Fréttablaðið - 17.10.2015, Qupperneq 54
| ATVINNA | 17. október 2015 LAUGARDAGUR6
Deildarstjóri fræðslu-
frístunda og menningarmála.
Fjallabyggð óskar eftir að ráða drífandi
og metnaðarfullan einstakling til starfa.
Megin viðfangsefnið er fræðslu- frístunda- og menningarmál,
stefnumörkun í kynningar- og markaðsmálum, upplýsinga- og
almannatengslum sem og á sviði ferða- og atvinnumála.
Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun á sviði menntamála og
stjórnsýslu. Reynsla og góð kunnátta í stjórnsýslulegri meðferð mála
er æskileg. Lögð er áhersla á að viðkomandi búi yfir þekkingu og
hæfni í stefnumótun og þróun, fjármálum og áætlanagerð, stjórnun
starfsmanna og umsjón með verkefnum. Sjálfstæð vinnubrögð,
frumkvæði, leiðtogahæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum eru
nauðsynlegir kostir. Næsti yfirmaður deildarstjóra er bæjarstjóri.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitar-
félaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknir skulu hafa borist bæjarskrifstofum Fjallabyggðar að
Gránugötu 24, Siglufirði 580, eigi síðar en mánudaginn 2. nóvember
2015.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningar-
bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni viðkomandi í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Þór Ólafsson, deildarstjóri
stjórnsýslu- og fjármála, netfang olafur@fjallabyggd.is sími 464 -9100
eða Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri, netfang gunnarb@fjallabyggd.is
Starfatorg.is
Laus störf hjá ríkinu og upplýsingar um málefni ríkisstarfsmanna
Starf Stofnun Staður Nr. á vef
Framkvæmdastjóri þróunar Landspítali Reykjavík 201510/1075
Doktorsnemi Háskóli Íslands, Viðskiptafræðideild Reykjavík 201510/1074
Afgreiðslustarf/símvarsla Fjársýsla ríkisins Reykjavík 201510/1073
Verkefnastjóri vef- og mark.mála Háskólinn á Akureyri Akureyri 201510/1072
Starfsmaður í mötuneyti Alþingi Reykjavík 201510/1071
Framhaldsskólakennarar Verkmenntaskóli Austurlands Fjarðabyggð 201510/1070
Námsstöður deildarlækna Landspítali, lyflækningar Reykjavík 201510/1069
Fjársýslustjóri Fjármála- og efnahagsráðuneytið Reykjavík 201510/1068
Fjármálastjóri Fjölbrautaskóli Suðurnesja Reykjanesbær 201510/1067
Vélamenn Vegagerðin Patreksfjörður 201510/1066
Yfirverkstjóri Vegagerðin Reykjavík 201510/1065
Hjúkrunarfræðingur Landspítali, bráðaþjónusta geðsviðs Reykjavík 201510/1064
Læknakandídatar og alm. læknar Heilbrigðisstofnun Norðurlands Norðurland 201510/1063
Lögreglumaður Lögreglustjórinn á Vesturlandi Búðardalur 201510/1062
Vélamaður Vegagerðin Hvammstangi 201510/1061
Hjúkrunarfræðingar LSH, hjúkrunardeild á Vífilsstöðum Garðabær 201510/1060
Hjúkrunarfræðingur LSH, bráðaöldrunarlækningadeild Reykjavík 201510/1059
Sjúkraliðar LSH, öldrunarlækningadeild Reykjavík 201510/1058
Skrifstofustarf í innheimtu LSH, fjármálasvið Reykjavík 201510/1057
Framkv.stjóri mannauðssviðs Landspítali Reykjavík 201510/1056
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar LSH, bráðaöldrunarlækningadeild Reykjavík 201510/1055
Verkfræðingar Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR Rvík/Akureyri 201510/1054
Sérfræðingur í landuppl.kerfum Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR Rvík/Akureyri 201510/1053
Jarðfræðingur Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR Rvík/Akureyri 201510/1052
Jarðeðlisfræðingur Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR Rvík/Akureyri 201510/1051
Eðlisfræðingur Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR Rvík/Akureyri 201510/1050
Starfsmaður í borholumælingar Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR Rvík/Akureyri 201510/1049
Embætti skrifstofustjóra Velferðarráðuneytið Reykjavík 201510/1048
Húsvörður
Húsfélagið að Boðagranda 7 í Reykjavík vill ráða húsvörð,
í húsinu eru 60 íbúðir. Verkefni húsvarðar eru:
• Þrif á sameign
• Almenn umhirða húss, lóða og bílastæða.
• Auk almenns viðhalds og endurbóta.
Húsvörður þarf að vera laghentur og útsjónarsamur og skal hafa
auga fyrir því sem betur má fara. Gert er ráð fyrir að kalla megi
húsvörð til þegar nauðsyn krefur utan vinnutíma. Hluti af kjörum
húsvarðar er afnot af húsvarðaríbúð. Lögð er áhersla að húsvörður
sé jákvæður að eðlisfari og jákvæður í samskiptum.
Starfshlutfall er 50%
Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælum
berist til: Blokkir.is, Álfabakka 12, 109 Reykjavík
Umsóknafrestur er til og með 2. nóvember 2015
Leitum að frábærum starfsmanni til
útkeyrslu og sölustarfa.
Þarf að vera þægilegur í samskiptum og
samviskusamur. Þarf að geta byrjað fljótlega.
Vinsamlega sendið umsóknir á: core@core.is
Umsjón með ráðningunni hefur Bryndís hjá
Talent og er áhugasömum bent á að sækja
um starfið á vefsíðunni www.talent.is
Allar nánari upplýsingar veitir Bryndís
í síma 552-1600 eða bryndis@talent.is
Umsóknarfrestur er til og með 28. okt. nk.
Húsfélagið Hjallabraut 33, Hafnarfirði
óskar eftir að ráða húsvörð til starfa. Starfinu fylgir 80 m2 3ja herbergja íbúð og er búseta þar
skilyrði. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Starfið gæti hentað vel samhentum hjónum.
Helstu verkefni:
• Umsjón og eftirlit með húseigninni
• Reglubundin þrif og umsjón með aðkeyptum þrifum
• Umhirða lóðar
• Minniháttar viðhald
• Aðstoð við íbúa hússins
• Önnur tilfallandi störf
• Húsvörður hefur útkallsskyldu utan dagvinnutíma skv.
nánara samkomulagi
Hæfniskröfur:
• Handlaginn
• Lipur í samskiptum
• Reglusamur
• Samviskusamur
• Þjónustulundaður
Íbúar hússins eru
60 ára og eldri.
Húsvörður heyrir undir
hússtjórn.
Linnetsstígur 1 | 220 Hafnarfjörður | talent@talent.is | Sími 552-1600
Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogur | sími 898 8872 | www.motx.is
Vanur kranamaður
óskast sem fyrst
MótX óskar eftir því að ráða vanan kranamann til
starfa sem fyrst. Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Hægt er að senda inn umsókn á
tölvupóstfangið motx@motx.is
eða hafa samband við Þröst
í síma 696-4644