Fréttablaðið - 17.10.2015, Page 49
smáauglýsingar
smaar@frettabladid.is / visir.is
512 5000
Afgreiðsla smáauglýsinga og sími
er opinn alla virka daga frá 8-17
Allar smáauglýsingar
vikunnar á visir.isv nna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚ R Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri veitir Fræðslunetinu forstöðu, stjórnar daglegum rekstri þess
og ber ábyrgð gagnvart stjórn félagsins.
Upplýsingar veita:
Ásmundur Sverrir Pálsson
framkvæmdastjóri Fræðslunetsins
Sími 560 2030
asmundur@fraedslunet.is
Inga S. Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Með umsókn skal fylgja ítarleg
ferilskrá og greinargott kynningarbréf
sem færir rök fyrir hæfni umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til og
með 31. október nk.
Búseta á svæðinu er æskileg og að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Framkvæmdastjóri
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Góð þekking á fullorðins- og framhaldsfræðslu og
öðrum mennta- og skólamálum
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Mikil færni í mannlegum samskiptum
• Haldgóð þekking og reynsla af fjármálum og rekstri
• Reynsla af verkefnastjórn og stefnumótunarvinnu
• Góð tungumálakunnátta og tölvufærni
• Þekking á opinberri stjórnsýslu
• Þekking á byggðamálum á Suðurlandi
Starfssvið:
• Dagleg stjórnun og rekstur
• Gerð rekstrar- og starfsáætlana auk reikningsskila
• Samstarf um símenntun og framhaldsfræðslu
• Almenn stefnumótun; skipulag á námsframboði
Fræðslunetsins á Suðurlandi
• Umsýsla með Vísinda- og rannsóknarsjóði Suðurlands
• Gerð samninga um fræðslustarfið
• Umsóknir um styrki til fullorðins- og framhaldsfræðslu
Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi er sjálfseignarstofnun sem hefur það meginmarkmið að treysta aðgengi fullorðins fólks á Suðurlandi að símenntun
og framhaldsfræðslu sem felur í sér námskeiðahald, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat. Starfssvæðið nær yfir Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Vestur- og
Austur-Skaftafellssýslur. Starfsstöðvar eru á Selfossi (höfuðstöðvar), Hvolsvelli, Vík, Kirkjubæjarklaustri og Höfn. Tólf starfsmenn starfa hjá Fræðslunetinu auk
fjölda leiðbeinenda. Fræðslunetið hefur viðurkenningu mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem fullorðinsfræðsluaðili skv. lögum um framhaldsfræðslu
og EQM-gæðavottun sem er staðfesting þess að Fræðslunetið standist evrópskar kröfur um gæði starfseminnar.
Nánari upplýsingar um Fræðslunetið er að finna á vefsíðunni fraedslunet.is
Leitað er að jákvæðum, kraftmiklum og reyndum stjórnanda með brennandi áhuga á að
byggja upp sterka liðsheild og framfylgja framtíðarsýn og markmiðasetningu spítalans.
Starfið er veitt frá 1. desember 2015 til 5 ára.
Stöðug framþróun er hornsteinn nútíma spítalaumhverfis. Örar framfarir í þekkingu og verklagi krefjast þess að
innviðir, nýbyggingar, tækjabúnaður, upplýsingatækni og verklag séu í sífelldri endurskoðun og þróun. Hlutverk
framkvæmdastjóra þróunar er að leiða þessa framþróun.
Framkvæmdastjóri þróunar starfar á skrifstofu forstjóra, heyrir undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn spítalans.
Upplýsingar veita:
Leifur Geir Hafsteinsson
leifurgeir@hagvangur.is
Sigrún Ósk Jakobsdóttir
sigrun@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Með umsókn skal fylgja ítarleg
ferilskrá og greinargott kynningarbréf
sem færir rök fyrir hæfni umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til og
með 2. nóvember nk.
Laun eru samkvæmt samningi
viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Framkvæmdastjóri þróunar á Landspítala
Starfssvið:
• Yfirumsjón með stefnumörkun spítalans
• Yfirumsjón með aðkomu Landspítala að endurnýjun
húsnæðis við Hringbraut (NLSH)
• Yfirumsjón með þróun straumlínustjórnunar
(lean management)
• Ábyrgð á verkefnastofu og samskiptadeild spítalans
• Önnur verkefni sem forstjóri felur framkvæmdastjóra
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
• Farsæl stjórnunar- og rekstrarreynsla úr efstu þrepum
fyrirtækja eða stofnana
• Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
• Reynsla af aðferðafræði stefnumiðaðrar stjórnunar
• Reynsla af yfirumsjón stórra verklegra framkvæmda
• Afburða hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku
• Lífssýn og persónuleg gildi sem falla vel að stefnu Landspítala
• Reynsla af umbótastarfi, teymisvinnu og breytingastjórnun
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er æskileg
Landspítali er fjölmennasti vinnustaður landsins með rúmlega 5.000 starfsmenn.
Spítalinn hefur víðtæku hlutverki að gegna sem þjóðarsjúkrahús, háskólasjúkrahús
og miðstöð menntunar og rannsókna í heilbrigðisvísindum.
Landspítali leggur áherslu á öryggi, góðan vinnustað, skilvirka verkferla, ábyrgan
rekstur og endurnýjun húsnæðis.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
www.hagvangur.is