Fréttablaðið - 17.10.2015, Side 32

Fréttablaðið - 17.10.2015, Side 32
1953 Mohammed Mossadeq forsætis- ráðherra steypt af stóli í byltingu sem bandaríska leyni- þjónustan CIA hefur viðurkennt að hafa átt hlutdeild að. 1979 Mohammed Reza Pahlevi keisara, sem naut stuðnings Banda- ríkjanna, steypt af stóli í byltingu. Nokkrum vikum síðar sneri Aja- tollah Khomeini erki- klerkur heim úr útlegð. 1979-1981 Tugum Bandaríkja- manna haldið í gíslingu í bandaríska sendiráðinu í Teheran. Þeim síðustu var sleppt eftir 444 daga í gíslingu. 1985 Ronald Reagan Banda- ríkjaforseti selur Írönum vopn með leynd og notar and- virðið til að styrkja Contra-skæruliða í Níkaragva. 1988 Bandaríska herskip- ið USS Vincennes skýtur niður íranska farþegaþotu með 290 manns innan- borðs. Allir fórust. 2002 George Bush Banda- ríkjaforseti segir Íran eitt af „öxulveldum hins illa“. Sama ár upphefst djúpstæður ágreiningur um kjarnorkuáætlun Írans þegar ljóstrað er upp um hana. 2005-2013 Mahmúd Ahmad- ínedjad er forseti Írans. Hann þykir kjaftfor og óhrædd- ur við að gagnrýna Bandaríkin. 2006-2012 Sameinuðu þjóð- irnar, Bandaríkin og Evrópusambandið samþykkja hverjar refsiaðgerðirnar á fætur öðrum gegn Íran. Fleiri lönd gera slíkt hið sama. Íran og Bandaríkin Hvorki ráðamönn-um né almenn-ingi í Íran er bein-línis tamt að líta á Bandaríkin sem nána bandamenn sína. Þeir hafa ekki gleymt því að árið 1953 stóð bandaríska leyniþjón- ustan CIA að baki byltingu gegn forseta Írans. CIA hefur fyrir löngu viðurkennd aðild sína að þessari byltingu. Íranar hafa heldur ekki gleymt því að bandaríski herinn skaut niður íranska farþegaþotu árið 1988. Þá hafa Íranar áratugum saman búið við efnahagslegar refsiaðgerðir af ýmsu tagi, og líta svo á að þær séu flestar runnar undan rifjum Bandaríkj- anna, þótt vissulega hafi bæði Evrópu- sambandið og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna verið með refsiaðgerðir í gildi gegn Íran nú í bráðum áratug. Íranar hafa þó óneitanlega gert sitthvað sjálfir til þess að kalla yfir sig þessar refsiaðgerðir. Þannig voru fyrstu refsiaðgerðirnar á Íran settar á árið 1979 eftir að byltingarmenn þar í landi höfðu tekið starfsmenn banda- ríska sendiráðsins í Teheran í gíslingu. Undanfarin tíu ár eða svo hafa fjölmargar nýjar refsiaðgerðir verið samþykktar gegn Íran vegna kjarn- orkuáætlunar landsins. Mahmúd Ahmadínedjad, sem var forseti á undan Hassan Rúhani, sýndi lítinn áhuga á að semja við Sameinuðu þjóð- irnar og Vesturlönd um eftirlit með kjarnorkuáætluninni. Þetta breyttist eftir að nýr forseti komst til valda í Íran, Hassan Rúhani, sem hefur lagt áherslu á að bæta sam- skiptin við Vesturlönd og ekki síst við Bandaríkin, þrátt fyrir djúpstæða tor- tryggni á báða bóga. Í sumar  var undirritaður  samn- ingur við Bandaríkin, Rússland, Kína, Bretland, Frakkland og Þýska- land. Samningurinn felur það í sér að refsiaðgerðum Bandaríkjanna, Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna verður að mestu létt af Írönum, standi þeir við loforð sín um að takmarka kjarnorkustarfsemi sína og heimila alþjóðlegt eftirlit með framkvæmdinni. Síðastliðinn þriðjudag samþykkti íranska þjóðþingið svo með yfirgnæf- andi meirihluta samninginn. Íranska stjórnlagaráðið, sem fer með neit- unarvald, gaf svo sitt samþykki strax daginn eftir. Evrópusambandið samþykkti þennan samning fyrir sitt leyti strax þann 20. júlí og Bandaríkjaþing afgreiddi hann um miðjan septem- ber. Þar með stendur ekkert í vegi fyrir því að samningurinn taki gildi, og það verður á morgun, 18. október. Bandaríkin telja að það geti tekið allt að níu mánuði að ganga úr skugga um að Íranar standi í raun við sinn hluta samningsins. Refsiaðgerðirnar hafa haft veruleg áhrif á íranskt efnahagslíf. Almenn- ingur þar í landi hefur fundið fyrir afleiðingunum. Íranar gera sér því vonir um að aflétting refsiaðgerð- anna opni margvíslega möguleika á auknum viðskiptum víða um heim. Samningurinn hefur mætt mikilli tortryggni í Bandaríkjunum af hálfu andstæðinga Baracks Obama for- seta. Hann segist þó sannfærður um að andstaðan muni minnka. „Þegar framkvæmd samningsins er orðin að veruleika og við verð- um með eftirlitsfólk í Íran og það verður ljóst að Íran er í raun að standa við þetta samkomulag, þá mun þessi afstaða breytast,“ sagði Obama í sjónvarpsviðtali fyrr á árinu. Umdeildur samningur tekur gildi Kjarnorkusamningur Írans tekur gildi á morgun. Á næstu mánuðum munu því Bandaríkin, Evrópusambandið og fleiri ríki að mestu aflétta refsiaðgerðum gegn Íran, svo fremi sem talið sé að Íranar standi við sinn hluta. Íranska þingið samþykkti á þriðjudaginn kjarnorkusamninginn sem gerður var í sumar við Bandaríkin og fimm önnur lönd. Nordicphotos/AFp Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is 1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r32 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.