Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 22
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 22
TAÍLAND, AP „Við vorum að klára
síðustu tökuna þegar sólin tók að
rísa,“ skrifar taílenska sjónvarps-
fréttakonan Tassanee Veijpongsa.
Hún kom ásamt tökumanni sínum
til Phuket daginn eftir að flóð-
bylgjan mikla skall á ströndinni
þar.
„Þetta hafði verið löng nótt
fréttaflutnings frá því sem virtist
ætla að verða ótrúlegar náttúru-
hamfarir víða í löndum Suður-
Asíu. Einn dagur var liðinn frá
því flóðbylgjan mikla lagði í rúst
hina frægu ferðamannastaði á
ströndinni við Phuket, þegar við
fengur fregnir af hinum rólega
strandbæ Khao Lak stuttu norðar.
Þegar bifreiðin ók niður í átt-
ina að Khao Lak starði ég út um
gluggann á víðáttumikla strand-
lengjuna. Venjulega er þessi
draumkennda strönd þakin hvít-
um sandi og slútandi kókostrjám.
Nú var hún stráð marglitu braki
og eyðileggingu svo langt sem
augað eygði. En hve þetta er lit-
ríkur glundroði, hugsaði ég með
mér.
Bílstjórinn okkar hægði á bif-
reiðinni og virtist vera að átta
sig á því, rétt eins og ég, að þessi
litur var hvorki rusl né rústir,
heldur lík af fólki. Lík af ferða-
mönnum, sveipuð skrautlegum lit-
klæðum sem fólk klæðist gjarn-
an í strandfríum. Bjartir gulir
litir og djúprauðir, sundföt og sól-
klæðnaður.
Þögnin var yfirþyrmandi.
Engin önnur lifandi vera var
neins staðar nálæg.
Þessi sjón, og þetta skelfingar-
augnablik þegar ég áttaði mig
á umfangi hamfaranna, hefur
aldrei horfið úr huga mér.“
Hamfarirnar miklu áratug síðar
Flóðbylgjan mikla í Indlandshafi varð 230 þúsund manns að bana á annan dag jóla árið 2004. Áratugur er liðinn en hamfarirnar eru enn
greyptar í huga þeirra sem upplifðu þær. Sjónvarpsfréttakona kom á vettvang í Phuket daginn eftir, þegar dauðinn var enn allsráðandi.
LIFÐU AF HAMFARIRNAR Í Banda Aceh á Indónesíu, þar sem eyðileggingin varð
einna mest, búa hjónin Rusli Abdul Rahman og Fardhiah ásamt syni sínum. Þau
voru nágrannar en misstu bæði maka sína og átta börn, sem sjá má á myndunum.
NORDICPHOTOS/AFP
Á STRÖNDINNI VIÐ KHAO LAK Kusol Wetchakul fer með bænir sínar þann 29. desember árið 2004 í minningu systur sinnar, sem var ein þeirra sem létu lífið í hamförunum þremur dögum fyrr. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
AUÐ STRÖNDIN Á vesturströnd
Aceh-héraðs í Indónesíu hefur eng-
inn þorað að byggja eftir hamfar-
irnar 2004. Þarna var á sínum tíma
lífleg byggð iðandi af fólki.
On December 26, 2004,
a 9.2-magnitude earthquake off
the coast of northern Sumatra,
Indonesia, unleashed a tsunami
across the Indian Ocean that
killed more than 230,000 people
in fourteen countries and left
some 1.7 million homeless
Sources: USGS, NASA, A Flying start, Then a Slow Slip by Roger Bilham
*Deaths include missing
CASUALTIES Deaths*
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
Indonesia
Sri Lanka
India
Thailand
Somalia
Myanmar
Maldives
Malaysia
Tanzania
Seychelles
Bangladesh
South Africa
Kenya
Madagascar
Total
Estimated cost: $7.5 billion
167,736
35,322
18,045
8,212
289
500
108
75
13
3
2
2
1
> 200
~230,000
Displaced
500,000+
516,150
647,599
7,000
5,000
3,200
15,000+
n/a
200
n/a
n/a
n/a
n/a
1,000
~1,690,000
I N D I A N
O C E A N
1
2
3 4
5
6
7
8
9
12
13
14
11
10
Dec 26, 2004,
00:58:53GMT:
Epicentre of
earthquake
Countries where
deaths ocurred
Hours after
initial event
5
1
10
Earthquake lasted up to 10 minutes –
longest duration of faulting ever observed
Believed to have shortened Earth’s days by
6.8 microseconds and shifted its axis by about 7cm
Released energy equivalent to
23,000 Hiroshima bombs
Magnitude:
9.2M megathrust
earthquake was
third largest
on record
TSUNAMI WARNING SYSTEM
Prompted by 2004 disaster,
was put in place in Indian
Ocean in 2006
Pressure sensors on ocean
floor detect anomalous
behaviour in water
column and send
information to
surface buoys,
which then relay
data, via satellite, to
onshore control centres
INDIA PLATE Fault slip: 30km below sea floor, 1,200km stretch
of India Plate was thrust up to 20 metres beneath
Burma Plate, raising sea floor by several metres
B U R M A P L A T E
Tsunami: Rise of sea floor displaced around
30 cubic kilometres of water, unleashing series
of deadly waves up to 30 metres high
Sunda Trench
620 miles
1,000km
© GRAPHIC NEWS
Þann 26. desember árið 2004 varð
9,2 stiga jarðskjálfti út af strönd
norðanverðrar Súmötru, stærstu
eyju Indónesíu. Skjálftinn hratt af
stað gríðarmikilli flóðbylgju út yfir
Indlandshaf sem b st til fjórtán
landa og k staði meira en 230
þúsund man s lífið. Sau ján
hundruð ma ns misstu heimili sín.
Heimildir: , , Flying start, Then a lo lip e.
**Með dánum eru talin þau
sem enn er saknað
Manntjón Dánir
ó í
l nd
aíland
ó í
janmar
í ueyjar
sía
s í
-eyjar
s
uður- f ík
ía
k
Alls
Fjárhags jón metið á 950 m lljarða króna
.
.
.
.
.
Heimilislausir
.
.
.
.
.
.
.
. .
I N D L A N D S -
H A F
26 Des, 2004,
klukkan 00:58:53
að íslenskum tíma
Upptök
jarðskjálftans
Lönd, þar sem
manntjón varð
Klukkustundir
eftir upphaf
skjálftans
J ðskjálftinn stóð yfir í allt að tíu mínútur
- l ngur en dæmi eru þekkt um
Ta ð hafa stytt daginn um 6,8 míkrósekúndur og
fært jarðmöndulinn um 7 sentimetra
Orkan sem l ystist úr læðingi jafnast á við
23. 00 Híroshima-sprengjur
Stærð:
Skjálftinn mældist
9,2M , sá þriðji
stærsti sem vitað
er um
FLÓðBYLGJUVIðVÖRUN
Viðvörunarkerfi var komið upp
í Indlandshafi árið 2006 í kjölfar
hamfaranna 2004.
Þ ý tinemar á hafsbotni nema
afbrigðil gar hreyfingar hafinu
og senda boð upp í
ba jur á yfirborði
hafsins. Þaðan eru
upplýsingarnar
sendar áfram í
gegnum gervihnet i til
eftirlitsstöðva á landi
DL NDSFLEKINN Risaflóðbylgja: Ris haf botnsins ýtir af stað um það
bil 30 rúmkílómetrum af sjó. Ölduhæðin varð all
að 30 metrar.
B Ú R M A F L E K I N N
Risaflóðbylgja: Ris hafsbotn ins ýtir f stað um það
bil 30 rúmkílómetrum af sjó. Ölduhæðin
varð llt að 30 metrar.
ÚNDAHRYGGUIRINN
.
ÁRATUGUR LIÐINN