Fréttablaðið - 17.10.2015, Side 81
|Fólkheilsa
SÖLUSTAÐIR OG UPPLÝSINGAR Vörurnar eru fáanlegar í öllum apótekum, heilsuverslunum og
heilsuhillum stórmarkaðanna. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is
Ýmsar matvörur eða of stórir matarskammtar geta valdið útþenslu og
örvað sýruframleiðslu magans.
Við það myndast aukið álag á
ákveðna vöðva þannig að maga-
sýrurnar flæða upp í vélindað og
valda brjóstsviða. Frutin-töflurn-
ar innihalda náttúrulegar trefjar
sem geta komið í veg fyrir ein-
kenni brjóstsviða.
laus við brjóstsviðann
Helga Linda Gunnarsdóttir
hefur góða reynslu af náttúru-
legu Frutin- tyggitöflunum við
brjóstsviða. „Undanfarin ár hef
ég alltaf haft brjóstsviða og var
alltaf með lyf við brjóstsviðanum
á mér. Ég gat ekki verið án þeirra
og mér leið ekki vel. Ég var
komin í yfirþyngd og var alveg
að nálgast þriggja stafa tölu á
vigtinni. Þá ákvað ég að taka mig
til og leita leiða til að
ná heilsunni góðri.
Ég fór til Ingu Krist-
jánsdóttur heilsu-
þerapista og það var
alveg ótrúlegt hvað
hún gerði fyrir mig.
Hún sá fljótlega að
ég var með óþol fyrir
hveiti og mjólkurvör-
um og lagði upp nýtt
mataræði sem hentaði
mér,“ útskýrir Helga
Linda.
Það var eins og við
manninn mælt, Helga Linda
missti fljótlega mörg kíló,
brjóstsviðinn lagaðist og hún fór
að forðast fæðu sem olli henni
vanda. „Þó er það þannig að mig
langar nú alltaf annað slagið í
eitthvað sem ég veit að ég fæ
brjóstsviða af, svo sem vínglas,
súkkulaði og þess háttar.
Þegar ég sá Frutin auglýst
vakti það áhuga minn þar sem
það er alveg náttúruleg vara,
ekki tilbúið lyf. Það höfðaði til
mín og ég ákvað að prófa það,
og fann fljótt að það virkar mjög
vel á mig. Núna get ég stolist í að
fá mér góðgæti án þess að sofna
með brjóstsviða! Frábær lausn
fyrir mig.“
Frutin virkaði strax
Hanne er ein þeirra sem hafa átt
í stríði við magasýrurnar. „Ég á
erfitt með að viðurkenna að ég
borða ekki eins hollan mat og
ég ætti að gera. Ég á það til að
borða of stóra matarskammta og
elska feitan mat og franskar kart-
öflur. Þegar ég borðaði slíkan
mat flæddu magasýrurnar upp í
vélinda úr maganum með tilheyr-
andi vanlíðan. Þetta
var hræðileg bruna-
tilfinning og ég þurfti
samstundis að drekka
vatn eða mjólk. Stund-
um flæddu magasýr-
urnar líka upp í vél-
inda þegar ég lagðist
upp í rúm. Sérstak-
lega þegar ég borðaði
seint. Það var hræði-
legt. Ég fór í heilsubúð
og spurði hvort þau
ættu náttúrubætiefni
sem ég gæti tekið inn,“ seg-
ir Hanne. Það kom Hanne á óvart
þegar konan sem rekur verslun-
ina sagði að til væru töflur sem
hægt er að tyggja og innihalda
náttúrulegar trefjar úr appels-
ínum. „Afgreiðslukonan útskýrði
fyrir mér að þetta væru einu
Frutin er FrÁbÆr
lausn við brjóstsviða
iCeCare kYnnir Frutin eru náttúrulegar tyggitöflur unnar úr trefjum. Með því að nota þær er hægt að njóta þess að neyta fæðu sem
annars veldur brjóstsviða. Helga Linda Gunnarsdóttir notar Frutin-tyggitöflurnar, hún er ánægð með þær og finnst þær virka vel fyrir sig.
ÁnÆGð Hanne er ánægð með að geta verið laus við brjóstsviða með því að nota Frutin.
svefntruflanir geta stuðlað að vanlíðan. Við búum í hröðu og erilsömu samfélagi sem
veldur því að svefntruflanir eru
gríðarlega algengar. Ef þú færð ekki
nægan svefn geturðu fengið bauga
undir augun, húðin orðið föl og
einnig getur það valdið þyngdar-
aukningu þar sem þú eykur fram-
leiðslu á hormónum sem kalla fram
hungurtilfinningu.
laus við Fótaóeirð
Sigríður Helgadóttir fór að nota
Melissa Dream þegar hún var búin
að eiga nokkrar andvökunætur
vegna fótaóeirðar sem truflaði
svefn hennar. „Fótaóeirðin var
mjög óþægileg og hélt fyrir mér
vöku en ég er ekki vön að vera and-
vaka. Ég fór að leita mér ráða. Þá
sá ég reynslusögur í blöðunum um
Melissa Dream. Ég fór að lesa mér
til um vöruna og ákvað að prófa,
því það sakaði ekki að reyna.“
Sigríður tekur tvær töflur
klukkutíma fyrir svefn þegar
henni finnst hún þurfa á því að
halda. „Þá næ ég að sofna fljótlega
og svo finn ég ekki fyrir þessum
fótapirringi. Það sem mér finnst
líka æðislegt við þessar töflur
er að þær eru náttúrulegar og
hafa engin eftirköst þegar maður
vaknar. Ég þarf ekki að taka þær
á hverju kvöldi en mér finnst ég
ná að slaka svo vel á þegar ég
tek þær. Ég er mjög ánægð með
Melissa Dream og ég mæli með
því fyrir alla sem eiga erfitt með
svefn.“
sOFðu betur Með
Melissa DreaM
l Vísindalega samsettar náttúru-
vörur.
l Aðstoða þig við að sofa betur og
vakna endurnærð/ur.
l Innihalda ekki sljóvgandi efni.
l Innihalda náttúrulegu amínó-
sýruna L-theanine, sem hjálpar
til við slökun.
l Innihalda B-vítamín sem stuðla
að eðlilegri taugastarfsemi.
l Innihalda mikið magnesíum,
sem stuðlar að eðlilegri vöðva-
starfsemi og dregur þar með úr
óþægindum í fótum og hand-
leggjum.
Í betra jaFnvÆGi OG seFur
Miklu betur Með Melissa
Melissa DreaM Töflurnar fá þig til að sofa betur. Þetta er ekki lyf heldur náttúruleg vítamín og jurtir.
Fljót að sOFna Sigríður slakar vel á og sefur betur þegar hún tekur Melissa
Dream enda laus við fótaóeirð þegar hún tekur töflurnar. MYND/ERNIR
töflur sinnar tegundar sem inni-
halda þessar einstöku trefjar úr
appelsínum. Trefjar sem eru svo
sérstakar að þær mynda nátt-
úrulega róandi froðu yfir efsta
hluta magans sem hjálpar til við
að hindra að magasýrurnar flæði
upp í vélindað. Það hljómaði vel
og ég var tilbúin að prófa þær
náttúrulegu meðferðir sem eru
í boði,“ segir Hanne. Töflurnar
virkuðu strax og nú er Hanne
alltaf með töflurnar meðferðis,
hvert sem hún fer. „Ég er með
pakka í eldhúsinu, á náttborðinu
og í bílnum.“
MarGt velDur brjóstsviða
Ákveðnar fæðutegundir sem
margir eru hrifnir af og myndu
helst vilja neyta í hvert mál eru
þekktar fyrir að valda brjóstsviða.
Kaffi, gos, te og annan vökva eða
mat sem inniheldur koffín ætti að
varast því það getur valdið brjóst-
sviða. Vín, bjór og kokteilar geta
valdið brjóstsviða því alkóhól
slakar á hringvöðva vélindans
og því ná magasýrurnar að flæða
upp í vélindað. Sömu sögu er að
segja af súkkulaði. Hnetur, ostar,
lárperur og safaríkar steikur eiga
það sameiginlegt að vera feitur
matur. Fita hægir á tæmingu
magans sem getur aukið þrýsting
á hringvöðva vélindans og valdið
brjóstsviða. Einnig geta sítrus-
ávextir; appelsínur, greipaldin og
ávaxtasafar, valdið brjóstsviða.
Frutin getur hjálpað þér að neyta
þessarar fæðu án þess að þú eigir
á hættu að fá óþægindi eftir mál-
tíðina.
Takið 1-2 töflur eftir þörfum.
Barnshafandi konur geta notað
Frutin. Börn undir 12 ára mega
ekki nota Frutin. Inniheldur ein-
göngu náttúruleg efni svo sem
Dolomita-kalk og piparmyntu.