Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 31
83
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Þótt djúpsjórinn í úthafinu sé erfitt umhverfi að lifa í, þá finnum við þarna fulltrúa
næstum allra fylkinga dýraríkisins. Þeir þurfa allir að takast á við sömu vandamál eða
áskoranir, þ.e. að afla fæðu, forðast afræningja og finna maka. Hvernig skyldu þau mál
vera leyst? Ljósm.: David Shale.
Fjölbreytni vistkerfa og
tegundafjölbreytni
Tegundafjölbreytni vistkerfa og það
hvernig tegundir tengjast í fæðuvefi
eru mikilvægir fletir á hugtakinu
lífbreytileiki og það kemur mörgum
á óvart hve lítið við vitum um
þessa hlið þeirra vistkerfa sem við
byggjum afkomu okkar á, til dæmis
vistkerfis hafsins. Þetta kom fram í
inngangserindi Ástþórs Gíslasonar
þar sem hann fjallaði um sameigin-
legt rannsóknarátak sextán þjóða á
vistkerfum Mið-Atlantshafshryggj-
arins milli Íslands og Asoreyja
(MARECO - Patterns and Processes
of the Ecosystems of the northern
Mid-Atlantic Ridge). Markmiðið var
að rannsaka lífbreytileika og fæðu-
tengsl lífvera á og yfir hryggnum og
greina þá haf- og líffræðilegu ferla
sem valda breytingum á þessum
þáttum. Rannsóknin, sem kannaði
lífríki botnsins og uppsjávar frá
yfirborði og niður á 4.500 m dýpi,
er á lokastigi. Niðurstöður sýna að
þarna er að finna afar auðugt og
fjölbreytt lífríki, á köflum í líkingu
við sjálft landgrunnið, og var það
einstaklega auðugt um miðja vegu
eftir hryggnum við skil tiltölulega
hlýs Atlantssjávar í suðri og kaldari
sjávar í norðri. Fjölmargar fágætar
tegundir og nokkrar sem eru nýjar
fyrir vísindin fundust í þessum
rannsóknum (1. mynd). Á land-
grunni er hvað mest fjölbreytni
tegunda tengd kóralsvæðum. Um
rannsóknir á þeim og þá ógn sem að
þeim steðjar vegna togveiða fjallaði
erindi Steinunnar Hilmu Ólafs-
dóttur. Rannsóknir á fjölbreytni
þörungaflórunnar umhverfis landið
og breytingum á henni í kjölfar
hlýnunar kynnti Karl Gunnarsson
og Svanhildur Egilsdóttir á vegg-
spjaldi.
Við höfum heldur greiðari aðgang
að vistkerfum lands og því ástæða
til að ætla að þekking okkar á fjöl-
breytni þeirra sé mun meiri. Það er að
mörgu leyti rétt; útbreiðsla og fjöldi
tegunda er almennt betur þekkt á
landi en í sjó, en þó skortir enn
þekkingu á því hvernig lífveruhópar
raðast saman í samfélög og mynda
fæðuvefi. Sigurður Magnússon gerði
grein fyrir umfangsmiklu verkefni
Náttúrufræðistofnunar Íslands við
flokkun vistgerða á hálendi Íslands,
sem tekur til plantna og dýra á yfir-
borði lands. Lífríki jarðvegs, sem er
vissulega hluti af vistkerfum lands,
má hins vegar að mörgu leyti líkja
við lífríki djúpsjávar: Hið smásæja
en flókna lífríki jarðvegs er okkur
hulið og bygging þess og starfsemi
merkilega lítið þekkt sé haft í huga
að 99% af fæðuframleiðslu jarðar
byggist á því. Á sama hátt og í
hafinu eru enn fjölmargar tegundir
í jarðvegi sem hefur aldrei verið lýst,
einkum meðal örvera og smásærra
hryggleysingja, en með nýrri tækni
hafa opnast möguleikar til frekari
rannsókna. Um þetta fjallaði erlendur
gestur ráðstefnunnar, Simon Jef-
fery, frá Joint Research Centre (JRC)
Evrópusambandsins í Ispra á Ítalíu.
Hann kom hingað til lands til að
kynna nýútkomið yfirlitsrit (atlas)
yfir lífbreytileika jarðvegs í Evrópu
sem hefur það markmið að vekja
bæði lærða og leika til umhugsunar
um lífríki jarðvegs sem þýðing-
armikla auðlind og mikilvægi þess
að vernda þá auðlind.
En það er fleira sem hefur verið
okkur hulið en tegundir djúpsjávar
og jarðvegs, því nýlega fundust hér á
landi tvær tegundir marflóa í grunn-
vatni sem báðar eru einlendar fyrir
Ísland og hafa að öllum líkindum
lifað af jökulskeið ísaldarinnar. Í
erindi sínu skýrði Etienne Kornobis
frá rannsóknum á flokkun þeirra,
byggðri á sameindabreytileika, sem
staðfesta að báðar tegundirnar séu
einlendar og jafnframt að önnur
þeirra sé það frábrugðin öðrum
þekktum tegundum að hún tilheyri
eigin ætt.
Til að varðveita tegundafjöl-
breytni er fyrsta skrefið vissulega
að lýsa fjölbreytninni. Næsta skref
er að skilja hvaða þættir móta hana
á mismunandi kvörðum í tíma og
rúmi og síðan hvaða áhrif fjöl-
breytnin hefur á starfsemi vistkerfa.
Jón Sólmundsson fjallaði um mótun-
arþætti tegundafjölbreytni meðal
fiska hafsins umhverfis Ísland og
Ingibjörg Svala Jónsdóttir fjallaði
um þá þætti sem hugsanlega móta
tegundafjölbreytni meðal plantna
í landslagi. Rannsóknir Ute Sten-
kewitz og fleiri á tegundafjölbreytni
sníkjudýra í rjúpu og rannsóknir
81_2#profork070711.indd 83 7/8/11 7:41:46 AM