19. júní


19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 29

19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 29
29 Sveinbjörg Hermannsdóttir hefur verið í Kvenréttindafélaginu í hálfa öld Tveggja heima kona Sótti fundi í Prentarahúsinu Síðar gerðist Sveinbjörg matráðs­ kona í Franska sendiráðinu og bast frönsku sendiherrahjónun­ um vináttuböndum. Þau voru glæsilegt fólk og hún kunni vel að meta þá menningu sem ríkti á heimili þeirra. En man hún hvenær hún gekk í Kvenréttinda­ félagið? „Ég man það ekki nákvæmlega en það var einhvern tíma í kring­ um 1960. Hún Lóa mín Kristjáns var húsmóðir mín í tuttugu og fimm ár og hún kom mér inn í Kvenréttindafélagið. Hún vissi að ég hafði svo mikinn áhuga á öllu svona og sá að þetta passaði akkúrat fyrir mig. Þá voru fund­ irnir haldnir á Hverfisgötu í Prentarahúsinu. Frú Sigríður Magnússon var formaður þegar ég gekk í félagið. Lóa var yndisleg manneskja og unaðslegt að vera með henni. Ég þráði alltaf að vita meira og meira, eins og margur, og mér fannst ævinlega eins og ég hefði setið á skólabekk þegar ég kom af þessum fundum. Ég varð alveg heilluð af þessu félagi. Það voru svo áhugaverðar konur í félaginu. Þær töluðu auðvitað mikið um kvenréttindabaráttu og hvernig ná ætti jafnrétti því konur voru kúgaðar. Ég varð náttúrlega svo hrifin af því, enda vissi ég sjálf hvað það var að vinna mikið fyrir nær engin laun. Ég týndi þeim á tímabili þá voru erfiðleikar og ástvinamissir í fjölskyldunni og ég þurfti að takast á við það.“ Gleðin yfir Hallveigarstöðum Sveinbjörg tekur sér málhvíld og sýnir blaðamanni úrklippubók þar sem hún heldur til haga ýmsum fréttum og blaðamynd­ um sem vekja áhuga hennar. Meðal blaðaúrklippanna eru fréttir úr starfi Kvenréttinda­ félagsins og sjálf sést hún í hópn­ um á þeim sumum. Ýmsar minn­ ingar vakna þegar albúminu er flett. „Ég skal segja þér hverju ég var glöð yfir og hvað það var sem ég var óánægð með. Ég var ánægð yfir þessum góðu fundum og þessum yndislegu konum sem þarna voru. Formenn félagsins hafa verið alveg dýrðlegar konur. Ég nefni til dæmis Láru Sigur­ björnsdóttur, Guðrúnu Helga­ dóttur, Láru V. Júlíusdóttur og Sólveigu Ólafsdóttur. Þær voru svo elskulegar og góðar við mig. Vinnan í kringum byggingu Hallveigarstaða varð mér einnig til mikillar ánægju. Við vorum spenntar og hamingjusamar þegar við vissum að við áttum hlut í húsinu. Ég gerði mikið af því að safna peningum og ég seldi mikið af 19. júní. Þær voru mér svo þakklátar fyrir það og eitt sinn sagði Lára: „Ég veit bara ekki hvað þú átt skilið fyrir dugn­ aðinn.“ Allt sem ég gat gefið af mér fyrir þetta starf, það gaf ég. Þess vegna urðum við þessar eldri agndofa þegar sú tillaga var borin upp á fundi að selja hlut okkar í Hallveigarstöðum og leigja út í bæ. „Hallveigarstaðir voru byggðir fyrir þetta félag og við hreyfum okkur ekki,“ sögðum við. Svolítill kurr varð á þessum fundi en til allrar lukku var það ekki gert. Ég elskaði að fara á jólafund­ ina. Þeir voru yndislegir eins og reyndar allir fundirnir. Ég man þó að hafa gengið út af einum jóla­ fundi. Það var það eina sem ég var óánægð með. Á jólafundum er alltaf lesið upp úr bókum. Á þessum tiltekna fundi var lesið upp bókinni Veröld sem ég vil eftir Sigríði Erlendsdóttur. Ég hafði haft með mér peninga til­ búin til að kaupa bókina, enda voðaleg bókakerling. Sigríður hafði þá valið sér að lesa upp úr bókinni afskaplega leiðinlegan kafla sem fjallaði um stríðsárin og það hvernig Aðal­ björg Sigurðardóttir hafði beitt sér fyrir því ásamt barnaverndar­ nefnd að láta senda ungar stúlkur úr bænum í sveit til að þær væru ekki í slagtogi við hermenn. Þær voru sviptar frelsi og sendar hist og her. Sennilega hefur þetta átt að vera til að sýna hversu mikil athafnamanneskja hún var en til stelpnanna hafði sést að laumast inn einhvers staðar þar sem her­ menn voru og upp frá því var farið að vakta stúlkurnar og senda þær burtu.“ Sumir bera sár í hjarta Með Sveinbjörgu á fundinum var vinkona hennar og þær voru báðar sammála um að óviðeig­ andi hafi verið að lesa upp þennan tiltekna kafla á jólafundi. Nýlega hafði þá reyndar verið sagt frá þessum atburðum í blöðum og bókum. „Þegar hún er búin að lesa þetta,“ segir Sveinbjörg, „þá Sveinbjörg með dóttur sína Ruth.

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.