19. júní - 19.06.2007, Qupperneq 48
Aðalfundur Kvenréttindafélags
Íslands 2007
Skýrsla stjórnar Kvenréttinda-
félags Íslands vegna starfs-ársins
200-2007
Eftirfarandi er árskýrsla félagsins
tímabilið mars 2006 – apríl 2007,
fyrir aðalfund Kvenréttinda-
félagsins þann 18. apríl 2007.
Eftir stjórnarkjör aðalfundar 2006
sem haldinn var þann 10. apríl
2006, var stjórnin þannig skipuð:
Í framkvæmdastjórn sátu, Þorbjörg
Inga Jónsdóttir formaður, Margrét
K. Sverrisdóttir varaformaður,
Margrét Kr. Gunnarsdóttir ritari,
Margrét Steinarsdóttir gjaldkeri,
Hildur Helga Gísladóttir, Ragn
hildur G. Guðmundsdóttir, Rósa
Björk Brynjólfsdóttir og Svandís
Ingimundardóttir í meðstjórn.
Í aðalstjórn félagsins sátu auk
framkvæmdastjórnarkvenna:
Aðalheiður Franzdóttir fyrir
Samfylkinguna, Helga Guðrún
Jónasdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk
inn, María Marta Einarsdóttir fyrir
Framsóknarflokkinn, Sóley Tómas
dóttir fyrir Vinstrihreyfinguna
Grænt framboð og Sólborg Alda
Pétursdóttir fyrir Frjálslynda flokk
inn. Á haustmánuðum tók Silja
Bára Ómarsdóttir við af Sóleyju
sem fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar
Græns framboðs og þá vék
Sólborg Alda úr stjórn sem fulltrúi
Frjálslynda flokksins í mars sl.
Halldóra Traustadóttir var ráðin
framkvæmdastjóri félagsins frá
1. janúar 2007 í hálfu starfi, en
fram að þeim tíma var félagið
ekki með framkvæmdastjóra á
starfsárinu vegna fjárskorts.
Starf Kvenréttindafélagsins frá
aðalfundi 2006 hefur einkennst
af fundahöldum um jafnréttismál
svo og heimsóknum erlendra
aðila sem komið hafa hingað til
lands, til að heimsækja félagið og
aðra til að kynna sér jafnréttis
mál. Við fengum til okkar stórar
sendinefndir frá Kína og Hollandi
í byrjun sumars 2006, auk sendi
nefndar frá Lettlandi og fjölda ein
staklinga sem vildu kynna sér jafn
réttismál og starfsemi félagsins.
Á fyrri hluta síðasta árs ákvað
stjórn félagsins að fara í funda
ferð um landið og halda fundi um
jafnréttismál á fimm til sex stöð
um á landinu í samstarfi við heima
fólk ekki síst vegna bæjarstjórnar
kosninga sem voru í maí 2006.
Vegna anna hefur ekki tekist að
koma öllum fundunum í fram
kvæmd en haldnir hafa verið
fundir á Akureyri og undirbúnir
fundir á Ísafirði og á Bifröst. Starf
félagsins var á þessu starfsári að
öðru leyti helgað 100 ára afmæli
félagsins sem haldið var í Ráð
húsi Reykjavíkur þann 27. janúar
2007, auk þess sem ýmsir atburð
ir voru skipulagðir í tilefni af því.
Tímaritið 19. júní
Útgáfa 19. júní 2006 var að venju
stór hluti af starfi félagsins á
árinu og var ákveðið að dreifa því
endurgjaldslaust að þessu sinni
þ.s. smásala á tímaritinu hefur
skilað litlum tekjum. Ritstjóri 19.
júní 2006 var Rósa Björk Brynjólfs
dóttir fréttakona og auk hennar
sátu í ritstjórn Helga Björg Ragnars
dóttir, Helga Arnardóttir, Elva
Björk Sverrisdóttir og Gyða Péturs
dóttir. Félagið annaðist sjálft
dreifingu tímaritsins, Steindórs
prentGutenberg sá um prentun
og uppsetningu og þá var samið
við Hæni um auglýsingasölu eins
og árið áður. Útgáfu blaðsins var
fylgt eftir með kynningu í fjölmiðl
um og í móttöku sem haldin var
þann 19. júní að Hallveigarstöð
um. Þann 19. júní var farið í sögu
göngu um kvennaslóðir í Kvosinni
sem endaði í móttöku að Hall
veigarstöðum þar sem eigendur
hússins, Kvenfélagasamband
Íslands og Bandalag kvenna í
Reykjavík, auk Kvenréttinda
félagsins, buðu í kaffi. Er þessi
ganga og móttaka að henni
lokinni á Hallveigarstöðum orðin
árviss viðburður og var mikil þátt
taka í henni í júní 2006 eins og
undanfarin ár. Sama kvöld var að
venju kvennamessa við Þvotta
laugarnar í Laugardal í samvinnu
Kvenréttindafélagsins, Kvenna
kirkjunnar og Kvenfélagasam
bands Íslands og var þátttaka í
henni einnig mjög góð.
100 ára afmælishátíð
Kvenréttindafélagið hélt glæsilega
afmælishátíð í Tjarnarsal Ráð
húss Reykjavíkur 27. janúar sl., á
100 ára afmælisdegi félagsins.
Þótti hátíðin vel heppnuð og fjöldi
gesta lagði leið sína í Tjarnar
salinn. Áætlað var að um 100
manns hefðu mætt á hátíðina
sem lauk með veitingum í boði
félagsins og Reykjavíkurborgar.
Fundir um jafnréttismál
Kvenréttindafélag Íslands hefur
staðið að nokkrum opnum fund
um, bæði í samvinnu við aðrar
kvennahreyfingar sem og á eigin
vegum á þessu ári. Taldir upp í
tímaröð, er fyrst að geta Þorra
blóts Kvenréttindafélagsins með
þingmönnum í samkomusal Hall
veigarstaða í febrúar sl. þar sem
umræða var um jafnréttismál og
opinberan fjárstuðning við félaga
samtök kvenna. Í öðru lagi má
geta morgunverðarfundarins
„Stefnumót við stjórnmálaflokk
anna“, á Grand Hótel 21. febrúar,
sem haldin var í samvinnu við ýmis
önnur kvennafélög.
Þar á eftir kom fundur í Ráð
húsi Reykjavíkur 8. mars – á
alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Fundurinn var mjög vel sóttur og
þótti heppnast vel en sem fyrr
voru það ýmis samtök er stóðu að
fundinum. Síðast en ekki síst stóð
KRFÍ fyrir hádegisfundi, 28. mars
sl. undir yfirskriftinni „Konur og
pólitík – stjórnmálaþátttaka
kvenna og jafnréttisstefna flokk
anna.“ Fulltrúar sex stjórnmála
hreyfinga er buðu fram til al
þingiskosninganna í vor sátu fyrir
svörum í pallborði og voru jafn
réttismálin rædd. Fyrir Samfylk
inguna kom Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, fyrir Íslandshreyfing
una – lifandi land mætti Daníel
Helgason, fyrir Sjálfstæðisflokkinn
kom Guðfinna Bjarnadóttir, fyrir
Vinstrihreyfinguna – grænt fram
boð kom Gestur Svavarsson, fyrir
Framsóknarflokkinn kom Siv
Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra
og fyrir Frjálslynda flokkinn mætti
Ásgerður Jóna Flosadóttir.
Fundur Kvennanefndar Sameinuðu
þjóðanna
Kvenréttindafélagið átti fulltrúa í
sendinefnd Íslands á fund
Kvennanefndar Sameinuðu þjóð
anna sem haldinn var í New York
26. febrúar – 9. mars sl. Fyrir
félagið tók þátt undirrituð sem
sótti einnig samstarfsfund stjórn
ar IAW sem haldinn var í New
York á sama tíma. Fjölmörg um
fjöllunarefni voru á fundi kvenna
nefndarinnar svo og á málstofn