Náttúrufræðingurinn - 2011, Qupperneq 21
73
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Vesturlandi voru fjórir 9–43 ára
gamlir sitkagreniskógar (G1–4) og
þrír 14–46 ára stafafuruskógar (F1–3)
í Skorradal mældir og hafði elsti
greniskógurinn (G4) verið grisjaður
einu sinni. Einnig voru mældir
þrír gamlir birkiskógar: lágvaxinn
skógur á Háafelli í Skorradal (BV1),
lágvaxinn skógur í Litla-Skarði í
Norðurárdal (BV2) og hávaxinn
skógur í Vatnshorni í Skorradal (BV3).
Á Vesturlandi var því enginn ungur
birkiskógur eins og á Austurlandi.
Til samanburðar var beitt mólendi á
Háafelli (MV) en einnig voru fuglar
taldir í mólendi í Lundarreykjadal.
Mæliteigarnir voru flestir 3–10 ha
að stærð að undanskildum elsta furu-
teignum (F3) og næstyngsta greni-
teignum (G2), sem hvor um sig voru
1–2 ha, og birkiskóginum í Litla-Skarði
(BV3) sem var tæplega 14 ha (1. tafla).
Allir skógarteigarnir voru hluti af
stærra samfelldu skóglendi. Þetta var
mikilvægt til að tryggja að jaðaráhrif
væru sem minnst í rannsókninni en
þekkt er að tegundaauðgi í litlum
einangruðum skógarlundum er ekki
sú sama og í samfelldum skógum.53
Skógarnir voru misgamlir og
kemur það fram í mælingum á yfir-
hæð (meðalhæð hæstu trjáa) og hæð
laufkrónu (4. mynd), auk þéttleika
og grunnflatar trjáa (1. tafla, 5. mynd).
Birkiskógarnir voru lágvaxnari á
Vesturlandi en á Austurlandi en sá
landshlutamunur er vel þekktur
og hefur verið tengdur erfðafræði
og uppruna birkis í þessum lands-
hlutum.54 Eldri barrskógarnir voru
mun hávaxnari en birkiskógarnir
og það, ásamt þéttari laufkrónu
þeirra, jók skuggun á skógarbotni
(1. tafla). Birki er ein ljóselskasta
trjátegundin sem myndar skóga á
norðlægum slóðum55 og því er nátt-
úruleg grisjun birkiskóga hröð og
þeir eru fremur opnir, eða yfirleitt
með um 60% þekju laufþaks á
rannsóknasvæðunum (1. tafla).
Ógrisjuðu miðaldra barrskógarnir
(L4, F2, F3, G2, G3) voru hins vegar
gjarnan með 80–100% krónuþekju
og komst því lítið sólarljós niður á
skógarbotninn. Við þau skilyrði er
uppskera botngróðurs rýr.56 Frekari
upplýsingar um rannsóknasvæðin
er að finna í Bjarni Diðrik Sigurðs-
son o.fl. (2006)57 og Ásrún Elmarsdóttir
o.fl. (2007)58.
Mælingar á tegundaauðgi
Í hverjum mæliteig voru lagðir
út fimm mælireitir (2x50 m) eftir
GPS-hnitum sem valin voru af
handahófi. Í hverjum reit voru
tekin jarðvegssýni og jarðvegsdýr
(ánamaðkar og mordýr) flæmd úr
þeim til greiningar og talningar.59,60
Einnig var hryggleysingjum á yfir-
borði safnað í fallgildrur61 en í
þær veiddust m.a. flugur, fiðrildi,
bjöllur, köngulær og sniglar. Allar
háplöntur voru skráðar í mælireit og
sýnum af mosum og fléttum safnað
til síðari greininga.62 Sveppateg-
undir voru skráðar að hausti innan
hvers mæliteigs án þess að notaðir
væru afmarkaðir mælireitir.63 Við
talningu á varpfuglum þurfti stærri
svæði en mæliteigarnir buðu upp
á. Þannig var talið í beittu mólendi,
sjálfsánum birkiskógum og barr-
skógum. Á Austurlandi var talið í
lerkiskógum þannig að hægt var að
greina á milli ungra, miðaldra og
gamalla skóga, en á Vesturlandi var
talið í blöndu af miðaldra greni-
og furuskógum.64,65 Við talningu
á varpfuglum í opnu landi voru
notuð snið en í skóglendi var talið
á punktum.66
Heildarfjöldi tegunda og fjöldi
tegunda innan einstakra lífveru-
hópa í hverjum mæliteig var borinn
saman milli landshluta, vistkerfa
og framvindustiga (aldursflokka).
Þar sem ekki reyndist mögulegt að
fá sjálfstætt mat á stofnstærð fugla
innan hvers mæliteigs var sami
fjöldi fuglategunda notaður í öllum
furu- og greniskógum á Vesturlandi,
óháð aldri. Einnig var sami fjöldi
varpfugla notaður fyrir L2 og L3 á
Austurlandi.
Við skipulagningu verkefnisins
voru valdir mæliteigar á mismun-
andi aldri (framvindustigum). Þeirri
upphaflegu skiptingu var haldið í
þessari úrvinnslu, nema fyrir eitt
svæði. Birkiteigurinn í Litla-Skarði
var færður úr flokknum eldri
skógar yfir í skógar á myrkvaskeiði.
Einþátta fervikagreiningu var beitt
til að kanna hvort munur væri á
heildarfjölda tegunda á milli lands-
hluta, gróðurlenda og framvindu-
stiga (aldurs) skóganna. Greiningin
studdist við heildarfjölda tegunda á
hverjum mæliteig, með hvern teig
sem eina endurtekningu. Þar sem
fervikagreining var marktæk var
„post-hoc Fisher’s least significance
difference“-próf notað til að meta
marktækni innan flokka. Að lokum
var munur á öllum flokkunar-
breytum kannaður samtímis með
þríþátta fervikagreiningu, en með
því að bera saman F-gildin fyrir
mismunandi þætti sést hlutfallslegt
mikilvægi þeirra í breytingum á
tegundaauðgi.
4. mynd. Meðalhæð ± SE hæstu trjáa (yfirhæð) á Austur- og Vesturlandi (meðaltal 5 mæli-
reita). Græni hlutar súlna sýna hæð lifandi trjákrónu í hverjum teig og sá grái hæð stofns.
Dökkgrænn litur = barrtré, ljósgrænn = birki. – Average dominant height of trees of each
forest stand in the two study areas. Green coloured bars indicate average canopy depth and
gray height of stems. Darkgreen=conifers, lightgreen=birch.
81_2#profork070711.indd 73 7/8/11 7:41:30 AM