19. júní


19. júní - 19.06.2007, Side 35

19. júní - 19.06.2007, Side 35
þessum tilgangi. Eftir að heim kom stundaði Þorbjörg ljósmóður­ störf í Reykjavík allt til ársins 1902 og var embættisljósmóðir frá árinu 1864. Stór í starfi og ástum Samhliða störfum hafði Þorbjörg á hendi verklega kennslu ljós­ móðurnema. Hún hefur augljós­ lega unnið mikið en auk starfa utan heimilis ræktaði hún mat­ jurtagarð við húsið sitt og tók þátt í virkan þátt í alls konar félags­ störfum. Flest það sem var til umræðu í bænum lét hún til sín taka og hafði skoðanir á öllu. Hún hikaði ekki við að standa upp á fundum og tala en það þótti hin mesta goðgá að konur væru að trana sér fram á þann hátt. Menn vöndust því samt ótrúlega fljótt að hún sýndi svo karlmannlega hegðun en ekki er víst að nokkurri annarri konu hefði verið liðið það sama. Þorbjörg keypti lítinn steinbæ við Skólavörðustíg í Reykjavík og bjó þar þangað til hún byggði timburhús á lóðinni. Eftir að hún flutti í það leigði hún út stein­ bæinn og að þessu leyti var hún einnig frumkvöðull. Þær konur sem áttu fasteignir á þessum tíma höfðu flestar hlotið þær í arf eftir eiginmenn eða feður en Þorbjörg keypti og byggði sín hús sjálf. Til þess var tekið af hversu mikilli næmni og viðkvæmni Þorbjörg sinnti konunum sem hún sat yfir. Oft tók hún með sér hreint lín, mat og önnur föng í hús þar sem hún vissi að lítið var til. Í skaplyndi hennar var engin hálfvelgja til. Hún elskaði af einurð og ákafa en hatur hennar þegar henni mislíkaði var jafn­ sterkt. Sorgin greip hana sömu heljargreipum og gleðin þegar því var að skipta. Líkt og fyrr sagði giftist Þorbjörg aldrei en veturinn 1884 bjó hún með Benedikt Gröndal skáldi. Það átti að heita svo að Þor­ björg væri bústýra hjá Benedikt en líklega hefur þurft meira en ráðskonustarf til að þessi sjálf­ stæða kona flytti úr steinbænum sínum og inn á skáldið í Þing­ holtstrætinu. Matthías Jochum­ son heimsækir þau og lýsir hamingjunni og gleðinni sem ríkti á heimilinu en það var í upphafi ástarsambandsins og fljótlega fór að síga á ógæfuhliðina. Sennilega hafa þau Benedikt og Þorbjörg verið of ör í lund til að geta búið saman og haldið friðinn þótt eflaust hafi gneistað af fjöri þegar bæði voru í góðu skapi. Þorbjörg tók sambandsslitin svo nærri sér að hún er veik í tvö ár og þvælist bæði til Danmerkur og Bretlands að leita sér lækninga. Lýsingar á sjúkdómi hennar og eirðarleysi á þessum tíma koma heim og saman við þunglyndi eins og við þekkjum það í dag. Hún hefur enga orku til fram­ kvæmda, lokar sig af vikum saman og festir hvergi yndi. Sigríður Dúna spyr sig hvort Þor­ björg hafi hugsanlega drukkið á þessum tíma og ómögulegt er að segja til um það. Nóg var drukkið í kringum hana og báðir Benedikt­ arnir í lífi hennar drykkjumenn. Hins vegar er í raun nóg að ætla að sorgin hafi einfaldlega yfir­ bugað hana og nútímakonur þekkja vel þá erfiðleika sem fylgja sambandsslitum. Árið 1886 kemur hún heim og tekur ótrauð til við störf sín aftur. Þorbjörg fór sér þó hægar upp frá þessu og var ekki eins ósérhlífin og áður. Hún hafði lært að þreki hennar voru takmörk sett. Elliðaármál Sum mál voru Þorbjörgu hug­ leiknari en önnur og hér verður stilklað á stóru í þeim sem hennar verður helst minnst fyrir. Fyrst verður að nefna svokölluð kistubrotsmál eða Elliðaármál sem stóðu yfir nánast allan ára­ tuginn 1870­80. Benedikt bróðir Þorbjargar bjó á Elliðavatni og skömmu eftir að hann settist þar að keypti Thomsen kaupmaður í Reykjavík laxveiðiréttinn í ánum. Hann setti upp laxkistur neðst í ánum til að koma í veg fyrir að lax synti upp árnar og náði þannig niður við ósa hér um bil öllum lax sem gekk í árnar. Benedikt gerði áveitu á Elliðavatnsengjum sem varð til þess að annað hvort voru árnar svo vatnslitlar að lax gekk ekki í þær eða svo vatnsmiklar að hann gat synt yfir kisturnar. Thomsen fór í mál við Benedikt vegna þessa og vann málið. Benedikt nýtti sér til varnar ákvæði Jónsbókar sem bannaði mönnum að þvergirða ár. En fleira hékk á spýtunni en hags­ munir Benedikts og Thomsens. Bændur við Elliðaár höfðu fram til þess geta nýtt sér laxveiðina sem búsílag og fátæklingar í Reykjavík áttu til að laumast í þær að nætur­ þeli og ná sér í ofurlitla björg. Laxinn var ekki jafnverðmætur þá og nú svo þetta athæfi var mestu látið óátalið, enda hefur mönnum ekki þótt taka því að vakta árnar fyrir nokkra laxatitti. Thomsen girti hins vegar alveg fyrir mögu­ leika annarra á veiðum og ætla má að þótt Þorbjörg hafi fylgt bróður sínum af heilum hug er einnig næsta víst að hún hafi vitað hversu vel laxinn kom sér á fátækari heimilum og það kann að hafa haft áhrif á afstöðu hennar. Alþingi setti árið 1874 lög um friðun á laxi og þar kvað á um að óheimilt væri að leggja net eða garða lengra en út í miðjar ár. Thomsen hélt þó uppteknum hætti og andstæðingar hans gripu þá til þess ráðs að brjóta kistur hans sem hann byggði jafnóðum og leikurinn endurtók sig nokkr­  Ólafía Jóhannsdóttir fósturdóttir Þorbjargar var einnig merk kona sem barðist fyrir kvenréttindum og líknaði vændiskonum og ógæfusömum stúlkum í Noregi.

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.