19. júní


19. júní - 19.06.2007, Side 9

19. júní - 19.06.2007, Side 9
færir í sínu fagi en á vantar þó ef þeir hafa ekki viðhorfin á hreinu. Það má því segja að með víð­ tækum undirbúningi kennara á þessu sviði væri hægt að hafa mótandi áhrif á viðhorf komandi kynslóða til jafnréttismála og stöðu kynjanna. Gera þarf kennara hæfari til að nota tæki­ færi sem gefast til umræðu um málefni tengd kynjunum út frá sjónarmiðum jafnréttis. Þessu má ná með því að flétta kynjafræði í nám kennara og búa til ímyndað­ ar aðstæður sem byggja á raun­ veruleikanum og kenna þeim að bregðast við þeim. Kennarar hafa ekki nægan undirbúning til þessa í dag, en nú er tækifærið að breyta því. Unnið er nú að sameiningu Háskóla Íslands og Kennara­ háskóla Íslands og hún mun eiga sér stað 1. júlí 2008 ef allt gengur eftir. Kennaranámið verður þá lengt í fimm ár. Hagsmunasam­ tök sem munu koma að vinnu við mótun og áherslur námsins ættu að huga að undirbúningi kennara á grunn­ og leikskólastigi fyrir uppákomur í starfinu sem lúta að kynjunum. Kynjafræði þarf að gera að skyldufagi í kennaranámi og gera því hátt undir höfði. Stefnum á að vera fremst meðal jafningja í alþjóðasamfélaginu í þessum efnum. Atvik 1: Í tölvutíma hjá 12 ára nemendum komust tveir drengir inn á síður sem sýndu fáklætt kvenfólk í klámfengnum stellingum. Ein stúlkan í bekknum kvartaði yfir þessu við kennarann. Þetta var kvenkyns kennari að kenna sinn fyrsta vetur eftir útskrift. Kennar­ inn hastaði á stúlkuna og sagði: „Passaðu bara rassinn á sjálfri þér.“ Hún brást ekki við athæfi drengjanna í tímanum heldur sagðist hún hafa talað við drengina eftir tímann og sagt þeim að þetta mættu þeir ekki gera í tíma. Hún hefði ekki viljað niðurlægja þá fyrir framan bekk­ inn með því að fjalla um þetta atvik að bekkjarfélögunum við­ stöddum. Þessi viðbrögð kenn­ arans sýna ótrúlega meðvirkni með karlasamfélaginu. Ekki mátti setja ofan í við piltana opinber­ lega en skamma mátti stúlkuna sem kvartaði og fannst hún niður­ lægð af athæfi drengjanna og viðbrögðum kennarans. Atvik 2: Kvenkennari sem var að kenna sinn fyrsta vetur eftir útskrift lét eftirfarandi alhæfingu út úr sér í kennslustund í 12 ára bekk: „Við konur gerum nú alltaf svo mikið úr öllu. T.d. þegar karlinn okkar er kannski að tala við aðra konu, þá verðum við alveg brjálaðar.“ Hvers konar kennsluefni er þetta? Drengirnir í bekknum gripu þetta á lofti og sögðu: „Einmitt, alveg dæmigert fyrir konur.“ Hver var reynsla þessara 12 ára drengja af samböndum og viðbrögðum kvenna við því að karlar þeirra tala við aðrar konur sem gerði það að verkum að þeir gátu tekið undir? Atvik : Eftir fráfall Önnu Nicole Smith vildu drengir í 8. bekk grunn­ skóla nokkurs heiðra minningu hennar með einhverjum hætti. Karlkennari þeirra tók undir með þeim og setti mynd af henni upp á tölvuskjáinn sinn sem hann snéri fram í bekkinn. Einn nem­ andinn hvatti til einnar mínútu þagnar til að sýna þessari látnu heiðurskonu virðingu. Flestir nemendur bekkjarins þögðu í eina mínútu. Strákar í bekknum ræddu um Önnu og töluðu um hvað hún hefði verið falleg, sexí og mikilvæg. Kennarinn tók þátt í umræðunum. Kona þessi hafði ekkert unnið sér til frægðar annað en að vera kynlífshjálpar­ tæki fyrir karlmenn og gert út á það allt sitt líf. Af hverju var verið að fjalla um hana? 9

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.