Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 14
Náttúrufræðingurinn
66
Umræður
Undanfarna áratugi hefur aðgengi
að víðernum hálendisins aukist gíf-
urlega, einkum í kjölfar virkjunar-
framkvæmda. Það, ásamt auknum
frítíma fólks og stærri, kröftugri og
fjölbreyttari ökutækjum, hefur leitt
til þess að hálendið hefur á stuttum
tíma breyst úr óaðgengilegum víð-
ernum í leikvöll afþreyingar. Anna
Dóra Sæþórsdóttir o.fl.17 benda á
að með aukinni ásókn ferðamanna
á hálendið hefur stöðugt þurft að
byggja upp aðstöðu og bæta inn-
viði til að taka á móti æ fleiri
ferðamönnum. Þau benda jafnframt
á að með slíkri þróun telja margir
ferðamenn að víðernum landsins sé
ógnað. Þetta er í samræmi við niður-
stöður nýlegrar rannsóknar1 sem
sýnir að aðdráttarafl hálendisins
felst einkum í fámenni og fjarveru
hins manngerða, ásamt draumnum
um að upplifa eitthvað ósnortið og
ósvikið. Aukin uppbygging inn-
viða á hálendinu vegna vaxandi
eftirspurnar undirstrikar þannig
mótsögnina sem er á milli víðerna,
sem eiga að standa fyrir ímynd
hins ósnortna og óspillta, og þeirrar
staðreyndar að ferðamennska spillir
víðernum sem slíkum.
Það er vandasamt verkefni að
viðhalda ímynd ósnortinna víðerna
á vinsælum ferðamannastöðum þar
sem ferðamennska er háð aðgengi
og annarri uppbyggingu til að geta
þrifist. Víðerni landsins einkennast
auk þess flest af mjög viðkvæmum
vistkerfum, þar sem aukið álag
ósjálfbærrar ferðamennsku getur
auðveldlega raskað ríkjandi jafn-
vægi og þannig leitt til alvarlegrar
landhnignunar.18,19,20 Þessi stað-
reynd undirstrikar mikilvægi þess
að bæði skilja og þekkja þá dýrmætu
auðlind sem fólgin er í víðernum
65
%
32
%
18
%
3,8
%
0
10
20
30
40
50
60
70
Þjóðgarðar
Friðlönd
Fólkvangar
<=>?r@vAB
!
"#
$
%"
"&'
()
*+
,%
&
9. mynd. Hlutfall friðlýstra svæða sem eru laus við sjónræn áhrif mannvirkja. – Proportion
of protected areas free from anthropogenic structures.
8. mynd. Tengsl víðerna, þ.e. svæða sem laus eru við sjónræn áhrif mannvirkja, og friðlýstra svæða. – Relationship of Icelandic wilderness
areas, i.e. areas free from anthropogenic structures, and protected areas.
81_2#profork070711.indd 66 7/8/11 7:41:28 AM