19. júní - 19.06.2007, Qupperneq 49
9
Aðalfundur Kvenréttindafélags
Íslands 2007
um og fundum frjálsra félaga
samtaka sem haldnir voru sam
hliða. Íslenska sendinefndin átti
aðild að tveimur málstofum á
fundinum og var önnur þeirra
eingöngu íslensk með áherslu á
frjáls félagasamtök kvenna,
kvennafrídaginn og kvennafram
boðin, auk þess sem fjallað var
sérstaklega um Hjallastefnuna
sem tæki í jafnréttisuppeldi barna.
Erlent samstarf
Kvenréttindafélagið er aðili að
samstarfi norrænna kvenréttinda
félaga innan samstarfshópsins,
NOKS, (Nordiske kvindeorgani
sationer i samarbejde), og var
haldinn einn fundur á vegum
hópsins 2006, í aprílmánuði,
undir stjórn NYTKIS, sem er
samstarfsvettvangur finnskra
kvennafélaga. Fundurinn var
haldinn í Tallinn í Eistlandi, ásamt
fulltrúum frá kvennasamtökum í
Eystrasaltslöndunum og voru
Margrét Steinarsdóttir og undir
rituð fulltrúar félagsins á fund
inum. Umfjöllunarefni fundarins
var mansal og vændi og sóttu
fundarkonur málþing um það
efni sem haldið var í Háskólanum
í Tallinn í tengslum við fundinn.
Í byrjun nóvember 2006 tóku
undirrituð og Margrét Steinars
dóttir þátt í alþjóðafundi IAW,
International Alliance of Women,
sem haldinn var í París en undir
rituð hefur setið í stjórn samtak
anna frá september 2002.
Fundurinn var opinn fyrir öllum
stjórnarkonum IAW og formönn
um eða öðrum fulltrúum frá
stjórnum aðildarfélaga IAW. Þar
var ákveðið að næsti aðalfundur
samtakanna yrði haldinn í Suður
Afríku í nóvember 2007, en fund
arboð vegna þess fundar hefur
enn ekki borist.
Heimasíða
Heimasíða Kvenréttindafélagsins
hefur verið uppfærð og ekki úr
vegi að fylgjast með starfinu þar
en slóðin er sem áður www.krfi.is.
Þessi skýrsla hefur að geyma
það helsta úr starfi Kvenréttinda
félagsins síðasta starfsár, en alls
ekki tæmandi talningu á þeim
verkefnum sem unnið var að á
vegum félagsins, enda ávallt í
mörg horn þar að líta.
Reykjavík, 18. apríl 2007
Þorbjörg I. Jónsdóttir formaður
Kvenréttindafélags Íslands
Myndin er af stjórninni eins og hún leit út í janúar s.l. Á síðasta aðalfundi í apríl, hættu tvær en enginn hefur komið í þeirra stað. Þær sem hættu
voru: Margrét Kr. Gunnarsdóttir og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, önnur og fyrst í efri röð frá hægri.
Annars eru á myndinni, aftari röð frá vinstri: Silja Bára Ómarsdóttir, Sólborg A. Pétursdóttir, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Helga Guðrún Jónasdóttir,
Hildur Helga Gísladóttir. Neðri röð frá vinstri: Margrét K. Sverrisdóttir, Halldóra Trasutadóttir (framkvæmdastjóri), Margrét Steinarsdóttir, Svandís
Ingimundardóttir og Ragnhildur G. Guðmundsdóttir. Einnig eru í stjórn KRFÍ, en vantar á myndina: Aðalheiður Franzdóttir og María Marta
Einarsdóttir.