Fréttablaðið - 24.02.2016, Page 2
Suðaustan 3-8, él og frostlaust allra vestast
á landinu í dag en annars hægviðri og bjart
að mestu og frost 0 til 15 stig, kaldast inn
til landsins. Sjá Síðu 18
Veður Tré grisjuð
Tekið var til hendinni við grisjun trjáa í frostinu í gær nálægt gatnamótum Miklubrautar og Reykjanesbrautar neðan við Ártúnsbrekku í Reykjavík.
Guðlaug Þorsteinsdóttir, yfirverkstjóri á skrifstofu reksturs og umhirðu hjá borginni, segir um reglubundna hreinsun að ræða. Fréttablaðið/Vilhelm
Á einni viku var tvisvar ráðist inn á heimili sömu konunnar í móabarði og hún beitt
alvarlegu kynferðislegu ofbeldi. Fréttablaðið/Vilhelm
LögregLumáL Síðustu vikuna hafa
tvær, að því virðist tilefnislausar,
árásir verið gerðar á sömu konuna
í Móabarði í Hafnarfirði. Frétta-
blaðið heyrði hljóðið í nokkrum
nágrönnum konunnar en enginn
vildi koma fram undir nafni enda
fólk óttaslegið. Þeir eru undrandi
yfir að ekki sé búið að yfirheyra
alla í götunni. Til að mynda hafi
ekki verið rætt við fólk sem býr í
sama húsi og konan eða fólk í nær-
liggjandi húsum.
Kynferðisbrotadeild lögregl-
unnar fer með rannsókn málsins
og leitar að karlmanni sem grun-
aður er um brotin. Lýst hefur verið
eftir honum í fjölmiðlum en ekki
er vitað hver maðurinn er. Í fyrri
árás virðist maðurinn hafa villt á
sér heimildir. Hann sagðist vera frá
Orkuveitunni og þóttist ætla að lesa
á mæla. Síðari árásin var gerð tæpri
viku síðar, í fyrsta skipti sem konan
var ein heima frá fyrri árásinni en
maðurinn hennar brá sér frá í hálf-
tíma.
Einn nágranninn bendir á að það
séu ekki margir staðir fyrir utan
húsið til að liggja í leyni og njósna
um konuna. Segir hann að hægast
sé fyrir nágranna að fylgjast með
og því ættu nágrannarnir að liggja
undir grun. „Mér væri slétt sama
þótt ég væri grunaður. Komið bara
og talið við okkur,“ segir hann.
Mikil spenna ríkir í hverfinu og
margir finna til óöryggis „Fólk er
búið að gera varúðarráðstafanir.
Menn eru að hlaða haglabyssurnar.“
Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður
kynferðisbrotadeildar lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu, segir að það
sé verið að tala við fólk en vill ekki
tjá sig frekar um yfirheyrslur lög-
reglunnar. „Við erum að vinna úr
þeim fáu vísbendingum sem lög-
reglan hefur,“ segir hann en það
eina sem lögreglan hefur í hönd-
unum er takmörkuð lýsing á mann-
inum frá fórnarlambinu sjálfu.
Aðspurður af hverju konan hafi
ekki verið undir eftirliti eftir fyrstu
árásina og hvort hún sé með vernd
núna segir Árni gagnlaust að upp-
lýsa um slíkt. „Við höfum gripið til
ráðstafana sem ég get ekki farið út
í að lýsa.“
En eruð þið bókstaflega að leita
að manninum? Með öllu tiltæku
liði? „Við erum að rannsaka gögn,“
svarar Árni. erlabjorg@frettabladid.is
Óttaslegnir íbúar
vígbúast í Móabarði
Óhugur er í íbúum Móabarðs eftir alvarlegar árásir í götunni. Menn hafa gripið
til varúðarráðstafana og eru undrandi yfir að lögregla yfirheyri þá ekki þar sem
þeir hljóti að liggja undir grun. Engar nýjar vísbendingar, segir lögregla.
Við erum að vinna
úr þeim fáu vísbend-
ingum sem lögreglan hefur.
Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kyn-
ferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu
SakamáL „Allur kraftur okkar er
í þessari rannsókn og við njótum
aðstoðar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu. Það er verið að taka
skýrslur og afla gagna og rannsóknin
er í fullum gangi,“ segir Þorgrímur
Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á Suður-
landi, um framvinduna á rannsókn á
meintu mansali í Vík í Mýrdal.
Eigandi Vonta International, sem
var undirverktaki Ice wear, situr nú
í gæsluvarðhaldi og tvær konur sem
hafa stöðu þolenda mansals eru í
öruggu skjóli. Þær fá aðstoð og vernd
í samræmi við aðgerðaáætlun ríkis-
stjórnarinnar gegn mansali.
Þorgrímur Óli segir ekkert nýtt
hafa komið fram en lögreglunni
hafi þó borist ábending sem tengist
mansali. „Við höfum ekki haft tök á
að skoða hana enn.“
Lögreglan á Suðurlandi hefur eitt
annað mansalsmál til rannsóknar
sem tengist gistiheimili á Selfossi.
Upphaf málsins má rekja til ársins
2014, tvær pólskar konur höfðu
stöðu þolenda mansals og eru komn-
ar úr landi. Þær nutu meðal annars
aðstoðar Bárunnar stéttarfélags.
Enn hefur meintur gerandi máls-
ins ekki verið tekinn til skýrslutöku
vegna anna lögreglunnar í umdæm-
inu en það stendur til bóta að sögn
Þorgríms Óla. Hann vill engar upp-
lýsingar gefa um málið.
„Við höfum lært mikið af þessu
máli í Vík. Þar fengum við góða
aðstoð. Við erum ekki feimin við að
kalla okkur til aðstoðar sérfræðinga
í þessum efnum. Þá eru verkalýðs-
félögin að vinna í þessum málum og
maður getur alveg búist við því að
það geti eitthvað komið út úr því á
næstunni.“ – kbg
Rannsaka
mansal af
krafti
Við höfum lært
mikið af þessu máli í
Vík. Þar fengum við góða
aðstoð.
Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn á Suðurlandi
LögregLumáL Eldri maður beið
bana í eldsvoða í íbúð í fjölbýlishúsi
við Kleppsveg í Reykjavík snemma í
gærmorgun.
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
barst tilkynning um eldinn klukkan
sex um morguninn. Allt tiltækt
slökkvilið var þegar sent á vettvang
en þegar á staðinn var komið var
hitinn orðinn svo mikill í íbúðinni
að rúður voru farnar að springa.
Reykkafarar héldu þegar inn í
íbúðina, en húsráðandinn var látinn
þegar að var komið.
Flestir aðrir íbúar fjölbýlishússins
yfirgáfu húsið á meðan á slökkvi-
starfi stóð, þótt slökkviliðið teldi
ekki þörf á að rýma húsið, því lítill
reykur fór inn í aðrar íbúðir. Allt er
ónýtt í íbúðinni sem brann. – bo
Karlmaður lét
lífið í eldsvoða
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 m I ð V I k u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð
2
4
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
9
1
-8
7
F
C
1
8
9
1
-8
6
C
0
1
8
9
1
-8
5
8
4
1
8
9
1
-8
4
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K