Fréttablaðið - 17.10.2015, Blaðsíða 6
Kjaramál Þrátt fyrir að viðræður
samninganefndar ríkisins og við-
ræðunefndar SFR, sjúkraliða og lög-
reglumanna hafi haldið áfram í gær eru
forsvarsmenn verkalýðsfélaganna ekki
bjartsýnir á lausn deilunnar í bráð.
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR,
segir ríkissáttasemjara vilja halda fólki
að verki í viðræðunum meðan enn sé
um eitthvað að tala og gerir ráð fyrir
því að fundað verði inn í helgina. Allar
líkur séu hins vegar á að verkfallsað-
gerðir haldi áfram eftir helgi.
Stéttarfélögin stóðu fyrir mót-
mælum fyrir ríkisstjórnarfund í gær-
morgun, en þar áréttaði Árni Stefán
líka að ekkert væri í hendi um lausn
þótt viðræður væru hafnar við ríkið á
ný. „Og væntanlega langar og strangar
viðræður fram undan og við vitum í
sjálfu sér ekkert hvernig það endar.“
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra ræddi fyrir fundinn við fjöl-
miðla. Hann segir stöðuna sem upp
sé komin með verkfallsaðgerðum SFR
og SLFÍ vera tekna mjög alvarlega.
Ríkið sé af fullri alvöru í samningavið-
ræðum. Þá séu engar fyrirætlanir uppi
um að setja lög á verfallið. „Við erum
með samtal í gangi sem við höfum trú á
að geti leitt til niðurstöðu sem allir geti
unað við,“ segir hann.
Félögin þrjú sem saman eiga í við-
ræðum við ríkið leggja áherslu á að
fá sambærilegar kjarabætur og aðrir
ríkisstarfsmenn, svo sem kennarar
og læknar, auk hjúkrunarfræðinga og
félagsfólks BHM.
Bjarni segir hægt að sýna því ákveð-
inn skilning að stéttarfélög komi fram
með kröfur sem vísi í fyrri samn-
inga. „En það hefur verið vandamálið í
þessari samningalotu, sem hefur staðið
kannski frá því í fyrra, að það er engin
samstaða milli félaganna sem koma til
viðræðna við ríkið um það á hvað eigi
að leggja áherslu annað en að allir vilja
fá margra tuga prósenta hækkun.“
Vanda ríkisins segir Bjarni liggja í
að vilja á sama tíma vinna að stöðug-
leika og afstýra því að verðbólga taki
við sér og vextir hækki. Lögð sé áhersla
á að koma í veg fyrir aðra lotu hækk-
ana eins og þeirra sem gengið hafi yfir
með endurskoðun á verklaginu við
samningagerðina og samkomulagi um
endurbætur á lífeyriskerfinu. Tími sé
til kominn að botna þá umræðu.
„Þetta viljum við ræða um leið og
við lokum þessari samningalotu um
kjarasamninga til næstu ára.“
olikr@frettabladid.is
Líkur á að verkföll
haldi áfram eftir helgi
Búist er við að fulltrúar ríkis ræði við fulltrúa SFR, SLFÍ og LL um helgina.
Formaður SFR segir langar viðræður fram undan og óvíst um málalyktir.
verður haldinn laugardaginn 24. október
í fundarsal Landsbókasafns Íslands,
Þjóðarbókhlöðu, kl. 14:00.
Aðalfundur Sögufélags
Smári Geirsson flytur erindið
“Stórhvalaveiðar við Ísland
til 1915 - bók verður til”.
Dagskrá:
.
.
Stjórnin
Venjuleg aðalfundarstörf.
Innifalið er flug, gisting, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn, 20 kg taska og handfarangur.
4.-18. MARS 2016
SUÐUR AFRÍKA
CAPE TOWN
Ævintýraferð til Suður Afríku þar sem
ferðast verður frá Cape Town um vín-
löndin upp til Klein Karoo og meðfram
ströndinni. Fararstjórar ferðarinnar eru
Bói og Villi sem bjuggu þar um tíma.
NÁNAR Á UU.IS
Haldið var upp á evrópska endurlífgunardaginn (European Restart a Heart Day) víða um Evrópu í gær. Af því
tilefni stóð endurlífgunarráð fyrir atburði þar sem hjúkrunarfræðingar, læknar, lögreglumenn og sjúkra-
flutningamenn hnoðuðu endurlífgunardúkkur í Kringlunni. Fréttablaðið/SteFán
Hnoðað í Kringlunni
Fjármálaráðherra mætti mótmælendum á tröppum stjórnarráðsbyggingarinnar
þegar hann kom þar til ríkisstjórnarfundar í gærmorgun. Fréttablaðið/anton
Stjórnmál Þingflokkur Bjartrar
framtíðar hefur lagt fram frumvarp á
Alþingi sem hefur það að markmiði
að auka gagnsæi í tengslum við launa-
greiðslur til þingmanna. Í þingskapa-
lögum er tilgreind skylda þingmanna
til að greina frá hagsmunum sínum og
trúnaðarstörfum utan þings.
Frumvarp Bjartrar framtíðar
bætir við þeirri skyldu að þingmenn
greini jafnframt frá útlögðum hús-
næðis-, dvalar-, og ferðakostnaði
auk annarra starfskjara.
Þá er þingmönnum gert að upp-
færa nýjar upplýsingar um trúnað-
arstörf og hagsmuni utan þings. – srs
Björt framtíð vill aukið gagnsæi
1 7 . o K t ó b e r 2 0 1 5 l a U G a r D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð