19. júní - 19.06.2007, Síða 45
hafi ýmislegt með framkomu
karlmanna gagnvart henni að
gera. Meðal þeirra fáu sem hún
ber vel söguna er Tommy Lee,
fyrrverandi eiginmaður Pamelu
Anderson, en Jenna og hann áttu
í stuttu ástarsambandi.
Flestir elskhugar Jennu eru
samstarfsmenn hennar í klám
myndabransanum, ýmist leik
stjórar eða mótleikarar. Snemma
á hún einnig í lesbísku sambandi
við samstarfskonu sína á nektar
staðnum og síðar verða konurnar
í lífi hennar fleiri. Lengsta ástar
samband hennar við konu er
samband hennar við Nikki Taylor
en þær bæði unnu og sváfu
saman um tíma. Hún virðist hafa
sótt blíðu og huggun í fang kvenn
anna þegar yfirgangur og kuldi
karlanna gekk um þverbak. Flest
ástarsambönd hennar við konur
áttu sér stað fram hjá þeim karli
sem var í lífi hennar hverju sinni.
Jenna byrjaði fljótlega eftir að
hún hóf að dansa nektardans að
sitja fyrir á nektarmyndum. Ljós
myndarinn átti höfundarrétt á
myndunum og borgaði henni föst
laun. Sjálfur gat hann síðan stór
grætt á að selja sömu myndina
aftur og aftur til hinna og þessara
nektartímarita. Fyrirsætan naut
minnst af ágóðanum. Leiðin í klám
myndirnar reyndist greið eftir að
hafa setið fyrir um nokkurt skeið
og fengið myndir birtar af sér í
flestum karlatímaritum. Jenna var
nægilega skynsöm til að næla sér í
einkasamning við nýstofnað fram
leiðslufyrirtæki og setja ákveðin
skilyrði um hvað hún gerði og
gerði ekki fyrir framan mynda
vélarnar.
Á höfundarréttinn að sjálfri sér
Jenna sökk tvisvar á botn eitur
lyfjafensins en tókst í bæði skiptin
að venja sig af eiturlyfjunum. Hún
var nýbúin að ná sér í seinna
skiptið þegar hún kynnist eigin
manni sínum, Justin (Jay) Sterling.
Sambandið gekk í gegnum hæðir
og lægðir í byrjun en þau giftust
árið 2003. Um svipað leyti ákvað
Jenna að stofna eigið framleiðslu
fyrirtæki og njóta sjálf ávaxtanna
af þeim gróða sem líkami hennar
næði að raka inn. Hún rekur í
dag eigið kvikmyndaframleiðslu
fyrirtæki og vefsíðu og borgar ljós
myndurum fyrir að taka af sér
nektarmyndir sem hún selur
sjálf.
Þau hjónin reka fyrirtækið
saman og aðrar stúlkur hafa leitað
til þeirra og þau hafa gert við þær
samninga og í dag er fyrirtæki
þeirra stórfyrirtæki í bandarískum
klámiðnaði. Jenna segir í lok bókar
innar loks hafa fundið hamingjuna
í fangi Jays. Hún segist einnig að
oft finnist sér líf sitt um þessar
mundir hálfgerður draumur. Með
réttu ætti hún að vera löngu dáin
eins og margir samstarfsmenn
hennar í gegnum tíðina og hún
skilji ekki hvers vegna henni hafi
verið hlíft við þeim örlögum.
Tengsl kynferðisofbeldis og klámiðnaðarins
Margar rannsóknir hafa verið gerðar í Bandaríkjunum, Svíþjóð og víðar sem miða að því að kanna
hvers vegna konur kjósa að stunda vændi eða starfa í klámiðnaðinum. Allar rannsóknir sýna að ótrú
lega hátt hlutfall kvenna sem þar starfa hefur orðið fyrir einhvers konar kynferðislegu ofbeldi á unga
aldri. Sumar rannsóknir sýna að um 80% og ríflega það hafa upplifað kynferðislegt ofbeldi í æsku,
nauðgun eða hópnauðgun. Konurnar hafa nánast allar búið með ofbeldisfullum mönnum sem í
mörgum tilfellum gera þær út.
Sálfræðingar, m.a. hjá Sidransamtökunum í Bandaríkjunum, hafa að undanförnu bent á tengsl
áfallaröskunar og kynferðisofbeldis. Þolendur kynferðisofbeldis sýna sterk merki áfallaröskunar og
þegar ofbeldið er varanlegt getur þetta leitt til persónuleikarofs. Þolendur leitast við að fara eitthvert
annað í huganum til að lifa ofbeldið af og það verður til þess að ákveðin tengsl milli sálar og líkama
rofna þ.e. hugsunin verður sú að það sem kemur fyrir líkama minn kemur ekki endilega fyrir mig.
Nokkrar aðrar staðreyndir hafa þessar kannanir einnig leitt í ljós, m.a. þær að fíkniefnaneysla er
meiri meðal þeirra sem starfa í klámiðnaði en í nokkrum öðrum starfstéttum þar með talið popp
bransanum. Sjálfsmorð eru tíðari en hjá öðrum hópum og konur í þessum hópi verða oftar fyrir of
beldi og morð er algengari dánarorsök hjá þeim en í nokkrum öðrum þjóðfélagshópi. Í ljósi þessara
staðreynda er má velta fyrir sér hvers vegna almenningur telur að konur velji sér starf í þessum
iðnaði af peningagræðgi og hvers vegna karlmenn geta keypt sér þjónustu þessara kvenna?
Óneitanlega minnir það á kennarann sem sagðist berja nemanda sinn af því hann væri hvort eð er
barinn heima hjá sér.
Umtalsvert hefur verið skrifað um þetta efni og m.a. má nefna skrif Gunillu Ekberg, Sheilu Jeffreys
og Janice Raymond. Luisa Ek sem var vændiskona um árabil skrifaði bókina Spelat Liv og leikkonan
Traci Lords skrifar um reynslu sína af klámmyndaheiminum í bókinni, Underneath it all.
Klámstjarnan Jenna Jameson gaf
út ævisögu sína How to Make Love
Like a Porn Star.