19. júní


19. júní - 19.06.2007, Síða 24

19. júní - 19.06.2007, Síða 24
2 Sigríður Lillý Baldursdóttir var formaður Kvenréttindafélagsins árið 1997. Hún er menntaður eðlisfræðingur og starfar nú sem framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tryggingastofnunar ríkisins og er staðgengill forstjóra. Hverja telur þú vera helstu ávinninga jafnréttisbaráttunnar síðustu árin? „Nú að loknum alþingiskosning­ um hlýt ég að lýsa yfir vonbrigð­ um mínum með hlut kvenna á Alþingi en konum fækkar nú aðrar þingkosningarnar í röð í hópi kjörinna þingmanna. Þannig að ekki miðar okkur vel þar, því miður. En ég bind miklar vonir við þá kvenskörunga sem valdar voru á þing, hvar í flokki sem þeir standa. Konur eru tæpur þriðj­ ungur þingmanna en ég á von á því að þær muni skila starfi sem jafna má til framlegðar minnst helmings þingheims. Þarna sjáum við ávinning jafnréttis­ baráttu undanfarinna ára og áratuga. Aldrei fyrr hafa konur verið jafn menntaðar og reyndar í stjórnunarstörfum á Íslandi. Þess njótum við nú í góðum mæli hjá nýkjörnum alþingiskonum. Sjálfstæður og aukinn réttur foreldra til fæðingarorlofs er mér einnig ofarlega í huga. Hann hefur þegar breytt viðhorfum til föður­ og móðurhlutverkanna sem er afar mikilvægt. Því miður hefur ekki tekist að útrýma kyn­ bundnum launamun eða kyn­ ferðislegu ofbeldi sem hvort Sigríður Lillý Baldursdóttir Breyta verður aðgengi að peningum og völdum tveggja eru birtingarháttur virðingarleysis gagnvart konum og alvarleg mannréttindabrot. Það hlýtur að verða stóra verkefni kvenréttindakvenna næstu misserin, hvar sem þær nú standa, að koma því fyrir kattarnef. Þá verð ég einnig að nefna kynjafræðirannsóknirnar sem hafa dafnað undanfarin ár í höndum mikilvirkra kvenna. Það er bjargföst trú mín að þessar rannsóknir muni reynast okkur eitthvert mikilvægasta veganestið í jafnréttis­ og kvenfrelsisbarátt­ unni á næstu árum.“ Hvert stefnum við? „Við hljótum að stefna rakleiðis að réttlátu samfélagi þar sem við getum öll notið krafta okkar í „Veröld sem við viljum“ afkom­ endum okkar, stelpum sem strákum til handa. Annað er ekki inni í myndinni. Því miður sýnist mér að þetta kunni að taka svo­ lítinn tíma og ýmislegt bendir til þess að nokkuð miði af leið um stundarsakir. Þegar ég fylgist með fjölmiðlum hef ég það t.d. á tilfinningunni að konum fækki fremur en hitt í hópi þeirra sem sýna afgerandi eða uppbyggj­ andi framgöngu í samfélaginu. Þær eru sjaldséðar nema á síðunum þar sem fjallað er um „fólk í fréttum“. Myndir frá undir­ skriftum og samningagerðum sem varða miklar framkvæmdir og þá um leið afkomu fjölda fólks, prýða alla jafna gamaldags – en ekki þó svo gamlir – jakka­ fataklæddir karlar. Hópmyndir af konum í umönnunarstéttum er undantekning en þá er nú yfirleitt ekki verið að tala um fjárfrekar aðgerðir eða úrræði; miklu frekar fjár­ og mannaflaskort. Verkefnaval kynjanna er enn nokkuð hefðbundið og flæði fjár­ munanna er svipað og það hefur verið um aldir. Það er ekki straumþungt flæðið um hendur kvennanna. Þessu þarf að breyta því peningar eru mikilvægt hreyfiafl samtímans. Tvennt þarf að gera: Brjóta enn frekar upp hefðbundið kynjamynstur vinnu­ markaðarins og breyta verður aðgengi að peningum og valdi. Ég hef lagt það til áður og geri það enn að konum verði raðað í stjórnir lífeyrissjóðanna. Atvinnu­ þátttaka kvenna er hvergi meiri en hér á landi þar sem þær eru nánast helmingur vinnuaflsins. Það er því einskær réttlætiskrafa að konur skipi stjórnir lífeyris­ sjóðanna til jafns við karla. Það eru okkar peningar sem um er að ræða og því okkar að velja fjár­ festingarkostina.“ Hvaða kona hefur, að þínu mati, haft mest áhrif á kvenréttinda- baráttu íslenskra kvenna? „Í kvenréttindabaráttu sem og annarri réttindabaráttu þarf ísbrjóta, þ.e. sterka einstaklinga sem láta mótbyr ekki buga sig. Viðtal: Hrund Hauksdóttir Sjálfstæður og aukinn réttur foreldra til fæðingarorlofs er mér einnig ofarlega í huga. Hann hefur þegar breytt viðhorfum til föður- og móðurhlutverkanna sem er afar mikilvægt. Við hljótum að stefna rakleiðis að réttlátu samfélagi þar sem við getum öll notið krafta okkar í „Veröld sem við viljum“ afkomendum okkar, stelpum sem strákum til handa. Mótbyr er nefnilega eðlilegur þáttur í réttindabaráttu því ef ekki blæs á móti þá er að öllum líkindum ekki verið að breyta grunngildum. En lítils má sín konan einsömul! – Á bak við þessar konur, kvenfrelsishetjurn­ ar, þarf að vera þéttur hópur sem er tilbúinn að leggja ýmislegt á sig og skynjar mikilvægi sam­ stöðunnar þótt áherslur geti verið ólíkar í hita leiksins. Við eigum margar kvenfrelsishetjur, frum­ kvöðla sem hafa sýnt ótrúlegt úthald í baráttunni. Ég get ómögulega gert upp á milli þeirra því hver um sig hefur staðið á öxlum þeirra sem gengnar voru. Þetta hefur verið órofin keðja atburða. En það er ekki síður fjöldasamstaða kvenna sem skipt hefur sköpum í kvennabarátt­ unni. Ég vil gefa henni mitt atkvæði hér!“

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.