Gerðir kirkjuþings - 1972, Qupperneq 10

Gerðir kirkjuþings - 1972, Qupperneq 10
1972 8. Kirk.juþing 3. mál Frh. Þar eð vaxandi óánægju gætir með prestskosningar í núverandi mynd og einnig með það tómlæti, sem Alþingi hefur sýnt þessu máli, þótti kirkjuráði rétt að flytja það enn á Kirkjuþingi til þess að kanna að nýju viðhorf þingsins og koma til móts við ítrekaðar- óskir um að hélda málinu vakandi. Ákvað kirkjuráð að flytja frumvarpið óbreytt, eins og Kirkjuþing hafði áður gengið frá því. Löggjafarnefnd flkk málið til meðferðar. Nefndin var skipt í afstöðu sinni. Meiri hlutinn, Ástráður Sigursteindórsson, sr. Eiríkur J. Eiríksson, sr. Sigurður Guðmundsson, Gunnlaugur Finnsson og Ásgeir Magnússon, lagði fram svofellda ályktun til samþykktar Kirkjuþings. Framsögum. var Ástráður Sigursteindórsson: Kirkjuþing 1972 telur brýna nauðsyn bera til að afnema prestskosningar í þeirri mynd, sem þær nú eru. Þingið lýsir því stuðningi við Frumvarp um veitingu prestakalla, sem samþykkt hefur verið á tveim Kirkjuþingum og endur- flutt á þessu þingi. Telur þingið ákvæði þess mikla framför frá því, sem nú er. Kirkjuþing felur því kirkjuráði að láta einskis ófreistað til að fylgja fruravarpinu eftir við Alþingi með eftir- töldum breytingum. (Breytinganna getið síðar). Þessi ályktun var samþykkt með 12 atkvæðum, mótatkvæði var 1 en 2 sátu hjá. Þar með var fallið nefndarálit minnihlutans, þeirra sr. Bjarna Sigurðssonar og sr. Gunnars Árnasonar. Sr. Bjarni Sigurðsson hafði framsögu fyrir þeirra hönd, en álit þeirra var þetta: Tillaga um breytingu á lögum nr.32,3.nóv. 1913: a) Fyrri hluti fyrri málsliðar l.gr. laganna orðist svo: Þegar prestalcall losnar og prestur er eigi kallaður til embættisins,sbr. 22.gr., auglýsir biskup það með hæfilegum umsóknarfresti ...... b) Aftan við 21.gr. komi ný grein, 22.gr., svohljóðandi: Safnaðarnefnd er skipuð sóknarnefndum og safnaðarfull- trúum prestakalls, og stýrir prófastur fundum hennar eða annar, sem biskup kveður til. Heimilt er safnaðarnefnd að kalla prest. Ef 3A safnaðarnefndarmanna eru einhuga um að kalla tiltekinn prest eða guðfræðikandidat án umsóknar, gera þeir prófasti viðvart um það í tæka tíð, en hann til- kynnir ^biskupi, sem felur þá prófasti að boða safnaðar- nefnd á fund innan viku, og er þá embættið eigi auglýst. Samþykki 3/4 safnaðarnefndar að kalla tiltekinn mann til embættisins, sem lögum samkvaant á rétt til prests- embættis í þjóðkirkjunni, skal biskup birta köllunina þeim presti eða kandidat, sem í hlut á. Taki hann köll- un, skal veita honum embættið. Frh.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.