9
m/s
NA-læg
5-13 m/s
Fremur
hæg aust-
l æg eða
breytileg
átt.
Gildistími korta er um hádegi
6°
23°
1°
11°
17°
2°
8°
8°
8°
22°
13°
17°
16°
11°
7°
10°
9°
9°
-2°
8
m/s
1°
13
m/s
1°
10
m/s
1°
9
m/s
-1°
8
m/s
0°
10
m/s
-7°
7
m/s
-5°
-5°
-2°
-3°
-7°
-11°
-4°
-6°
-6°
-8°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
AÐFANGADAGUR
Á MORGUN
ANDRI
VALGEIRSSON
BERGUR ÞORRI
BENJAMÍNSSON
FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐRA Hámarksfjöldi er settur á ferðir fatlaðra í hverjum mánuði. Fatlaðir telja það fela í sér mismunun.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Sundhallarlaug samþykkt
Byggingarfulltrúi hefur gefið út leyfi
fyrir nýrri 25 metra útisundlaug ásamt
heitum pottum, rennibraut, vaðlaug og
viðbyggingu við Sundhöll Reykjavíkur á
Barónsstíg.
ÁSTRALÍA, AP Mersane Warria, 37
ára gömul kona, hefur verið ákærð
fyrir að myrða átta börn, fjóra
drengi og jafnmargar stúlkur. Sjö
voru hennar eigin, en ein frænka
hennar. Warria var birt stefnan
á sjúkrahúsi þar sem hún liggur
vegna stungusára.
Tvítugur sonur konunnar
hringdi á lögreglu eftir að hann
kom heim og sá særða móður sína.
Lögregla fann svo börnin, sem
voru tveggja til fjórtán ára, látin á
staðnum. Dánarorsök þeirra hefur
ekki verið gefin út en talið er að
hluti hafi látist af stungusárum en
önnur vegna súrefnisskorts. - jóe
Móðir sjö af átta ákærð:
Ákært vegna
barnamorðs
LÖGREGLAN Ekki hefur verið gefið upp
hvert banamein barnanna var.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP