Fréttablaðið - 17.10.2015, Blaðsíða 38
Fríða segist ekki muna eftir því
að hafa fengið einhverja sér
staklega eftirminnilega gjöf frá
vinnuveitanda sínum. Hún segir
að á Tímanum hafi ekki tíðkast
að gefa starfsmönnum jólagjaf
ir. „Ég minnist þess ekki að við
höfum fengið jólagjafir þegar
ég var að byrja í blaðamennsku.
Samstarfsmaður minn frá þeim
tíma staðfestir það,“ segir Fríða
og bætir við að starfsmenn hafi
þó fengið jólakort undirritað af
framkvæmdastjóra Tímans og
formönnum f lokksins hverju
sinni. „Starfsfélagi minn kunni
vel að meta kortin því hann á
þau enn,“ segir Fríða.
„Þegar frá leið man ég að
mikið var talað um að fólk fengi
vínflöskur í jólagjöf frá fyrirtækj
um. Ég verð því miður að segja
að í sumum tilfellum fylgdi líka
sögunni að slíkar gjafir færðu
fjölskyldum ekki endilega gleði,
að minnsta kosti ekki þar sem
áfengisneysla var vandamál.“
Þegar Fríða er spurð hvort
henni finnist að fyrirtæki ættu
að gefa fallegan hlut í jólagjöf,
matarkyns gjöf, peninga eða
eitthvað til að njóta, eins og bók
eða tónleika, svarar hún: „Það er
erfitt að meta hvers konar jóla
gjafir skapa mesta gleði, enda
þiggjendurnir jafn ólíkir og þeir
eru margir. Matarkörfur finnst
mér alltaf skemmtilegar gjafir.
Í þeim leynist eitthvað sem allir
á heimilinu njóta og hafa gaman
af að smakka. Það er hins vegar
ótrúlega erfitt að velja hluti fyrir
fólk, ekki síst núna þegar flest
ir eiga allt, eins og sagt er. Svo
finnst fólki kannski gjöfin for
ljót. Nú síðustu ár hefur færst
í vöxt, að því er mér virðist, að
fyrirtæki gefi pening í formi
gjafakorta. Í sumum tilfellum
verður vissulega að nota kortin
á ákveðnum stöðum, en í öðrum
er hægt að taka út peningana og
nýta þá eftir því sem best hentar
hverjum og einum. Það er mjög
góður kostur að mínu mati.“
Þegar Fríða er spurð um
óvenjulega eða skemmtilega gjöf
rifjar hún upp sögu.
„Það getur vissulega verið
gaman að velta fyrir sér hvað
hverjum og einum kann að
líka best eða verst. Ég minnist
þess að einu sinni fengu starfs
menn þar sem ég vann skál úr
málmi, ekki eðalmálmi, en
nokkuð skemmtilegur hlut
ur samt. Ekki voru allir á einu
máli um gripinn, samstarfskona
mín fékk skál sem hún sagði að
væri eins og næturgagn í laginu
og gat ekki hugsað sér að hafa
hana nokkurs staðar uppi við á
sínu heimili. Ég sá engan veg
inn þessa samlíkingu og endir
inn varð sá að hún gaf mér skál
ina sem hefur veitt mér gleði
æ síðan þar sem hún stendur á
borðstofuborðinu mínu. Og það
sem meira var, mér fannst mín
eigin skál líka býsna falleg svo
þarna fékk ég tvær gjafir sem
báðar glöddu mig mikið og gera
enn 15 árum síðar,“ segir Fríða
og bætir við að jólagjafir séu
alltaf gefnar með góðu hugar
fari. „Það skiptir máli og mér
finnst því að við ættum að vera
jafnþakklát fyrir gjöfina, hvort
sem hún er stór eða smá,“ segir
Fríða sem nýtur lífsins á Flórída
þessa dagana.
Fengu jólakort frá formanni
Framsóknarflokksins
Fríða Björnsdóttir starfaði um áratugaskeið sem blaðamaður, lengst á Tímanum. Hún er ekki óvön því að skrifa um allt milli himins
og jarðar tengt jólum. Fríða hefur gaman af fallegum hlutum og því var ekki úr vegi að spyrja hana út í jólagjafir vinnuveitenda.
Fríða er nú í fríi á Flórída þar sem hún hefur tvívegis haldið jól. Hún segist alltaf kaupa eitthvert jóladót þegar hún fer til útlanda. „Í Ameríku förum við á bílskúrssölur þar sem þessi
sæti karl varð á vegi mínum, ekki kókakólasveinninn heldur bláklæddur, líklega að hætti rétttrúnaðarkirkjunnar.“ MYND/EINKASAFN
Gefðu
möguleika
Þú færð gjafakortið á þjónustuborði
Smáralindar eða á smaralind.is
Kynning − auglýsingFyrirtækjagjafir 17. október 2015 LAUGArDAGUr2