19. júní - 19.06.2007, Page 42
Margt hefur verið rætt og ritað
um klámvæðingu samfélagsins
og andstæðingar kláms benda á
hættuna sem af því stafar. Flestir
óttast að klám ýti undir ofbeldis-
glæpi og margir hafa áhyggjur af
þeirri staðreynd að klám gefur
mjög brenglaða mynd af kynlífi.
Ungir, reynslulitlir krakkar eru því
illa undir það búnir eða ekki færir
um að greina raunveruleika frá
órum misjafnra manna.
Klámsíður á Netinu eru svo
algengar og svo áberandi að varla
er hægt að komast hjá því að
rekast á þær. En slíkar síður eru
ekki eina hættan sem börnum er
búin því ofbeldismenn hafa
uppgötvað að spjallrásir á Netinu
opna þeim aðgang að heimilum
fólks og börnunum okkar eins og
fréttaskýringaþátturinn Kompás
sýndi fram á með svo eftirminni
legum hætti. Þrátt fyrir að þessi
hætta vofi yfir ráku ýmsir upp
ramakvein þegar starfsmenn í
klámiðnaði hættu við að halda
ráðstefnu hér á landi.
Klám er í eðli sínu ofbeldi og
eins og allt ofbeldi stigmagnast
Klámþátturinn
það. Margir muna eftir þætti með
Vinunum þegar Joey og Chandler
komast ókeypis inn á klámrás í
sjónvarpinu. Smátt og smátt
verða þeir hálfveruleikafirrtir og
undrast það að kvenkynspítsa
sendlar og gjaldkerar í bönkum
taki ekki þegar til við að fækka
fötum og leita á þá þegar þeir
leita eftir þjónustu þeirra. Þegar
svo illa er komið fyrir þeim kemst
Chandler að þeirri niðurstöðu að
þeir verði að hætta að kveikja á
klámrásinni því það sé ekki hollt
fyrir þá að horfa lengur.
Hér á árum áður meðan klám
var eitthvað sem menn laum
uðust með og földu vandlega
undir rúmdýnunni sinni var
kannski ekki mikil hætta á að það
breytti hugmyndum þeirra um
hvernig samskipti kynjanna ættu
að fara fram. Klámhundarnir
læddust með veggjum í þá daga
og skoðuðu sín myndbönd bak
við luktar dyr. Allflestir álitu að
hjón sem lifðu heilbrigðu kynlífi
þyrftu lítið á klámi að halda. Klám
væri helst framleitt fyrir einhleypa
karla og perra.
Klám ódýrt, aðgengilegt og nóg til
af því
Nú er öldin önnur. Klámi er stillt
upp í hillum bókabúða innan um
tímarit um barnauppeldi, mat og
prjónauppskriftir. Erótísk mynd
bönd eru öllum aðgengileg. Á
Netinu er tæplega hægt að slá
inn ákveðnum leitarorðum án
þess að fá upp heilmargar klám
síður. Klámið er ekki bara að
gengilegt heldur einnig hræódýrt
þannig að fátt stöðvar neytand
ann í að sækja sér slíkt efni. Svo
rammt kveður orðið að klám
notkun að sérfræðingar telja að
það liti orðið ástar og kynlífs
sambönd fólks á ótal vegu.
Á HBOsjónvarpsstöðinni í
Bandaríkjunum var sýndur
heimilidaþáttur sem hét
Pornucopia: Going Down in the
Valley. Þar var rætt við ýmsa
sálfræðinga, fjölskylduráðgjafa og
geðlækna sem voru sammála
trúarleiðtogum í því að klám hefði
ekki heppleg áhrif á kynlíf og
samskipti manna. Þeir segja að
klám ýti undir óraunsæjar
væntingar fólks hvers til annars
og kynlífs. Þeir segja að menn
sem horfi mikið á klám hafi
skrýtnar hugmyndir um útlit
kvenna og framkomu þegar kynlíf
er annars vegar. Þessir menn eigi
því í erfiðleikum með langtíma
sambönd því þeim finnist þeir
sjaldan fá kynlífslöngunum sínum
fullnægt með „venjulegum“
konum.
Netið hefur reynst gósenland
fyrir klámnotendur. Flestir sem
fara á Netið í þeim tilgangi að
skoða klám segja að um sak
lausa, erótíska skemmtun sé að
ræða. Kynlífs eða klámfíklar eru í
miklum minnihluta en spurningin
er ekki sú hvort klám geti orðið
að fíkn heldur hvort forvitni og leit
manna að erótískri örvun með
aðstoð kláms geti verið óæskileg.
Rannsókn á vegum Texas
Christian University leiddi í ljós að
tengsl eru milli þess hversu mikið
klám karlmenn horfa á og
hvernig þeir tala um konur.
Karlmenn sem nota mikið klám
eru líklegri til að tala um konur
eins og hluti, nota niðurlægjandi
og ruddaleg orð til að lýsa þeim
og tala um þær sem samsetningu
líkamshluta fremur en persónur,
þ.e. þeir tala um rassinn, lærin
og brjóstin á konum fremur en
manneskjuna sem heild.
Klám ekki betra en framhjáhald
Smátt og smátt leiðir þetta til
þess að klámnotandinn getur
ekki lengur fundið fyrir eðlilegri,
kynferðislegri örvun í návígi við
konur. Kynlíf þeirra verður ein
göngu bundið við sjálfsfróun fyrir
framan tölvuna í einhverju
skúmaskoti heimilisins á síð
kvöldum. Þegar þannig er komið
fyrir mönnum telst klámnotkunin
fíkn og það getur verið ákaflega
erfitt að snúa við blaðinu.
Til eru sérfræðingar sem segja
ekkert athugavert við að pör noti
klám sér til ánægju í kynlífi.
Gallinn á þeirri hugmynd er hins
vegar sá að konur hafa almennt
mun minni áhuga á klámi en
karlar og það klám sem konur
geta hugsað sér að horfa eða er
það illskársta að þeirra mati er
ekki nægilega krassandi til að
æsa karlmenn. Engu að síður
hafa kynlífsráðgjafar ráðlagt fólki
sem á við ýmis vandamál að
stríða í kynlífi að nota klám til að
örva og endurnýja neistann í
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
2