Fréttablaðið - 17.10.2015, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 17.10.2015, Blaðsíða 33
Refsiaðgerðir gegn Íran hafa verið í gildi áratugum saman Bandaríkin Refsiaðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran hafa verið í gildi allt frá árinu 1979. Þær fyrstu voru settar vegna gíslatökunnar í Teheran það ár, en þeim aðgerðum var svo aflétt að mestu eftir að gíslarnir voru látnir lausir. Bandaríkin beittu svo nýjum refsiaðgerðir gegn Íran árið 1987 vegna „stuðnings við hryðjuverka- menn“. Aftur voru þær hertar árið 1995 og verulega var svo var bætt í á árunum eftir 2005. Loks voru þær hertar mjög árið 2011. Þessar víðtæku refsiað- gerðir lúta að kjarnorkumálum, vopnaviðskiptum, öðrum viðskiptum, bankastarfsemi, tryggingum og fleiri atriðum í samskiptum ríkjanna. Sameinuðu þjóðirnar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti alls níu ályktanir um refsiaðgerðir gegn Íran á árunum 2006 til 2013, allar vegna kjarnorku- áætlunar Írans. Þessar refsiaðgerðir eru þær ströng- ustu sem Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt gegn nokkru ríki. Þær snúast meðal annars um vopnasölu- bann, eignafrystingu og eftirlit af ýmsu tagi. Evrópusambandið Evrópusambandið hefur verið með víð- tækar refsiaðgerðir í gildi gagnvart Íran frá árinu 2007. Þær lúta að kjarnorkumálum, vopnaviðskiptum, bankaviðskiptum og fleiri atriðum. 2013 Hassan Rúhani tekur við forseta- embætti Írans. Hann einsetur sér að ná samningum við Bandaríkin og bæta samskiptin við Vesturlönd. 2014 Bandaríkin og Íran ná samningi um kjarnorku- áætlun Írans, þrátt fyrir mikla tortryggni á báða bóga. Engin lántökugjöld við fyrstu kaup Við komum til móts við þá sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign og veitum þeim 100% afslátt af lántökugjöldum. Við höfum líka hækkað hámarksfjármögnun við fyrstu kaup upp í allt að 85% af verði fasteignar. Bókaðu viðtal við fjármálaráðgjafa á arionbanki.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 1 5 - 0 6 5 4 Hófleg bjartsýni „Við ætlum að standa við okkar hlut í samningnum. En við erum hvorki bjartsýn né svartsýn á framganginn. Við ætlum að bíða og sjá til. Ef Bandaríkin koma heiðarlega fram, þá er engu að kvíða,“ segir Madsjíd Nili, sendiherra Írans gagnvart Íslandi, en hann hefur aðsetur í Ósló. Hann segir engan ágreining uppi meðal íranskra ráðamanna, þótt ólíkar áherslur hafi mátt greina í orðum for- setans Hassan Rúhani og æðsta leið- togans Ali Khameini. Rúhani hefur ítrekað lýst ánægju sinni með samninginn, sem hann átti stóran hlut í að varð að veruleika: „Kjarnorkusamningurinn, sem er frábært dæmi um það að „sigrast á stríði“, ætti að boða nýja tíma og leiða af sér jákvæða þróun með því að koma á varanlegum friði og stöðug- leika í heimshlutanum,“ sagði Rúhaní til dæmis í ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í lok september. Ali Khameini erkiklerkur, æðsti leið- togi Írans, hefur hins vegar varað við því að Bandaríkin geti notfært sér þennan samning til að grafa undan Íran. „Ég held að hér sé enginn ágrein- ingur,“ segir Nili. „Það sem Rúhani forseti segir gengur í sömu átt og það sem æðsti leiðtoginn segir. Við höfum satt að segja ekki mjög góða reynslu af framkomu Bandaríkjanna gagnvart Íran. Þeir lögðu refsiaðgerðir á Íran að óþörfu. Þeir vissu frá byrjun að við værum ekkert að þróa kjarnorkuvopn, og samt settu þeir refsiaðgerðir á okkur.“ Nú hins vegar er kominn samningur við Bandaríkin og staðan breytt. Eðli- legt sé að Íranar eigi erfitt með að treysta Bandaríkjunum, en samningur hafi verið gerður og nú verði að láta á hann reyna. „Við erum komin á byrjunarreit. Við eigum að láta reyna á það hvort samningurinn stendur. En það er of snemmt að segja til um það núna hver reynslan verður.“ Nili segir að refsiaðgerðirnar, sem staðið hafa yfir árum og áratugum saman, hafi vissulega haft áhrif á Íran: „En við skulum samt ekki halda að þetta sé ástæða þess að við settumst að samningaborðinu. Við höfum gengið í gegnum þetta áður. Þegar Saddam réðst á Íran settu flest ríki refsiaðgerðir gegn Íran. Við höfum lifað með refsiað- gerðum í meira en 30 ár. Og við vitum að hægt er að aflétta refsiaðgerðum og þá opnast nýir möguleikar á viðræðum, efnahagssamstarfi og samstarfi um lausnir á vandamálum í okkar heims- hluta.“ Madsjíd Nili, sendiherra Írans, var í stuttri heimsókn hér á landi í vikunni. h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 33l A U g A R D A g U R 1 7 . o k T ó B e R 2 0 1 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.