Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 23
75
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
að kanna hvort þetta ójafnvægi
hefði mikil áhrif var gerð þríþátta
fervikagreining sem tók tillit til
allra þáttanna samtímis. Þá lækkaði
skýringarhlutfall landshluta niður í
4% og vistkerfis niður í 0% (2. tafla;
F-gildi). Þetta sýnir í raun takmark-
anir í uppsetningu verkefnisins til
að meta mun á milli landshluta eða
vistkerfis án þess að taka tillit til
aldurs. Þessar niðurstöður staðfesta
jafnframt að áhrif landshluta og
vistkerfis á tegundaauðgi eru lítil.
Það kom talsvert á óvart að ekki
reyndist vera marktækur munur á
tegundaauðgi skóglauss mólendis
í samanburði við gróðursetta barr-
skóga og sjálfsána birkiskóga eða
á milli náttúrulegra birkiskóga og
manngerðra barrskóga. Almennt
er talið að tegundaauðgi minnki í
manngerðum vistkerfum, eins og
ræktaðir skógar með innfluttum
trjátegundum eru.68,69 Þetta er þó alls
ekki einhlítt, svo sem komið hefur
fram í rannsóknum á einstökum
lífveruhópum, t.d. í Svíþjóð70 og á
Bretlandseyjum.71,72 Í samantektar-
grein sinni bendir Hartley (2002)73
á að gróðursettir skógar séu líklegri
til að auka tegundaauðgi á svæðum
þar sem mikil jarðvegs- og skógar-
eyðing hefur átt sér stað. Leiða má
líkur að því að sú sé hugsanlega
ástæðan fyrir niðurstöðunum sem
fengust í þessu rannsóknaverkefni.
Framvinda og tegundaauðgi
Teigunum var skipt í fjögur fram-
vindustig óháð landshluta og vist-
kerfi: 1) mólendi, 2) ungir skógar, 3)
myrkvaskeið (ógrisjaðir barrskógar)
og 4) eldri skógar (eldri birkiskógar
og grisjaðir barrskógar) (6. mynd).
Sjá má nánari umfjöllun um fram-
vindustig í ramma um skógarfram-
vindu. Marktækur munur var á teg-
undaauðgi þessara framvindustiga
(aldur skóga) en þau útskýrðu 85%
af breytileikanum (2. tafla). Fram-
vindustigið var einnig eini þáttur-
inn sem var marktækur þegar lands-
hluti, vistkerfi og framvindustig
voru greind saman með þríþátta
fervikagreiningu, og þegar tillit
var tekið til allra þátta samtímis
breyttist skýringarhlutfall aldurs í
63% (2. tafla; F-gildi).
Að jafnaði voru 207 tegundir í
mólendi en fyrst eftir gróðursetn-
ingu eða sjálfsáningu fjölgaði teg-
undum og fundust að jafnaði 234
tegundir í ungum skógum. Þar var
tegundaauðgin jafnframt marktækt
meiri en á öðrum framvindustigum
(2. tafla). Ástæðu þessa má líklegast
bæði rekja til áhrifa beitarfriðunar
við upphaf skógræktar og þess að
í ungum, opnum skógi verða til
fjölbreyttari búsvæði sem henta
bæði lífverum sem hafa aðlagast
bersvæðum og skógum. Þannig
raðast saman allir yngstu skógarnir,
óháð trjátegund og landshluta. Þessi
áhrif komu einnig fram í ungum
sjálfsánum birkiskógi á Austur-
landi (BA1).
Á myrkvaskeiði, þegar skógarnir
eltust og urðu þéttari, fækkaði teg-
undum að jafnaði niður í 159 og var
tegundaauðgin á því stigi marktækt
minnst (2. tafla). Á þessu stigi hurfu
margar tegundir sem voru aðlag-
aðar opnum búsvæðum en aðrar
aðlagaðar skóginum höfðu ekki
náð að nema land og fylla í skarðið.
Í þennan hóp falla ógrisjuðu barr-
skógarnir (G2, G3, F2, F3, L4) og
birkiskógurinn í Litla-Skarði (BV2),
sem var eina svæðið sem ekki hafði
verið fyrirfram valið í þann flokk
(6. mynd). Sá skógur er gamall birki-
skógur sem var friðaður fyrir beit
1985 og einkennist af miklum og
2. tafla. Einþátta fervikagreining á breytileika í tegundaauðgi milli landshluta, vistkerfa
og framvindustiga skóga. Mismunandi bókstafir í aftasta dálki sýna marktækan mun á
milli hópa (P<0,05). Neðst er sýnd útkoma úr þríþátta fervikagreiningu þar sem allar
flokkunarbreyturnar voru greindar saman. – One-way ANOVA was run on variance of
species richness among study areas, forest types and successional stages. Different letters
in the last column represent significant differences (P<0.05). Three-way ANOVA was
applied for all three factors and is shown at the bottom of the table. “Fjöldi tegunda”=number
of species and “Fjöldi mæliteiga”=number of stands.
Breyta Fjöldi tegunda Fjöldi
mæliteiga
ANOVA
Meðaltal±SE N R2 F-gildi P-gildi
Landshlutar 195,8±7,7 19 0,19 3,94 0,06
Vesturland 183,8±8,8 11 a
Austurland 212,4±11,8 8 a
Vistkerfi 195,8±7,7 19 0,21 0,91 0,48
Mólendi 207,0±3,0 2 a
Birki 200,0±14,2 5 a
Lerki 212,0±16,9 5 a
Fura 170,7±25,1 3 a
Greni 183,8±14,1 4 a
Framvindustig 195,8±7,7 19 0,85 28,2 <0,001
Mólendi 207,0±3,0 2 a
Ungir skógar 233,5±5,9 6 b
Myrkvaskeið 159,0±7,0 6 c
Eldri skógar 190,4±4,9 5 a
Allir þættir Módel 19 0,93 5,3 0,03
3-þátta ANOVA Landshluti 1,02 0,46
Vistkerfi 0,02 0,90
Framvindustig 23,0 0,003
Samspil 0,37 0,87
81_2#profork070711.indd 75 7/8/11 7:41:42 AM