Gerðir kirkjuþings - 1972, Blaðsíða 11

Gerðir kirkjuþings - 1972, Blaðsíða 11
1972 8. Kirkjuþing 3 ♦ mál Frh. Auk framangreindrar tillögu ályktar minni hlutinn, a5 stefna beri að því að sníða agnúa af gildandi lögum um veitingu prestakalla umfram það, sem hér er gert, sbr. m.a. tillögur, sem bornar hafa verið fram í kirkjuráði. Allar breytingatillögur meirihlutans voru samþykktar. Einstakar greinar frumvarpsins voru samþykktar mót- atkvæðalaust, nema 5- og 6.gr., þ.gr. var samþykkt með 12 : 1, 6.gr. með 14 : 1. Frumvarpið í heild var loks samþykkt með 14 : 1 atkv. og fer það hér á eftir með áorðnum breytingum: 1. gr. Þegar prestakall losnar og prestur er eigi kallaður til embættis- ins (sbr. 6.gr.), auglýsir biskup kallið með hæfilegum umsóknar- fresti. 2. gr. Að liðnum umsóknarfresti sendir biskup prófasti hlutaðeigandi prófastsdCTiis, sé hann eigi umsækjandi, svo og sóknarnefndum prestakallsins, skrá yfir þá, er sótt hafa, ásamt skýrslu um aldur þeirra, náms- og embættisferil og störf. Jafnframt sendir hann prófasti nægilega marga atkvæðaseðla með nöfnum umsækjenda, og felur honum að boða kjörmenn prestakallsins á sameiginlegan fund innan tiltekins tíma. Kjörmenn eru: Sóknarnefndarmenn og safnaðarfulltrúar prestakalls- ins (aðalmenn). Fyrsti varamaður tekur sæti aðalmanns, ef for- fallaður er. Ef safnaðarfulltrúi er jafnframt sóknarnefndarmaður, tekur varamaður sæti hans í sóknarnefnd. Sé prófastur héraðsins umsækjandi um kallið, nefnir biskup annan prófast til í hans stað. 3*gr. Á kjörmannafundi skulu umsóknir ásamt umsögnum biskups liggja frammi til athugunar. Fundurinn er lokaður og stýrir prófastur honum. Ef meirihluti kjörmanna samþykkir, að kjör skuli fram fara, skal það framkvæmt með þeim hætti, sem segir í 4.gr. Að öðrum kosti ráðstafar kirkjumálaráðherra embættinu að fenginni tillögu biskups. Frh.

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.