Fréttablaðið - 24.02.2016, Page 6

Fréttablaðið - 24.02.2016, Page 6
Með Lenín á lofti  Stjórnarskrárnefnd hefur birt tillögur um þrenns konar breytingar á stjórnarskrá. Lagt er til að bætt verði við stjórnarskrá ákvæðum um vernd náttúru og umhverfis, náttúruauðlindir og þjóðaratkvæðagreiðslur að frumkvæði kjósenda. Tillögurnar eru aðgengilegar á stjornarskra.is. Lagastofnun Háskóla Íslands og Lögfræðingafélag Íslands efna til málþings um tillögurnar, miðvikudaginn 24. febrúar kl. 12:00-13:30. Málþingið verður haldið í Hátíðarsal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, Reykjavík. Fundarstjóri er Björg Thorarensen prófessor í stjórnskipunarrétti við Lagadeild Háskóla Íslands. Kynning á tillögum stjórnarskrárnefndar Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og formaður stjórnarskrárnefndar Pallborðsumræður Þátttakendur í pallborði auk Páls Þórhallssonar eru: Ragnhildur Helgadóttir prófessor og deildarforseti Lagadeildar Háskólans í Reykjavik Skúli Magnússon héraðsdómari og formaður Dómarafélags Íslands Málþingið er opið öllum og aðgangur er ókeypis TILLÖGUR UM NÝ STJÓRNARSKRÁRÁKVÆÐI 24. febrúar kl. 12:00-13:30 LAGASTOFNUN LAGASTOFNUN Landbúnaður „Þú kæfir ekki neitt sem hefur ekki verið komið af stað,“ segir Guðmundur Jón Guðmundsson, formaður Beint frá býli, um ummæli Þórólfs Matthíassonar hagfræðipró- fessors í Fréttablaðinu í gær. Þar sagði Þórólfur: „Allur þessi beint-frá-býli hugsunarháttur er algjörlega fyrir utan þetta og það er verið að kæfa hann næstu tíu árin með þessu.“ Málið snýr að nýjum búvörusamn- ingum. Þórólfur vill meina að með samningunum sé bændum haldið í kerfi þar sem nýsköpun sé hindruð. Guðmundur getur að einhverju leyti tekið undir þetta og segir að lítill stuðningur sé á meðal bændaforyst- unnar við verkefnið Beint frá býli. Pólitískur vilji frá atvinnuvegaráðu- neytinu sé þó til staðar og án ráðu- neytisins væri verkefnið orðið að engu. „Það vantar eitthvað í þetta. Þetta er vaxtarbroddur en einhverra hluta vegna hefur það ekki náð flugi að styðja við bakið á mönnum til að koma sér af stað.“ Samkvæmt nýjum búvörusamn- ingum fær Framleiðnisjóður land- búnaðarins 128 milljónir á ári fram til ársins 2026. Það er meira en síðustu ár en samkvæmt fyrri samningum átti sjóðurinn að fá 140 milljónir árið 2017. Beint frá býli hefur, að sögn Guðmundar, fengið sinn stuðning frá Framleiðnisjóðnum en hlutverk sjóðsins er að veita styrki og lán til framleiðniaukningar og hagræðingar í landbúnaði. Hann segir jákvætt að nú sé föst greiðsla bundin sjóðnum. Ragnhildur Helga Jónsdóttir, aðjúnkt við Landbúnaðarháskóla Íslands, er ósammála Þórólfi og segir að í nýjum búvörusamningum sé stutt við margs konar nýsköpun. „Það eru settir peningar í lífræna framleiðslu sem hefur ekki verið gert áður.“ Eftir- spurn sé eftir lífrænum vörum, þá sérstaklega mjólk. Mikill kostnaður geti fylgt því að fara úr hefðbundnum landbúnaði í lífrænan. „Það er alls ekki hægt að segja að þetta sé bull og kjaftæði og engum til góða. Það er verið að koma inn byggðasjónarmiði og styrkja byggðir sem standa veikari. Það er líka liður um sjálfbæra þróun og landnýtingu sem er til bóta.“ Þá skuldbindi útrýmingarhætta íslensku geitarinnar stjórnvöld til að grípa í taumana varðandi geitastofn- inn. „Auk þess er eftirspurn á markaði eftir vörum frá þeim. Með því að styðja við geitaræktina er frekar lagður grund- völlur fyrir því að geitaostur komist á markað.“ snaeros@frettabladid.is Ólík sýn á nýsköpun í búvörusamningum Aðjúnkt við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri segir ekki rétt að nýir búvöru- samningar séu alslæmir fyrir nýsköpun í landbúnaði. Formaður samtakanna Beint frá býli gagnrýnir lítinn stuðning við verkefnið frá bændaforystunni. Í Rússlandi og þeim löndum sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum var í gær fagnað degi Verndara föðurlandsins en hann er haldinn til heiðurs hermönnum í her Rússlands. Hér má sjá ungan dreng taka þátt í hátíðinni, en hann heldur á spjaldi með mynd af rússneska byltingarleiðtoganum Vladimir Lenín. Fréttablaðið/EPa Það er alls ekki hægt að segja að þetta sé bull og kjaftæði og engum til góða. Ragnhildur Helga Jónsdóttir, aðjúnkt við LBHÍ 34 milljónir renna til lífrænnar fram- leiðslu samkvæmt nýjum samningum bandaríkin Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna kynnti í gær áætlun um lokun Guantanamo-fangabúðanna á Kúbu. Ekkert er þó beinlínis nýtt í áætluninni. Lokun búðanna var eitt fyrsta loforð- ið, sem Barack Obama ætlaði að efna eftir að hann tók við embætti forseta Bandaríkjanna fyrir rúmlega sjö árum. Andstaða þingsins við lokunina hefur hins vegar orðið til þess, að enn er þar hafður í haldi 91 fangi. Enginn þeirra hefur hlotið dóm, þrátt fyrir að hafa setið í fimmtán ár í fangabúðun- um. Alls hafa 34 þeirra fengið úrskurð um að óhætt sé að láta þá lausa. „Í mörg ár hefur það legið ljóst fyrir að fangabúðirnar við Guantanamo-flóa styrkja ekki öryggi okkar,“ sagði Barack Obama forseti á blaðamannafundi í gær. „Þær grafa undan því.“ Frá upphafi hafa 779 manns verið hafðir í haldi í Guantanamo. Margir þeirra hafa mátt sæta alvarlegum pyntingum af hálfu bandarískra leyni- þjónustumanna. – gb Enn reynir Obama að loka Guantanamo barack Obama ætlar að gera úrslitatilraun til að fá bandaríkjaþing til að fallast á lokun fangabúðanna umdeildu. NOrdicPhOtOs/aFP 2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M i ð V i k u d a G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 2 4 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 9 1 -A F 7 C 1 8 9 1 -A E 4 0 1 8 9 1 -A D 0 4 1 8 9 1 -A B C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.