19. júní


19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 15

19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 15
bæklingurinn „Nokkrar stað­ reyndir um stöðu kvenna á vinnumarkaðnum“ verið gefinn út með helstu niðurstöðum og dreift á vinnustöðum og á fundum um land allt. KRFÍ varð sjötíu og fimm ára 1982 og var haldið afmælishóf á Hótel Borg þar sem mættu hátt á þriðja hundrað manns. Margir góðir gestir mættu í veisluna en þar voru fluttar ræður og skemmti­ atriði. Mikið var fjallað um félagið í fjölmiðlum og fluttur var útvarps­ þátturinn „Íslandskonur hefjist handa“ sem konur í félaginu sáu um og gáfu félaginu laun sín fyrir þáttinn. Ákveðið var að láta þessi laun ásamt þeim peningagjöfum sem bárust vegna afmælisins renna í sérstakan söguritunarsjóð en ákvörðun hafði verið tekin um að rita sögu félagsins og fá Sigríði Th. Erlendsdóttur, sagnfræðing til verksins. Bókin „Veröld sem ég vil“ Saga Kvenréttindafélags Íslands 1907 – 1992 kom út á árinu 1993. Á þessum tíma var mikil sam­ staða meðal kvennahreyfinga um að vekja sameiginlega athygli á ákveðnum málum eins og í Framkvæmdanefnd um launamál kvenna og ég sagði frá áðan. KRFÍ tók einnig virkan þátt í starfi Friðarhreyfingar íslenskra kvenna, gerðist aðili að Samtök­ um um kvennaathvarf þegar þau var stofnuð og ´85 nefndinni. Á árinu 1983 var skipuð undir­ búningsnefnd sem fékk það hlut­ verk að undirbúa þátttöku Íslands í kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nairobi í lok kvenna­ áratugarins 1985. Þar kom fram sú hugmynd að sameina fulltrúa kvennahreyfinga í svokallaðri ´85­ nefnd sem síðar setti sér það markmið að gera úttekt á stöðu kvenna við lok kvennaáratugar og að standa fyrir aðgerðum á árinu 1985, sem hún og gerði. Mikið var um að vera allt árið og tóku félagskonur í KRFÍ virkan þátt í undirbúningi viðburða, eins og að minnast þess að sjötíu ár voru liðin frá því konur fengu kosninga­ rétt og kjörgengi til alþingis með hátíðarfundi á Þingvöllum. Stór listahátíð kvenna var haldin í Reykjavík og síðast en ekki síst var haldinn útifundur á Lækjar­ torgi 24. október og Kvenna­ smiðja var opnuð í Seðlabanka­ húsinu. Þennan dag kom út á vegum nefndarinnar bókin „Konur – hvað nú?“ en í henni var gerð úttekt á stöðu kvenna á mörgum sviðum og leitast við að svara spurningunni hvort kvennaáratugurinn hafi skilað árangri í að jafna stöðu kvenna og karla. Það er engin spurning að kvennaáratugurinn skilaði ákveðnum árangri. Eftir þennan áratug vorum við að mínu mati skrefi framar í kvennabaráttunni. Það varð ákveðin hugarfars­ breyting í þjóðfélaginu þótt hún hefði mátt vera miklu meiri. Ég tók sem formaður virkan þátt í starfsemi Alþjóðasamtaka kvenréttindafélaga IAW og sat í stjórn þeirra frá 1982 – 1992. Þar kynnist ég mörgum frábær­ um konum sem börðust fyrir jafnrétti kvenna á við karla í sínu heimalandi og áherslurnar voru mismunandi. Konur í Evrópu börðust fyrir aukinni stjórnmála­ og atvinnuþátttöku kvenna og launajöfnuði á meðan konur í Afríku börðust við ólæsi og fyrir því að fá fleiri vatnsbrunna til að auðvelda þeim störf sín. Allar þessar konur náðu vel saman því markmiðið var og er í raun það sama – aukið jafnrétti kynjanna. Ég var einnig í Íslensku sendi­ nefndinni sem fór á kvenna­ ráðstefnu SÞ í Nairobi í júlí 1985. Töluverð vinna fór í undirbúning ráðstefnunnar og á ráðstefnunni sjálfri en mjög fróðlegt var að kynnast starfsemi SÞ og hvernig svona fundir fara fram. Af mörgu er að taka þegar rifjuð er upp starfsemi KRFÍ á þeim árum sem ég gegndi for­ mennsku. Í þessu svari er aðeins stiklað á því allra helsta, sem kemur upp í huga minn. Þessi ár voru mjög skemmtileg en tölu­ verður tíma fór í starfið sem hefði aldrei gengið svona vel nema af því að með mér störfuðu svo margar frábærar konur með ólík sjónarmið.“ Hvaða málum finnst þér brýnast að taka á um þessar mundir? „Mjög brýnt er að uppræta launa­ misrétti kvenna og karla sem enn viðgengst í þessu þjóðfélagi,“ segir Esther. „Á árinu 1961 voru sett lög um launajöfnuð karla og kvenna þar sem kveðið var á um að laun kvenna skyldu hækka á árunum 1962 – 1967 til jafns við laun karla fyrir sömu störf í almennri verkakvennavinnu, verksmiðjuvinnu og verslunar­ og skrifstofuvinnu, eins og það var orðað. Í dag fjörutíu og sex árum síðar er ennþá óútskýranlegur munur á launum kvenna og karla. Þessu þarf að breyta. Sá tími þarf að koma að það skipti ekki máli hvort móðir eða faðir er heima ef heimilisaðstæð­ ur eru þannig að annað þeirra þarf að taka hlé frá vinnu. Foreldrar eiga að hafa raunveru­ legt val en ekki að það sé sjálf­ gefið að konan verði heima þar sem hún er á lægri launum. Einstæðar mæður þurfa líka að geta séð fyrir sér og sínum á sama hátt og einstæðir feður. Vinnumarkaðurinn er ennþá mjög kynskiptur í hefðbundin kvenna­ og karlastörf og því miður eru kvennastörf ekki metin til jafns við karlastörfin. Nauðsynlegt er að einhverskonar endurskoðun á starfsmati fari fram með það í huga að hefð­ bundnar kvennastéttir verði metnar að verðleikum.“ Hverjir eru að þínu mati stærstu áfangasigrar íslenskrar kven- réttindabaráttu? „Fyrst vil ég nefna þegar konur fengu kjörgengi og kosningarétt árið 1915 en það var baráttumál þeirra kvenna sem stofnuðu KRFÍ árið 1907 að konur fengu fullt stjórnmálalegt jafnrétti á við karla. Annað baráttumál kvenna­ hreyfinga víða um heim í byrjun síðustu aldar var réttur kvenna til menntunar og æðri skólagöngu. Hér á landi fengu konur lagalegt jafnrétti til skólagöngu og embætta árið 1911. Velferðar­, skatta­, og trygg­ ingamál hafa verið baráttumál félagsins í gegnum tíðina. Þar hafa unnist bæði smáir og stórir sigrar sem þakka má ötulli fram­ göngu félagskvenna í KRFÍ. Sem dæmi um þetta má nefna að fljótlega eftir stofnun félagsins var barist fyrir því að opnaðir yrðu leikvellir fyrir börn í Reykjavík. Í dag er það sjálfsagður hlutur að börn séu á leikskólum á meðan foreldrar eru við vinnu. Á árinu 1978 voru sett lög um sérsköttun 1

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.