19. júní - 19.06.2007, Side 39
á vinnustað að hafa ekkert slíkt
net á bak við sig. Bandarískar
konur virðast mun meðvitaðri um
nauðsyn þess að koma sér upp
bæði lærifeðrum og öflugum
vinum. Í lokakafla bókarinnar
rekja þær Lotte og Liza sögu
Madeleine Albright en eftir henni
eru þau orð höfð sem þær gerðu
að titli bókarinnar. Þar er vitnað í
ævisögu Madeleine: „Ég byrjaði á
að bjóða heim fólki úr þinginu, úr
þekkingarsmiðjum og af lögfræði
stofum í kvöldverð þar sem sér
fræðingur kom með hugmyndir
sem við hin gátum svo rætt.“
Hún bætti stöðugt við sig
vinum og m.a. Michael Dukakis
löngu áður en hann var talinn
koma til greina sem forseta
frambjóðandi fyrir demókrata
flokkinn en fyrst og fremst bast
hún konum og trúði á þær. Og
konur brugðust henni ekki.
Hillary Rodham Clinton varð til
þess að tryggja henni stól utan
ríkisráðherra Bandaríkjanna þrátt
fyrir mikla andstöðu bæði þing
manna og annarra valdamanna.
Því var spáð að valdamenn
ýmissa ríkja, einkum Arabaríkja,
myndu ekki vilja hafa neitt saman
við Madeleine að sælda en annað
kom á daginn. Hún reyndist einn
liprasti samningamaður sem
Bandaríkin hafa átt og áður en
yfir lauk einn ástsælasti ráðherra
þeirra fyrr og síðar.
Reyndar ætti bók þeirra Lizu
og Lottu að vera skyldulesning í
öllum skólum og hver einasta
kona ætti að hafa hana á borðinu
sínu. Þar rekja þær félagsmótun
kvenna og karla allt frá því þau
eru lítil börn á leikskóla þar til
þau eru fullorðið fólk á vinnu
markaði. Staðreyndin er sú að
rannsóknir sýna að litlir drengir
eru ræktaðir, hvattir og undirbúnir
undir sín stóru hlutverk í lífinu
meðan stúlkum er beinlínis kennt
að setja ljós sitt undir mæliker og
hafa sig ekki í frammi.
Hæfileikum kvenna sóað.
Í bókinni er vísað í ótal áhuga
verðar rannsóknir sem allar bera
að sama brunni. Konur eiga
erfiðar uppdráttar á vinnumarkaði
og í lífinu sjálfu en karlar.
„Þar sem konur eru sem
minnihluti sýnilegri en sam
starfsmenn þeirra af karlkyni og
meira fylgst með þeim, verða þær
líka oft síður tilkippilegar til að
taka áhættu. Þær verða varkárari.
Það hefur ekkert með það að
gera að konur og karlar séu líf
fræðilega ólík heldur einfaldlega
að það er hættulegra fyrir konur
að mistakast.
Kona sem er ein verður að
skara örlítið fram úr körlunum til
þess að vera nógu góð en hún
má heldur ekki verða of góð. Þá
verður hún ógnun við karlana þar
sem hún vekur athygli á van
hæfni þeirra.“
Rosabeth Moss Kanter gerði
rannsókn á þessu fyrirbæri og
komst að því að konur sem ná að
skara fram úr þurftu að takast á
við mjög erfiðar aðstæður. Þær
voru ekki metnar af verkum
sínum eins og karlarnir heldur
sem konur. Karlmenn lenda
stundum í sömu stöðu og konur
innan vinnustaðar, þ.e. þeir verða
í minnihluta og þá bregður svo
við að þeir fá hraðlyftingu upp á
við í fyrirtækinu fremur en hitt.
Hið undarlega var hins vegar að
karlar í láglaunastörfum sem
sköruðu fram úr á karlavinnustað
og fengu stöðuhækkun máttu líka
þola andúð fyrrum félaga sinna
því talið var að þeir hefðu svikið
hópinn.
Newsweek er á þeirri skoðun
að Evrópuríki sói hæfileikum
kvenkyns borgara sinna. Þær
detti alltof margar niður úr met
orðastiganum og flestar komist
ekki einu sinni á neðsta þrepið
aftur. Hlutastörf eru einnig mun
algengari meðal evrópskra kvenna
en bandarískra og undantekn
ingarlaust verr borguð og ekki
eins vænleg til árangurs á frama
braut og fullt starf. Lítill sveigjan
leiki og íhaldssemi í rekstri
fyrirtækja í Evrópu hjálpi heldur
ekki til. Þróunin er einnig
hættuleg vegna þess að íbúar
flestra landa í Evrópu eldast mjög
hratt og konur sem ekki hafa
skapað sér nein lífeyrisréttindi
verði óhjákvæmilega byrði á sam
félaginu þegar frá líður. Evrópu
bandalagið hefur brugðist við
þessu og lagt fé í rannsóknir á því
hvort jafnréttislögum aðildarríkja
sé framfylgt á réttan hátt. Í Noregi
var nýlega settur kynjakvóti og í
Þýskalandi hafa verið sett lög um
feðraorlof líkt og hér á landi.
Hvort þetta kemur til með að
hafa áhrif á tíminn eftir að leiða í
ljós en rannsóknir sýna að hjóna
bönd þar sem jafnrétti ríkir eru
stöðugri en önnur sambönd. Gott
fjölskyldulíf er svo til hagsbóta
fyrir samfélagið allt eins og fram
kemur í Það er staður í helvíti
fyrir konur sem hjálpa ekki hver
annarri. Vonandi kynnast sem
fæstar konum þeim stað.
9