Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 22

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 22
Náttúrufræðingurinn 74 Niðurstöður og umræða Landshlutar og vistkerfi Í rannsókninni kom hvorki fram marktækur munur á tegundaauðgi eftir landshlutum né vistkerfum (2. tafla). Einungis um 19% breytileik- ans í tegundaauðgi voru útskýrð með muni á milli landshluta og 21% mátti rekja til vistkerfa, þ.e. mólendis og mismunandi skógar- gerða, óháð aldri þeirra. Þessar niðurstöður fyrir mismunandi vistkerfi voru sambærilegar þeim er fengust í rannsókn Corney og félaga (2006)67, sem sýndi að tengsl ákveðinna trjátegunda og gróður- fars á skógarbotni í Bretlandi væru fremur veik miðað við ýmsa aðra umhverfisþætti. Einungis hluti vistkerfa (mólendi og birkiskógar) var rannsakaður í báðum landshlutum en barrskógar- gerðirnar þrjár voru eingöngu í öðrum af tveimur landshlutunum. Einnig var aldur ólíkra skógargerða ekki alltaf sá sami. Þennan veikleika í uppsetningu verkefnisins þarf að hafa í huga þegar tölfræðilegar niðurstöður þess eru skoðaðar. Til 5. mynd. Hluti mæliteiga sem rannsakaðir voru í verkefninu og voru á mismunandi aldri. Merkingar á mynd vísa í mæliteiga, sbr. 1. töflu. – Examples of study stands, see Table 1. Ljósm./Photos: Ásrún Elmarsdóttir & Borgþór Magnússon. MA G4G3G1 L5L4L1 BA1 BA2 F1 F2 F3 81_2#profork070711.indd 74 7/8/11 7:41:42 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.