Fréttablaðið - 17.10.2015, Síða 36

Fréttablaðið - 17.10.2015, Síða 36
Ég er hætt að leika, þannig að því sé haldið til haga,“ segir Steinunn Ólína Þor-steinsdóttir og skellir upp úr þegar samtalið hefst. „Þó að ég hafi tekið þátt í þessum tveimur verkefnum í sumar þá þýðir það ekkert að ég ætli í leik- listina aftur. Það þarf eitthvað svona sérstakt að koma til. Ég er hætt, nema þegar mér býðst æðislegt hlutverk. Er það ekki ágætis plan?“ Hana kannast margir við af fjölum leikhúsanna en hún sagði skilið við leiklistina fyrir rúmum tíu árum. Hún fer þó með aðalhlutverkið í þriðju seríu af þáttaröðinni Réttur en fyrsti þáttur- inn verður frumsýndur á sunnudaginn. En líkt og kemur fram þá er hún ekki snúin aftur í leiklistina – sum tilboð eru bara of góð til að hafna. Ókúl löggudúó „Það var bara ein ástæða fyrir því að ég tók þetta að mér og hún var sú að Bald- vin Z var að leikstýra. Ég lék lítið hlut- verk í Ófærð í sumar og vann þar með fullt af ungum frábærum leikstjórum. Baldvin var einn af þeim og þegar hann bað mig um að leika í Rétti þá þurfti ég ekki að hugsa mig tvisvar um,“ segir Steinunn Ólína. „Baldvin er skarpur leikstjóri og hefur þann eiginleika að maður ber fullt traust til hans, það er því lúxus að vinna með honum. Handritið var líka mjög freistandi. Það er mjög nærgöngult og fjallar um hluta íslensks samfélags sem er kannski frekar hulinn að öllu jöfnu,“ segir hún og bætir við að handritið sé á margan hátt óvenjulegt og ekki sé um hefðbundna glæpaþátta- röð að ræða þar sem einblínt er á að leita brotamanninn uppi. „Það er vissulega framinn glæpur en raunverulega ber allt samfélagið ábyrgð. Þræðirnir liggja í gegnum allar stéttir samfélagsins.“ Þáttaröðin fjallar um lögreglurannsókn sem teygir anga sína víða þar sem samfélagsmein á borð við hefndarklám, einelti á inter- netinu, eiturlyfjaneyslu og týndar ung- lingsstúlkur koma við sögu. Handritið er skrifað af þeim Andra Óttarssyni og Þorleifi Erni Arnarssyni. Steinunn Ólína leikur rannsóknar- lögreglukonuna Gabríelu og samstarfs- félaga hennar, Högna, leikur Þorsteinn Bachman. „Teymið sem við leikum er sérstakt fyrir þær sakir að þau eru alveg klárlega mest ókúl löggudúó sem sést hefur,“ segir hún og hlær. „Við, ásamt Baldvini, leituðumst við að hafa þau sem venjulegust. Þetta eru bara Reykja- víkurlöggur. Fólk af holdi og blóði. Gabríela og Högni eru ekkert með sérstaklega góða félagshæfni og bæði nörd ar í sínu fagi.“ Við gerð þáttaraðanna var lagst í mikla heimildavinnu og lögð var áhersla á að leita ráðgjafar fagfólks úr ýmsum starfsstéttum til þess að þætt- irnir endurspegluðu íslenskan veruleika á sem raunsæjastan máta og þar voru leikararnir í engu undanskildir. „Við hittum rannsóknarlögreglur í upphafi ferlisins og þetta er auðvitað bara venju- legt fólk.“ Í glæpaseríum er oft og tíðum lögð áhersla á að breyta rannsóknarlögregl- unum í töffara og hetjur sem ekkert fær á. „Við unnum á móti því og það var mjög skemmtilegt. Þau eru eiginlega bara alveg rosalegir lúðar.“ Annað aðalhlutverk í seríunni leikur Magnús Jónsson auk fjölda ungra leik- ara sem Steinunn Ólína segir hafa verið skemmtilegt að vinna með. Eins og að læra að hjóla Helstu ástæður þess að Steinunn Ólína hætti að leika segir hún hafa verið þær að hana langaði til þess að sjá hvort lífið hefði ekki upp á eitthvað annað að bjóða, enda hafði hún verið viðloðandi leikhúsin frá barnæsku og hafði starfað í leikhúsinu í rúm tuttugu ár þegar hún hætti. „Lífið er of stutt. Við eigum að freista þess að lifa mörgum lífum á þessum fáu árum sem við fáum,“ segir hún og bætir við að hún telji áhersluna á að velja einn feril í upphafi starfsævinnar ákaflega takmarkandi. Hún telur að þær kynslóðir sem eru að vaxa úr grasi núna Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona segir tímann sem hafi liðið á milli hlutverka hafa hjálpað henni að komast yfir komplexa og gert það að verkum að hún gat ein- beitt sér hundrað prósent að hlutverkinu og sögunni. fréttablaðið/anton brink kyrr Heimurinn er á neita að hreyfingu og ég sitja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikur rann- sóknarlögreglukonu í þriðju þáttaröð Réttar. Hún er enn hætt að leika og segir lykilinn að hamingjunni meðal annars fólginn í því að hæfileikar hvers og eins fái að njóta sín. muni hugsa og vinna á annan hátt því í dag sé enn auðveldara en áður að leita þekkingar og mennta sig á mörgum sviðum og því ekki nauðsynlegt að festa sig við einn starfsferil. En var þá ekkert erfitt að leika aftur eftir svona langt hlé? „Leikari verður alltaf leikari. Það var enginn kvíði í mér fyrir því að fara að leika aftur en engin sérstök eftirvænt- ing heldur. Mér fannst þessi tími sem hafði liðið hafa hjálpað mér mjög mikið og losað mig við alls konar komplexa sem ég hafði þegar ég var yngri. Það var léttir og ég var laus við það að vera upp- tekin af einhverjum smáatriðum sem engu skipta og gat einbeitt mér alveg hundrað prósent að hlutverkinu og sögunni.“ Steinunn Ólína fagnar þeirri þróun að leikkonum á miðjum aldri bjóðist í auknum mæli aðal- hlutverk í þáttaröðum á borð við Rétt. „Ég hugsa að fyrir nokkrum árum hefði öllum þótt óhugsandi að vera með miðaldra konu í aðal- hlutverki sem löggu. Það hefur verið normið að hún væri í kring- um tuttugu og fimm ára aldurinn, ótrúlega sæt og rosalegt hönk að leika á móti henni,“ segir hún og bætir við að hún fagni þessari þróun, sem er ekki séríslensk, því þetta sé oft erfiður aldur fyrir leik- konur. Gott að vinna ein Í dag er hún ritstjóri Kvennablaðsins og nýtur þess að vinna heima við þegar hún á þess kost. „Ég stjórna vinnutímanum mikið sjálf. Suma daga er ég mikið á fundum og svo eru aðrir dagar þar sem ég get leyft mér að vera heima á náttfötunum og vinna,“ segir hún og brosir út í annað. Ritstjórnarstörfin voru þó ekki eitt- hvað sem hafði blundaði í henni, held- ur áhugi sem kviknaði eftir að hún gaf út skáldsöguna Í fylgd með fullorðnum árið 2005. „Ég hafði ekkert gengið með það í maganum að skrifa. Ég bara sett- ist niður og skrifaði bók. Þessi bók var ákveðin hreinsun fyrir mig og mjög góður skóli.“ Þegar hún flutti til Bandaríkjanna ásamt fjölskyldu sinni árið 2005 hóf hún að skrifa pistla fyrir Morgunblaðið og fann fljótlega að þar var eitthvað sem kitlaði. Einnig fannst henni gott að vinna ein eftir að hafa starfað í leikhúsunum um árabil. „Eftir að hafa unnið á mjög mann- mörgum vinnustað þar sem allir eru ofan í öllum og allt gengur út á sam- vinnu þá fannst mér einhver hvíld í því að vinna aðeins ein. “ Kvennablaðið var stofnað í nóvem- ber fyrir tveimur árum og verður tíma- mótunum fagnað með útgáfu glæsilegs tímarits sem verður dreift frítt. „Þessi vegferð okkar Soffíu Steingrímsdóttur framkvæmdarstjóra er búin að vera alveg frábær. Þetta er búið að ganga alveg ótrúlega vel,“ segir hún og bætir við: „Þó að reksturinn sé stundum erfiður af því að við njótum ekki stuðn- ings bakhjarla eða styrkja þá hef ég fulla ástæðu til þess að vera bjartsýn,“ segir hún og hlær dátt þegar hún er spurð að því hvort hún stefni þá ekki á að skipta um starfsvettvang á næstunni: „Nei. Frekar færa út kvíarnar ef eitthvað er, við erum alveg óbangnar.“ neitar að sitja kyrr Fjölskyldan skiptir tíma sínum á milli Íslands og Bandaríkjanna þar sem Stef- án Karl Stefánsson, eiginmaður Stein- unnar Ólínu, vinnur hluta ársins. Hann heldur utan innan skamms til þess að leika sjálfan Trölla og fjölskyldan fylgir honum eftir þegar nær dregur jólum. Framtíðina segir hún óráðna og þannig vill hún hafa hana. Henni líður alls staðar vel svo lengi sem hún er með fólkið sitt í kringum sig. „Heimurinn er á hreyfingu og ég neita að sitja kyrr. Ég veit ekkert hvað ég geri á næsta ári og ég vil ekki ákveða það. Mér finnst stöðug- leiki alveg rosalega lítið eftirsóknar- verður,“ segir hún og bætir við að svona hafi hún verið frá barnæsku. „Þetta ristir miklu dýpra en að vera eitthvert rótleysi. Mér finnst að maður eigi að njóta þeirra tækifæra sem koma upp í hendurnar á manni. Maður skuldar sjálfum sér það. Taka sénsa, taka stundum rangar ákvarðanir, læra af því, vera alltaf að læra og prófa eitt- hvað nýtt. Það er ekkert verra en að staðna í hugsun.“ Steinunn Ólína segist í gegnum tíðina hafa verið heppin að fá að vinna við sín hugðarefni. „Ég hef notið þeirra forréttinda að vinna við það sem mér finnst skemmtilegt og það er dálítið þannig að ef það er til staðar þá er lífið auðveldara. Ég finn til með fólki sem er óhamingjusamt í starfi og ég held að það séu mjög margir sem nýti hæfileika sína ekki nógu vel. Ég held að við þær aðstæður verði fólk mjög óhamingju- samt,“ segir hún hugsi og heldur áfram: „Lykillinn að hamingjunni er auðvitað að eiga góða fjölskyldu, góða vini og maður vonar að allir séu heilbrigðir og kátir í kringum mann en stærsti hluti af hamingju hvers og eins er fólginn í því að hæfileikar hans fái að njóta sín.“ Ég hugSa að fyrir nokkrum árum hefði öllum ÞÓtt ÓhugSandi að vera með miðaldra konu í aðalhlutverki Sem löggu. Það hefur verið normið að hún væri í kringum tuttugu og fimm ára aldurinn, Ótrúlega Sæt og roSalegt hönk að leika á mÓti henni. 1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r36 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.