Fréttablaðið - 24.02.2016, Page 8
NÝR VINNUHESTUR FRÁ ISUZU
VERÐ 5.790.000 BEINSKIPTUR, 6 GÍRA
35OO kg
ISUZU D-MAX ER EINN HAGKVÆMASTI OG STERKASTI
PALLBÍLL SEM UM GETUR
EYÐSLA AÐEINS 7,4 l/1OO km*
Það þarf ekki að segja þeim sem til þekkja neitt um endingu og áreiðanleika
Isuzu D-Max. D-Max pallbílarnir eru hagkvæmir og áreiðanlegir í rekstri vegna
lágrar bilanatíðni og lítillar eldsneytiseyðslu. Isuzu D-Max er í sérflokki hvað
varðar dráttargetu því hann getur dregið allt að 3500 kg.
*M
ið
a
ð
v
ið
e
yð
sl
u
tö
lu
r
fr
á
f
ra
m
le
ið
a
n
d
a
á
b
e
in
sk
ip
tu
m
b
íl
í
b
lö
n
d
u
ð
u
m
a
ks
tr
i.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
NÝTT MEIRI DRÁTTARGETA
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
3
5
0
3
I
s
u
z
u
D
m
a
x
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
J
a
n
Varnaðarorð landlæknis og forstjóra
Landspítalans urðu til þess að vel-
ferðarnefnd Alþingis setti sérstaka
fyrirvara vegna innleiðingar Evrópu-
tilskipunar um réttindi sjúklinga til
heilbrigðisþjónustu yfir landamæri.
Réttur sjúklinga
Um er að ræða breytingu á lögum
um sjúkratryggingar og á lyfja-
lögum vegna tilskipunarinnar. Í
frumvarpi Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar heilbrigðisráðherra, þegar
það kom fram í október 2015, var
kveðið á um rétt sjúkratryggðra til
að sækja sér heilbrigðisþjónustu til
annars ríkis innan Evrópska efna-
hagssvæðisins, án takmarkana eins
og fyrirframsamþykkis – að Sjúkra-
tryggingum Íslands væri gert að
endurgreiða kostnað eins og með-
ferðin hefði verið veitt hér heima.
Þegar Kristján mælti fyrir málinu
sagði hann að mat stjórnvalda væri
að ekki verði algengt að sjúklingar
kjósi frekar að sækja þjónustu út
fyrir landsteinana.
Varnaðarorð
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokksins,
mælti fyrir nefndaráliti velferðar-
nefndar í síðustu viku en þriðju
og síðustu umræðu um málið lauk
í gær. Hún segir að varnaðarorð
sem bárust í umsögnum um málið,
og umræður í nefndinni, hafi gert
það að verkum að settar voru upp
ákveðnar girðingar. Nefndin leggur
til að ráðherra kveði í reglugerð á
um hvenær sækja skuli um fyrir-
framsamþykki fyrir endurgreiðslu
kostnaðar við heilbrigðisþjónustu
yfir landamæri, öfugt við það sem
áður var gert ráð fyrir.
Í fyrrnefndum umsögnum koma
fram þungar áhyggjur af málinu, og
þá vegna langra biðlista eftir aðgerð-
um sem hrúgast hafa upp eftir hrun,
en einnig vegna kjaradeilna heil-
brigðisstarfsmanna.
Ógn við öryggi
Inntak umsagna landlæknis og
Landspítalans var að fjárfestingar í
tækjum, búnaði og mannskap í heil-
brigðisþjónustu krefðust ákveðins
lágmarksfjölda sjúklinga til að
standa undir sér og vegna fámennis
á Íslandi gæti það komið niður
á framboði heilbrigðisþjónustu
innanlands, einkum þjónustu sem
krefðist mjög sérhæfðrar þekkingar,
ef fjöldi sjúklinga leitaði heilbrigðis-
þjónustu erlendis. Það gæti ógnað
öryggi sjúklinga. Því má segja að
vegna stöðu heilbrigðiskerfisins, og
þá helst fjölda sjúklinga á biðlistum
og langs biðtíma, hafi landlæknir
og forsvarsmenn Landspítalans lýst
áhyggjum af því að fólk færi í stórum
stíl af landi brott til að sækja sér
lækningu.
Í umsögn Landlæknisembættis-
ins sagði einfaldlega að mikilvægast
væri þegar allt er talið „að standa
vörð um og efla íslenskt heilbrigðis-
kerfi sem mætir þörfum Íslendinga
fyrir heilbrigðisþjónustu og að hún
sé veitt á Íslandi þar sem þekking,
sérhæfing og þjálfun er þegar fyrir
hendi“.
Ragnheiður segir að þrátt fyrir
vissar takmarkanir muni breytingin
engu að síður nýtast vel, og það sé
réttur sjúklinga að hafa þennan
möguleika ef þeir fá ekki þjónustu
hér heima innan þess tíma sem
eðlilegur geti talist – en landlæknir
hefur gefið út að hámarks biðtími
eftir aðgerð eigi ekki að vera lengri
en þrír mánuðir. „En við heyrum
um fólk sem á að komast að árið
2019, og hver er þá staða þess sjúk-
lings og lífsgæði miðað við að hann
kæmist strax undir læknishendur,“
segir Ragnheiður og minnist á að
rætt hafi verið um innan nefndar-
innar að nýta mætti skurðstofur
annars staðar en á Landspítalan-
um til að mæta biðlistum. Eins sé
opnað á að fólk frá 31 Evrópulandi
innan Evrópska efnahagssvæðisins
geti sótt heilbrigðisþjónustu til
Íslands.
Hápólitískt
Fram kemur í gögnum Alþingis
vegna málsins, og þingræðum, að
góður samhljómur hafi verið innan
velferðarnefndar um þessar lyktir
mála. Hins vegar dregur það ekki úr
því hvað málið er hápólitískt.
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar, sagði í þingræðu við
atkvæðagreiðslu eftir aðra umræðu
að málið væri gott dæmi um ávinn-
ing af Evrópusamvinnu „þar sem
fólk fær að losa sig undan ofbeldi
eigin stjórnvalda, ef eigin stjórnvöld
fólks kjósa að hlaða upp biðlistum
eftir brýnni velferðarþjónustu“.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
þingmaður Samfylkingar, sem einn-
ig er formaður velferðarnefndar,
sagði að breytingarnar ættu að
skapa þann þrýsting á stjórnvöld
að halda biðlistum í lágmarki.
Óttuðust flóð sjúklinga til útlanda
Velferðarnefnd ákvað í ljósi almannahagsmuna að setja sérstaka fyrirvara við innleiðingu Evróputilskipunar um réttindi sjúklinga til
að leita sér lækninga í útlöndum. Hlustað var á varnaðarorð landlæknis og forstjóra Landspítalans um áhrif á heilbrigðiskerfið.
Þúsundir manna bíða eftir aðgerðum langt umfram þann tíma sem landlæknir
telur ásættanlegt. fRéttablaðið/VilHelm
Biðin allt of löng
l Landlæknir hefur sett fram þau
viðmið um biðtíma að ekki eigi
að bíða lengur en 90 daga eftir
aðgerð eða tiltekinni meðferð.
l Í lok síðasta árs birti emb-
ættið tölur um biðlista eftir sex
val aðgerðum þar sem þeir eru
lengstir. Samtals var beðið eftir
tæplega 6.000 aðgerðum á þeim
tímapunkti.
l Eftir tæplega 5.000 hafði verið
beðið lengur en 90 daga.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a Ð I Ð
2
4
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
9
1
-A
A
8
C
1
8
9
1
-A
9
5
0
1
8
9
1
-A
8
1
4
1
8
9
1
-A
6
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K