19. júní


19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 22

19. júní - 19.06.2007, Blaðsíða 22
Bryndís Hlöðversdóttir varð formaður Kvenréttindafélagsins árið 1995 og gegndi formennsku til ársins 1997 að Sigríður Lillý Baldursdóttir tók við. Á sama tíma sat hún á alþingi og hafði því góða yfirsýn yfir pólitíska stöðu kvenna. Bryndís kennir nú við Háskólann á Bifröst. Hvaða málefni voru efst á baugi þegar þú varst formaður Kven- réttindafélagsins? „Það var ýmislegt í gangi þá en það sem mér er minnistæðast er málefni kvenna af erlendum uppruna, myndbirting kvenna í fjölmiðlum, staða kvenna í stjórn­ málum og svo auðvitað launa­ misréttið. Þetta eru nú kannski að mestu leyti sömu mál og hafa verið efst á baugi í kvennabarátt­ unni meira og minna síðustu áratugina.“ Hvað málum finnst þér brýnast að taka á um þessar mundir? „Mér finnst launamisréttið mjög alvarlegt mál og það gengur hreinlega ekki lengur að láta það óáreitt. Nú eru í gangi ýmsar spennandi hugmyndir til þess að takast á við það og ég bind t.d. miklar vonir við það að vottun um jafnlaunastefnu fyrirtækja geti skilað árangri. Slíkt fyrirkomulag myndi ýta við stjórnendum fyrir­ tækjanna að huga að þessum málum og ég tel að slíkt geti skilað meiri árangri en boð og bönn í lögum. Út af fyrir sig geta slíkar aðferðir verið nauðsynlegar, en ég er ekki viss um að þær skili tilætluðum árangri. Misréttið virðist inngróið í kerfið og á því verður best unnið með því að Bryndís Hlöðversdóttir Launamisréttið alvarlegasta málið beina sjónum að meininu og ráðast á slík fyrirtæki með aðferð­ um markaðarins, ef þú vilt ekki fá vottun um jafnlaunastefnu – þá er eitthvað bogið við launastefnuna! En burtséð frá launamisréttinu, þá finnst mér mikið verk hafa verið unnið í að draga fram þann ljóta blett á samfélaginu sem kyn­ ferðislegt ofbeldi er, ekki síst gagnvart börnum. Ætli þetta tvennt sé ekki það sem brýnast er að vinna bug á.“ Hverjir eru að þínu mati stærstu áfangasigrar íslenskrar kven- réttindabaráttu? „Kosningarétturinn 1915 er tvímælalaust sá stærsti, síðan myndi ég vilja nefna jafnréttis­ lögin og svo kannski í þriðja lagi fæðingarorlof karla.“ Hvernig er best að haga barátt- unni þ.e. hvar þurfa konur helst að sækja á? „Það er alltaf flókið að svara þessu. Konur og menn sem hafa jafnrétti að leiðarljósi þurfa alltaf að vera á tánum. Það er aldrei búið að klára verkefnin, það þarf að halda þeim vakandi og ekki sofna á verðinum. Ég nefni sem dæmi stöðu kvenna í stjórnmál­ um, svo virðist sem stjórnmála­ flokkarnir þurfi að vera eilíft vak­ andi yfir því hversu fljótt hlutirnir fara í sama farið ef ekki er vel á haldið. Einstaklingar bera ábyrgð, stjórnmálaflokkar bera ábyrgð, félagasamtök bera ábyrgð. Ég hef alltaf haft mikla trú á þverpólitískri vinnu á borð við þá sem við í Kvenréttindafélaginu höfum unnið, hún er svo skemmtilega fókuseruð á það eina markmið sem jafnrétti og kvenfrelsi er. Mér finnst þess vegna óhemju mikil­ vægt að slíkur vettvangur sé til en einnig að konur efli samstöðuna hver í sínum ranni.“ Hvaða breytingar vildir þú helst sjá gerast á næstu áratugum? „Ég myndi vilja sjá launajafnrétti og að konur hefðu í reynd sömu möguleika og karlar í hvívetna! Það er því miður ekki þannig enn þann dag í dag og ég óttast að það gerist ekki heldur á næstu áratugum. En dropinn holar steininn og ef hver einstaklingur skilar sínum skerf til komandi kynslóða í átt til aukins jafnréttis, þá erum við á réttri leið.“ Texti: Steingerður Steinarsdóttir Misréttið virðist inngróið í kerfið og á því verður best unnið með því að beina sjónum að meininu og ráðast á slík fyrirtæki með aðferðum markaðarins, ef þú vilt ekki fá vottun um jafnlaunastefnu - þá er eitthvað bogið við launastefnuna! Ég hef alltaf haft mikla trú á þverpólitískri vinnu á borð við þá sem við í Kvenréttindafélaginu höfum unnið, hún er svo skemmtilega fókuseruð á það eina markmið sem jafnrétti og kvenfrelsi er. 22

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.