Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 18
Náttúrufræðingurinn
70
Líffræðileg fjölbreytni
Samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni, sem tók gildi árið 1992, fjallar um vernd líffræðilegrar
fjölbreytni og sjálfbæra nýtingu lífríkis.41 Samningurinn gerir ráð fyrir að maðurinn sé hluti af náttúrunni og nýti
hana, en honum sé jafnframt skylt að huga að áhrifum nýtingarinnar á vistkerfin. Víða hefur verið bent á mikilvægi
þess að viðhalda fjölbreytni í náttúrunni, m.a. til að tryggja viðgang náttúrulegra ferla, vegna óþekktra verðmætra
erfðaauðlinda og náttúruverndar42 (1. mynd).
Hugtakið líffræðileg fjölbreytni skírskotar til fjölbreytileika alls lífs og nær yfir marga þætti þess, svo sem fjölbreytni
gena, tegunda, vistkerfa og landslagsheilda en einnig samspil þessara þátta.43,44 Ekki hefur reynst raunhæft að meta
líffræðilega fjölbreytni út frá öllum þessum þáttum í senn. Því hefur mat á líffræðilegri fjölbreytni, eins og hún er
skilgreind í samningnum, nánast aldrei farið fram. Oftar en ekki hefur verið litið til fjölda tegunda (tegundaauðgi) á
viðkomandi svæði til að meta líffræðilega fjölbreytni þess.45 Gallinn við þetta viðmið er hættan á að tegundasnauð
svæði verði út undan í náttúruvernd og sú staðreynd að tegundaauðgi endurspeglar ekki endilega hlutfallslega
samsetningu tegunda eða fjölbreytileika ferla.
Mikil vinna getur falist í því að afla gagna um allar tegundir á tilteknu svæði og því hafa menn gjarnan notað vísi-
breytur sem mælikvarða á tegundaauðgi og þar af leiðandi einnig á líffræðilega fjölbreytni. Í þeim tilvikum hafa
menn t.d. notað fjölbreytni ákveðinna lífveruhópa, fjölda ákveðinna lykiltegunda eða fjölda gróðursamfélaga og
búsvæða.46 Hins vegar hafa rannsóknir sýnt að vanda þarf val lífveruhópa sem nota á sem vísibreytur þar sem
niðurstöður eru breytilegar eftir hópum. Ekki er heldur gefið að sömu vísibreytur nýtist á ólíkum svæðum.
Sem fyrr segir er líffræðileg fjölbreytni oft metin út frá tegundaauðgi og henni hefur verið skipt í þrjár gerðir eftir
því hvaða kvarði er notaður.47
Alfa-fjölbreytni er tegundaauðgi innan afmarkaðs svæðis í rúmi eða samfélags, t.d. innan ákveðinnar skógargerðar.
Segja má að flestir tengi mat á líffræðilegri fjölbreytni þessari túlkun, þ.e. þeirri tegundaauðgi sem viðkomandi
skynjar innan svæðis.
Beta-fjölbreytni metur tegundaauðgi milli svæða eða samfélaga, oft eftir ákveðnum fallanda, t.d. breytingu á
tegundaauðgi á mismunandi stigum framvindu eða eftir fallanda í ólífrænum þáttum, svo sem halla eða raka í
jarðvegi. Beta-fjölbreytni byggist þannig á breytileika alfa-fjölbreytninnar eftir viðkomandi fallanda.
Gamma-fjölbreytni vísar til heildar-tegundaauðgi á stærri kvarða þar sem bornar eru saman t.d. landslagsheildir,
sem eru þá mósaík mismunandi gróðurlenda og framvindustiga. Þetta eru yfirleitt stór samfelld svæði, svo sem
heil fjöll eða sveitarfélög eða svæði þar sem loftslag er ólíkt. Gamma-fjölbreytni byggist bæði á alfa- og beta-
fjölbreytni.
1. mynd. Í vistkerfum skiptast lífverur í mismunandi fæðuþrep
þar sem orka og efni flæða á milli. Líffræðileg fjölbreytni er
undirstaða þessarar virkni, þar sem tegundir framleiða líf-
massa, neyta hans og brjóta niður. Í SKÓGVIST voru valdir
lífveruhópar úr mismunandi fæðuþrepum til þess að meta
áhrif skógræktar á tegundaauðgi. – Biodiversity is essential
for ecosystem function. Species produce biomass, consume
and decompose it; hence energy and material flow between
layers. In the present project, groups from different tropic
layers were studied to evaluate the effect of afforestation on
species richness.
framvindu í kjölfar lúpínusáninga á
uppgræðslusvæðum víða um land
sýndi jafnframt að tegundaauðgi
háplantna var að jafnaði mest á rýru
mólendi en minnkaði síðan bæði eftir
því sem gróðurlendi urðu rýrari og
frjósamari.18 Færri rannsóknir hafa
verið gerðar á öðrum lífveruhópum
en rannsóknir á vistgerðum sýndu
Algengast er að mólendi sé
valið til skógræktar hér á landi og
er það um 53% alls skógræktar-
lands.14 Fyrri rannsóknir hafa sýnt
að mólendi er einna tegundaríkast
íslenskra gróðurlenda af háplöntum
og lágplöntum.15,16 Á láglendi hefur
mólendi verið skipt upp í ríkt og
rýrt mólendi.17 Rannsókn á gróður-
(Picea sitchensis) og stafafura (Pinus
contorta), en þessar þrjár tegundir
eru um helmingur skógarplantna
sem gróðursettar eru árlega. Ýmsum
öðrum tegundum er plantað. Næst
á eftir fyrrnefndum tegundum koma
alaskaösp (Populus trichocarpa) og
blágreni (Picea engelmannii), en í
mun minna mæli.
81_2#profork070711.indd 70 7/8/11 7:41:29 AM