Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 22. desember 2014 | SKOÐUN | 31 Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Jólaguðspjallið er saga um ljós og myrkur. Þar sjáum við vald og valdaleysi, fátækt og ríki- dæmi, styrk og veikleika. Allt fólkið í heiminum er þar and- spænis einu litlu barni. Þetta er saga um mátt hins veika og magnleysi hins sterka. Þetta er saga um lögmálin í lífinu. Er hún sönn? Að sjálfsögðu. „Gerðist“ hún? Það vitum við ekki. En sönn er hún. En það bar til um þessar mundir … Strax í upphafi erum við minnt á umsvif hins sterka sem bitna á þeim veiku. Við erum stödd í sjálfu heimsveldinu, Rómaveldi, og Ágústus keisari, valdamesti karl í víðri veröld, sendir „boð“ um að skrásetja alla heims- byggðina – hvorki meira né minna – til þess að geta lagt skatt á hvert einasta vinnandi mannsbarn, til að fjármagna eigið gjálífi. Við fáum þannig strax fram hið ýtrasta verald- lega vald og sjáum hvernig það ráðskast með þær manneskjur sem undir því hafa lent. Jósep og María eru án jarð- næðis, ógift og án atvinnu. Þau eiga ekkert, varla einu sinni barnið sem María ber undir belti því að þetta barn er Mannsson- urinn og tilheyrir öllum. Þau eru mannkynið, förufólk; hver sem er; fólk sem við sjáum enn á ferð um Jörðina í leit að staðfestu og viðurværi og er illa tekið af mörgum og vel af öðrum, allt eftir því hvort fólk hefur tamið sér að hafa kærleikann að leiðar- ljósi eður ei. Jólaguðspjallið er mýta. Og mýtur hafa fylgt mannkyni frá fyrstu tíð og eiga eftir að gera það til hins efsta dags. Þær eru einn farvegur mannlegrar hugs- unar og skynjunar á heiminum og lögmálum hans – og sínum stað í sköpunarverkinu. Þær glíma við tilvistarlegar spurn- ingar sem leita á mennina frá því að sjálfsvitund einstak- lingsins vaknar. Þess vegna er ekki kannski aðalatriði þess- arar sögu hvort hún hafi gerst þessu árinu fyrr eða síðar, hér eða þar, með hinum eða þessum nöfnum. Einblínum við á leit að sögulegri staðfestingu þessara sagna og almennt um líf og störf Jesú á Jörðu hér er hætt við að okkur yfirsjáist það erindi sem þessar sögur eiga við okkur og geyma í senn einfalda og skýra kröfu um rétta breytni gagnvart þeim sem á vegi okkar verða og dæmisögur sem eru merkilega opnar fyrir túlkun og vangavelt- um, og snúast oftar en ekki um þversagnir tilverunnar, án auð- keyptra lausna. Guð býr í gróandanum, amma Jólaguðspjallið er um endur- nýjunarmátt lífsins; það er um ófætt vor sem býr í kvistum. Það er um endurkomu sólarinnar. Það er um sigur hins veika og þjáða. Það er um eilíft líf. Það er um lamb heimsins sem mun koma og bera burt syndir heims- ins. Það er um Góða hirðinn. Það er um óskiljanlega huggun. Þetta er einföld saga um fátækt og vegalaust fólk á flótta- mannaveginum sem fær inni í fjárhúsi til þess að konan megi fæða þar barn. Þessum barns- burði er lýst sem óskiljanlegu kraftaverki, jafnvel þótt ekki sé til náttúrulegri og eðlilegri atburður í mannlífinu en að kona eignist barn. En sjálft frumglæði ljóssins, frumorsökin fyrir því að lífið kviknar, er enn ráðgáta og sveipað leyndarhjúp um aldur og ævi. Fyrir flest okkar snúast jólin um endurtekningu og einhvers konar hringrás, og endurspegla þannig lögmál lífs og dauða. Mörg okkar hafa þetta fyrir hátíð salts og sykurs; önnur svalla í bókum; enn önnur leggj- ast í spil. Mörgum finnst öllu varða að halda í hefðir, bæði í kosti og samveru, endurtaka skref fyrir skref, mínútu fyrir mínútu sömu jólin ár eftir ár, sömu boðin með sama fólkinu að segja sömu hlutina í sömu röð og maulandi sömu sortir; og mess- an í útvarpinu klukkan – og helst með séra Hjalta að lesa Jólaguð- spjallið með sinni hlýlegu nef- tóbaksrödd: En það bar til um þessar mundir … En Guð almáttugur? Er hann um þessar mundir? Ber hann enn til? Býr hann í endurtekn- ingunni, amma? Er Guð til? Í þessari sögu er hann það já, og hann er líka til sem veruleiki í lífi og huga fjölmargra hér á þessari Jörð, daglegur föru- nautur og aflvaki. Við heyrum stundum leikna auglýsingu í útvarpinu þessa dagana þar sem lítil stúlka var að biðja jólasvein- inn um að passa pabba sinn í vinnunni (í heimi auglýsinganna vinna bara pabbar utan heimilis) og gefa honum eitthvað óskiljan- legt dót. Það sem er athyglis- vert í auglýsingunni er hvernig Jólasveinninn hefur þar tekið svo að segja yfir athafnasvið Guðs, ýtt honum burt og sest þar sjálfur, rétt eins og gerðist með ásum þegar Óðinn ýtti Tý burt sem Guð hernaðar. Er kannski Jólasveinninn síðustu leifarnar af hefðbundinni gamalli guðstrú á algóða og alvitra karlveru með hvítt sítt skegg? Má vera. Guð almáttugur er að minnsta kosti fjarri í lífi fjöl- margra, sem kæra sig ekki um slíkt afl í tilveru sinni og kom- ast prýðilega af án þess. En sumt fólk sér hann í stokkum og steinum, í vatninu sem rennur og í tannlausu brosi barna og öldunga. „Sá sem trúir á stein … o.s.frv.“. Fólk sér hann í himin- geimnum og finnur hann inni í sér; og fólk sér hann í sólinni sem lætur grasið gróa og rign- ingunni sem kliðar góð á vor- degi. Og fólk sér hann í verkum hans, rétt eins og við sjáum vindinn í því sem hann bærir, en aldrei hann sjálfan. Og í Jólaguðspjallinu, sem byrjar þarna í miðjum klíðum, á einhverju sem „bar til um þessar mundir“, birtist Guð okkur sem barn. Ekkert er veik- byggðara og varnarlausara en barn sem var að koma í heim- inn. Ekkert er öflugra. Þetta er fagnaðar erindið og við hneigjum höfuðið í lotningu fyrir lífsafl- inu sem hinum veraldlegu keis- urum tekst vonandi aldrei að eyða á þessari jörð. Gleðileg jól. Um þessar mundir Jólaguðspjallið er mýta. Og mýtur hafa fylgt mannkyni frá fyrstu tíð og eiga eftir að gera það til hins efsta dags. Þær eru einn farvegur mannlegrar hugsunar og skynjunar á heiminum og lögmálum hans– og sínum stað í sköpunarverkinu. Þær glíma við tilvistarlegar spurningar sem leita á mennina frá því að sjálfsvitund einstaklings- ins vaknar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.