19. júní


19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 44

19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 44
Klámstjarnan Jenna Jameson gaf út sjálfsævisögu sína, How to Make Love Like a Porn Star fyrir tveimur árum. Jenna hefur fram að þessu iðulega verið nefnd sem dæmi um konu sem grætt hefur á klámiðnaðinum og komist ósködduð frá þeirri vinnu. Bókin leiðir hins vegar í ljós að Jenna hefur greitt framann og ríkidæmið dýru verði. Bókin byrjar á frásögn af því þegar Jenna skar vinkonu sína, Vanessu, niður úr snörunni á baðherberginu heima hjá henni. Vanessa náði ekki tvítugsaldri og þær stöllur störfuðu saman sem fatafellur á búllu sem hét Crazy Horse Too í Las Vegas. Þær áttu annað sameiginlegt. Faðir Vanessu hafði misnotað hana frá ungaaldri og hann hélt áfram að nauðga henni eftir að fullorðinsaldri var náð. Þegar Jenna er sextán ára gömul verður hún einnig fyrir barðinu á honum. Maður þessi var mikill ofbeldisseggur og fíkn hans í smástelpur velþekkt en enginn þorði að gera neitt til að stöðva hann. Hann var kallaður Preacher hversu viðeigandi sem það viðurnefni var nú. Líf Jennu hafði svo sem ekki verið neinn dans á rósum fram að þeirri stundu að ofbeldis­ seggurinn nauðgar henni. Móðir hennar dó úr krabbameini þegar hún og bróðir hennar voru smá­ börn. Faðir hennar virðist hafa misst kjölfestuna í lífi sínu með láti eiginkonunnar. Hann þvældist með börnin stað úr stað og lét þau mestanpart afskiptalaus. Ýmsar vinkonur hans fluttu inn og út á víxl og flestar reyndust börnunum illa. Nýtur klámdrottning ásta? Nauðgað af fjórum drengjum Jenna var fimmtán ára þegar faðir hennar keypti búgarð rétt fyrir utan Fromberg í Montana. Henni gekk illa að aðlagast lífinu í sveit­ inni eftir að hafa búið sína stuttu ævi í borg. Stúlkurnar tóku henni illa og lögðu hana í einelti. Jenna reyndi þess vegna að vingast við strákana í bekknum sínum. Dag nokkurn fór hún til að horfa á fótboltaleik og eftir leikinn settist hún að spjalli ásamt fjórum drengj­ um úr aðkomuliðinu. Þeir buðust til að keyra hana heim og hún þáði það. Í stað þess að keyra hana heim óku þeir með hana á afvikinn stað, slógu höfði hennar utan í bíldyrnar þar til hún missti meðvitund og nauðguðu henni hver af öðrum. Lengi vel reyndi Jenna að þurrka þessa atburði úr minni sínu. Hún staulaðist heim blóðug og marin eftir árásina og laug að föður sínum að stúlkur í skólan­ um hefðu ráðist á sig. Viðbrögð föður hennar voru dæmigerð fyrir viðmót hans gagnvart börnum sínum. Hann spurði einskis frekar og lét málið kyrrt liggja. Jenna fékk hins vegar útrás fyrir reiði sína og vanlíðan með því að ráðast á foringja stúlknahópsins sem hafði lagt hana í einelti og var rekin úr skólanum fyrir vikið. Með þessa reynslu í farteskinu flutti Jenna ásamt fjölskyldu sinni aftur til Las Vegas. Þar kynntist hún strák sem var þremur árum eldri og föðurbróðir hans var áður­ nefndur Preacher. Jack, kærasti Jennu, hafði ekki nægilegt bein í nefinu til að standa með henni í eftir glæpinn svo Preacher var aldrei kærður. Jenna var erfiður unglingur sem barðist við margs­ konar andleg sár og eftir rifrildi við föður sinn flytur hún að heiman. Auðvitað flutti hún inn til Jacks og fór að vinna sem dansari í spilavítum Las Vegas. Jenna varð ein af stúlkunum í „the chorus line“ en þær eru valdar með tilliti til hæðar og útlits. Helst eiga þær að vera sem líkastar hver annarri. Gafst upp á dansinum og fór að snúast um súluna Móðir Jennu hafði unnið sem dansari áður en hún giftist og dóttirin vildi feta í fótspor hennar. Hún komst þó fljótt að því að dansinn var erfið vinna og þar sem hún var ekki nægilega há þurfti hún að dansa á hærri hæl­ um en hinar. Þetta gerði henni erfiðara fyrir og eins var erfitt fyrir hana að stunda skólann því æfingaskylda er ströng í þessum danshópum. Að lokum hætti Jenna að dansa í spilavítunum og fór að dansa nektardans. Hún var aðeins sextán ára og samkvæmt lögum Nevadafylkis tveimur árum of ung til að mega dansa slíkan dans. Umsjónar­ maður staðarins hafði grun um að hún væri of ung en þegar Jenna fullyrti að hún hefði náð aldri lét hann málið kyrrt liggja. Með hjálp vinkonu sinnar, Vanessu, varð Jenna fljótt vin­ sælasta stúlkan á staðnum. Vanessa kenndi henni hvernig best væri að bera sig að við að veiða sem allra mest af pening­ um upp úr vösum viðskipta­ vinanna. Að auki virtist það hafa dregið ákveðinn hóp karlmanna að henni að hún leit út fyrir að vera mun yngri en sextán ára. Við lestur frásagnar Jennu er ekki hægt annað en að velta fyrir sér hvernig þeim karlmönnum sem komu til að horfa á hana dansa hefði orðið við ef þeir hefðu vitað hvað þessi sextán ára stúlka var búin að ganga í gegnum. Það er sömuleiðis vert að spyrja sig hvort dollararnir sem hún fékk í þjórfé hefðu orðið fleiri ef menn­ irnir hefðu vitað að hún var ný­ búin að skera bestu vinkonu sína úr snörunni og bjó með kærasta sem stal af henni peningum og vandi hana á fíkniefni. Jenna og ástin Sjálf segir Jenna að hún hafi aldrei kunnað að velja sér karlmenn. Í bókinni eru rakin samskipti hennar við kærasta og eiginmenn sem allir nema sá síðasti (sem hún er gift enn í dag) hafa sýnt henni virðingarleysi, ofbeldi, yfirgang og verið kvaldir af afbrýðisemi. Það er heldur ekki hægt að verjast þeirri hugsun að starfsval hennar Texti: Steingerður Steinarsdóttir 

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.