19. júní


19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 25

19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 25
2 Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir tók við formennsku í Kvenréttindafélagi Íslands árið 1999. Hún er með BA-próf í ensku, bókmenntum og listasögu frá Háskóla Íslands og diploma í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla. Auk þess er hún með MA-próf í fjölmiðlun frá New York University. Áslaug Dóra starfar sem sérfræðingur á sviði menningarmála í menntamála- ráðuneytinu. Hvaða kona hefur að þínu mati haft hvað mest áhrif á stöðu jafnréttismála á Íslandi og hvers vegna? „Ef velja á eina konu sem helst bætti réttindi kvenna á 19. og 20. öldinni þá kemur auðvitað fyrst upp í hugann hin mikla baráttu­ kona Bríet Bjarnhéðinsdóttir. Þrautseigja hennar skilaði konum bættum réttindum á svo mörgum sviðum og hún lagði grunninn að nýrri hugsun hjá jafnt konum sem körlum. Hún skynjaði líka mikilvægi samstöðu kvenna til þess að baráttan skilaði tilætluð­ um árangri sem kristallaðist í stofnun Kvenréttindafélags Íslands fyrir réttum hundrað árum. En svo langar mig líka að minnast allra baráttukvennanna sem enginn þekkir með nafni en eiga svo sannarlega heiður skilinn fyrir sitt ómetanlega framlag. Þær eru formæður okkar sem kröfðust kosningaréttar, stofnuðu félög, söfnuðu undir­ skriftum, héldu baráttufundi og héldu ótrauðar áfram réttinda­ baráttunni þrátt fyrir mikinn mót­ byr. Þeim vil ég votta þakklæti og virðingu.“ Hvert stefnum við í kvenréttinda- málum? „Við stefnum upp brattann og þótt stundum skriki okkur fótur þá stefnum við þó ávallt í rétta átt. Ég tel að við eigum fyrst og fremst að stefna að þjóðfélagi þar sem konum og körlum gefst frelsi til að velja og njóta sín á eigin forsendum óháð kyni. Margt hefur áunnist í jafnréttisbarátt­ unni en það er ekki unnin barátta, langt því frá, og allir sem unna mannréttindum verða að halda vöku sinni svo þokist áfram.“ Hvað má betur fara, þ.e. hvar ættu höfuðáherslurnar að vera? „Það vantar ekki að íslenskar konur hafa menntað sig og atvinnuþátttaka þeirra er ein hin mesta í heimi en samt erum við enn að berjast við kynbundinn launamun og gengur alltof hægt að útrýma honum. Konur eru enn fáséðar í æðstu stöðum hvort sem það er í stjórnkerfinu eða atvinnulífinu og konur eru enn mikill meirihluti þeirra sem vinna þjónustu­ og láglaunastörf. Vax­ andi klámvæðing í samfélaginu er mikið áhyggjuefni og þörf á að bregðast við þeirri þróun af krafti áður en stefnir í enn meira óefni. Jafnrétti kynjanna þarf ávallt að hafa meðvitað í huga og mikil­ vægt er að sú hugsun sé sam­ þætt opinberri stefnumótun og ákvarðanatöku.“ Viðtal: Hrund Hauksdóttir Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir Við berjumst enn við kynbundinn launamun Konur eru enn fáséðar í æðstu stöðum hvort sem það er í stjórnkerfinu eða atvinnulífinu og konur eru enn mikill meirihluti þeirra sem vinna þjónustu- og láglaunastörf. En svo langar mig líka að minnast allra baráttukvennanna sem enginn þekkir með nafni en eiga svo sannarlega heiður skilinn fyrir sitt ómetanlega framlag.

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.