Náttúrufræðingurinn - 2011, Page 24
Náttúrufræðingurinn
76
þéttum endurvexti74, sem útskýrir
eflaust hvers vegna hann raðaðist
með myrkvaskeiðinu.
Síðasta skeiðið var að finna í elstu
ræktuðu skógunum sem hafa verið
grisjaðir (L5, G4) og í gömlum birki-
skógum á Austur- og Vesturlandi
(6. mynd). Í þeim fundust að jafnaði
190 tegundir og var fjöldi tegunda
ekki marktækt frábrugðinn því sem
var í skóglausu, beittu mólendi (2.
tafla). Áhrif skóga á tegundaauðgi
viðkomandi svæðis velta því meira
á aldri skóganna, framvindustigi og
umhirðu en því hvort um er að ræða
sjálfsána birkiskóga eða gróðursetta
barrskóga.
Hér kemur berlega í ljós að það
skiptir miklu hvaða framvindustig
skóga er valið til samanburðar við
mólendi. Niðurstöðurnar sýna að
ef aðeins eitt framvindustig hefði
verið valið til samanburðar gæti
niðurstaðan orðið sú að skógar
ýmist auki, minnki eða hafi ekki
marktæk áhrif á tegundaauðgi, allt
eftir því hvaða framvindustig var
valið. Það sama gildir ef birkiskógar
á einu framvindustigi eru bornir
saman við ræktaða barrskóga á
öðru framvindustigi. Þetta er þekkt
vandamál í skógvistfræði og veldur
að hluta þeim mikla breytileika sem
er að finna í niðurstöðum mismun-
andi rannsókna á tegundaauðgi þar
sem ekki hefur verið tekið tillit til
framvindustigs skóga.75,76
Spyrja má hvort það hafi ekki
verið mistök í uppsetningu verk-
efnisins að taka skóga af mismun-
andi framvindustigum og bera
þá saman við eina ríkjandi gerð
mólendis í hvorum landshluta. Því
er til að svara að höfundar telja að
hóflega beitt mólendi sé stöðugra
framvindustig en skógarvistkerfi
sem flytjast á milli framvindustiga
6. mynd. Tegundaauðgi í öllum mæliteigum (meðaltal fimm mælireita). Brotnar línur sýna
meðalfjölda tegunda á hverju framvindustigi og örvar sýna einfalda mynd af þeim breyt-
ingum sem verða á tegundafjölda þegar mólendi breytist í skóg. Dökkgrænt=barrtré, ljós-
grænt=birki, grátt=mólendi. – Total species richness within a study stand. Dashed lines
indicate average species richness within a stand and arrows show in a simple way changes
that occure as a forest grows up. Darkgreen=conifers, lightgreen=birch, grey=heathland.
Framvinda skóga eftir aldri
Þegar skóglaust land breytist í skóg með sjálfsáningu eða ræktun hefst ferli breytinga sem nefnist skógarfram-
vinda.79,80 Slíkri framvindu er oft skipt upp í fjögur meginskeið:
Á nýliðunarskeiði (e. establishment phase) eru trjáplöntur litlar og hafa því nægt vaxtarrými, eiginlegt laufþak hefur
ekki myndast. Næg birta er á skógarbotni og lágvaxnar plöntur veita trjáplöntum samkeppni um ljós og vaxtarrými.
Lengd þessa skeiðs veltur á þéttleika ungplantna og vaxtarhraða.
Myrkvaskeið (e. exclusion phase) hefst þegar trén hafa vaxið upp í vaxtarrými sitt og laufþakið tekur að lokast. Einstök
tré keppa um vaxtarrými og ljós. Þá minnkar yfirleitt uppskera og tegundum fækkar á skógarbotni vegna minnkandi
birtu. Þetta skeið er mislangt eftir trjátegundum og veltur einkum á hversu skuggþolnar þær eru. Birki er mjög
ljóselskt og því stendur skeiðið sjaldan mjög lengi í íslenskum birkiskógum.
Gisnunarskeið (e. vegetation reinitiation phase) hefst þegar sjálfgrisjun er hafin í náttúrulegum skógi. Birta eykst aðeins
á skógarbotninum og fleiri plöntutegundir geta dafnað þar. Á þessu skeiði myndast yfirleitt runnalag eða aðrar
skuggþolnari trjátegundir byrja að mynda laufkrónuna með ríkjandi trjátegund. Á Íslandi er birkið hins vegar eina
innlenda trjátegundin sem myndar samfellda skóga og því ekki aðrar trjátegundir sem koma inn. Því eru birkiskógar
endastig framvindu hér á landi.81 Í ræktuðum skógum er grisjun beitt til að stytta myrkvaskeiðið og koma skógum
beint yfir í gisnunarskeiðið. Með því er unnt að hámarka hlutfall sverra trjáa.
Gamalgrónir skógar (e. old-growth phase) er það kallað þegar lundir blandast tegundum og kynslóðum trjáa. Skugginn
af eldri trjánum kemur í veg fyrir nýliðun nema laufþakið opnist verulega. Birkiskógar mynda sjaldan kynslóða-
blandaða lundi vegna þess hversu ljóselsk tegundin er.82,83 Þeir endurnýja sig yfirleitt með teinungum frá rótarhálsi
eftir að stofnar hafa fallið úr elli eða með fræi ef meiriháttar rask (svo sem stormfall, snjóflóð, skriður eða skógareldar)
hefur opnað skógarbotninn. Ræktaðir skógar ná sjaldan þessu skeiði vegna nýtingar þeirra.
81_2#profork070711.indd 76 7/8/11 7:41:42 AM