Fréttablaðið - 24.02.2016, Qupperneq 10
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
verður haldinn fimmtudaginn 17. mars
2016 kl. 16.00 í sal I á Hilton Reykjavík
Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á
síðastliðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár
ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram
til staðfestingar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs
félagsins.
4. Tillögur til ákvörðunar um lækkun hlutafjár
og heimild til kaupa á eigin bréfum.
5. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjara-
stefnu félagsins.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnar.
7. Kosning stjórnar félagsins.
8. Önnur mál löglega fram borin.
Hluthafar hafa heimild til að fá ákveðið mál tekið
til dagskrár á fundinum og skal kröfu þar um
fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem
berast skal stjórn félagsins skriflega eða rafrænt
á netfangið stjorn@tm.is í síðasta lagi 7. mars
næstkomandi.
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafa-
fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal
leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð á
eyðublaði eða í samræmi við eyðublað sem
aðgengilegt er á vef félagsins - tm.is/fjarfestar.
Rafrænt umboð skal sent félaginu á netfangið
stjorn@tm.is áður en fundur hefst.
Ekki verður unnt að greiða atkvæði með
rafrænum hætti á fundinum. Óski hluthafi
að taka fyrirfram þátt í atkvæðagreiðslu skrif-
lega og fá sendan atkvæðaseðil skal hann gera
skriflega kröfu þar um til félagsins eigi síðar en
fimm dögum fyrir fundinn. Að auki er unnt að
greiða atkvæði á skrifstofu félagsins á venju-
legum opnunartíma (kl. 8:30 til 16:30) til og með
miðvikudeginum 16. mars 2016, en fyrir lokun
skrifstofunnar þann dag skal einnig skila þangað
sendum atkvæðaseðlum. Nánar fer um atkvæða-
greiðsluna og gildi atkvæða samkvæmt henni
eftir reglum félagsins um atkvæðagreiðslu utan
hluthafafundar, settum af stjórn félagsins
18. desember 2013.
Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til
félagsstjórnar skemmst fimm dögum fyrir hlut-
hafafundinn.
Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku
eyðublaði sem stjórn félagsins lætur í té og unnt
er að nálgast á tm.is/fjarfestar. Í tilkynningunni
skal veita greinargóðar upplýsingar um þau
atriði sem tilgreind eru á eyðublaðinu, sbr. 1. mgr.
16. gr. samþykkta félagsins. Unnt er að senda
félagsstjórninni útfyllta og undirritaða fram-
boðstilkynningu fyrir lok framboðsfrests með
tölvuskeyti á netfangið stjorn@tm.is.
Dagskrá aðalfundarins og tillögur sem fyrir hann
verða lagðar, svo og aðrar nauðsynlegar upp-
lýsingar um fundinn má finna á tm.is/fjarfestar.
Að auki mun ársreikningur (samstæðureikningur)
félagsins, skýrsla stjórnar, skýrsla endurskoðenda
og tillaga stjórnar um starfskjarastefnu liggja
frammi á skrifstofu og á vef félagsins hluthöfum
til sýnis hálfum mánuði fyrir fundinn.
Eigi síðar en tveimur dögum fyrir fund verða
birtar á vef félagsins upplýsingar um framboð til
stjórnar.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á
fundinn á fundarstað hálfri klukkustund áður en
hann hefst og fengið fundargögn afhent.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Tryggingamiðstöðin hf.
Aðalfundur 2016
Tryggingamiðstöðin Síðumúla 24 Sími 515 2000 tm@tm.is tm.is
Sýrland Stefnt er að því að vopnahlé
hefjist í Sýrlandi á laugardaginn kemur.
Bæði uppreisnarmenn og stjórnarher-
inn í Sýrlandi hafa fallist á þetta.
Átökin við Íslamska ríkið, DAISH-
samtökin svonefndu, halda þó áfram
enda hefur ekki verið reynt að semja
við þau um vopnahlé. Sama gildir um
Jabhat al Nusra og fleiri hópa, sem
Sameinuðu þjóðirnar flokka sem
hryðjuverkasamtök.
Rússar og Bandaríkjamenn hafa
ákveðið að hafa eftirlit með þessu
vopnahléi og sjá til þess að það haldi.
Þetta kom fram í sameiginlegri yfir-
lýsingu frá þeim á mánudag.
Sama dag skýrði Bashar al Assad,
forseti Sýrlands, frá því að þingkosn-
ingar verði haldnar 13. apríl, innan
tæpra tveggja mánaða. Af yfirlýsingu
Assads verður þó ekki ráðið, að með
þessu sé hann að bregðast við yfirlýs-
ingum um vopnahlé, því reglubundið
fjögurra ára kjörtímabil þingsins
rennur hvort eð er út nú í vor. Síðast
var kosið til þings í Sýrlandi í maí árið
2012.
Víða eru miklar efasemdir um að
vopnahlé verði að veruleika í Sýr-
landi, eftir linnulaus átök árum
saman.
Það vekur hins vegar nokkrar
vonir að Vladimír Pútín skuli leggja
áherslu á að vopnahlé verði að veru-
leika. Þannig hafði hann frumkvæði
að símtali við Barack Obama Banda-
ríkjaforseta á þriðjudaginn, þar sem
þeir ræddu framkvæmdaratriði í
tengslum við vopnahléið.
Pútín er að mörgu leyti í lykilstöðu
til þess að hafa áhrif á þróun mála í
Sýrlandi. Að minnsta kosti getur hann
líklega fremur en nokkur annar beitt
þrýstingi á Bashar al Assad Sýrlands-
forseta. Assad ætti erfitt með að neita,
kjósi Pútín að beita hann þrýstingi.
„Ég er sannfærður um að þær sam-
eiginlegu aðgerðir sem samið hefur
verið um við Bandaríkin muni duga
til þess að umsnúa með róttækum
hætti neyðarástandinu sem ríkt
hefur í Sýrlandi,“ sagði Pútín í gær. Í
framhaldinu verði brýnast að koma
af stað friðarviðræðum í Genf undir
stjórn Sameinuðu þjóðanna.
Stríðsátök hafa nú geisað í Sýrlandi
í nærri fimm ár og kostað meira en
250 þúsund manns lífið. Meira en
níu milljónir manna hafa hrakist að
heiman, þar af eru meira en þrjár
milljónir á flótta utan landsteinanna.
Um 300 þúsund sýrlenskir flótta-
menn eru komnir til Evrópu, og eru
þeir nærri þriðjungur allra þeirra
flóttamanna sem komu til Evrópu á
síðasta ári. Nærri tvær milljónir sýr-
lenskra flóttamanna eru síðan í Tyrk-
landi, rúmlega ein milljón í Líbanon
og meira en 600 þúsund í Jórdaníu.
gudsteinn@frettabladid.is
Stefnt að vopnahléi á laugardag
Sýrlandsstjórn og helstu fylkingar sýrlenskra stjórnarandstæðinga hafa fallist á vopnahlé. Kjósa á 13. apríl.
Íbúi Damaskusborgar gengur fram hjá veggspjaldi með mynd af Bashar al Assad Sýrlandsforseta. NorDicphotoS/AFp
Ég er sannfærður
um að þær sam-
eiginlegu aðgerðir sem samið
hefur verið um við Banda-
ríkin muni duga til þess að
umsnúa með róttækum
hætti neyðar-
ástandinu sem
ríkt hefur í
Sýrlandi.
Vladimír Pútín, forseti
Rússlands
Bandaríkin Þjóðaröryggisstofnun
Bandaríkjanna (NSA) hleraði fund
aðalritara Sameinuðu þjóðanna,
Ban Ki-Moon og kanslara Þýska-
lands, Angelu Merkel, um loftslags-
mál árið 2008.
Þetta kemur fram í gögnum sem
samtökin Wikileaks gerðu opinber
í gær.
Þá hleraði stofnunin einnig síma
yfirmanns Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna til lengri tíma
og beiðni forsætisráðherra Ísraels,
Benjamíns Netanjhú, til þáverandi
forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlus-
coni, um hjálp til að bæta samskipti
sín við Bandaríkin. Eins kemur fram
í gögnunum að hleraður hafi verið
fundur þáverandi Frakklandsforseta,
Nicolas Sarkozy, Merkels og Berlus-
coni um ítalska bankakerfið. – þea
Ljóstrað upp um
hleranir NSA
orkumál Án endurnýjanlegrar orku
væri koltvísýringslosun Íslendinga
nálægt því helmingi meiri en hún er
í dag. Þetta kom fram í erindi Bjarna
Bjarnasonar, formanns Samorku, á
ársfundi félagsins í vikunni sem leið.
Heildarlosun Íslands í dag er um
4,6 milljónir tonn ár hvert og hefur
verið á svipuðu róli allt frá árinu
1990. Ef hitaveitu nyti ekki við og
nota þyrfti olíu til að húshitunar,
þá væri losunin tæpar sex millj-
ónir tonna á ári. Ef rafmagn væri
framleitt með öðrum hætti en með
endur nýjanlegri orku, þá væri los-
unin um átta milljónir tonna. Þar er
stóriðja undanskilin. – shá
Losun væri
helmingi meiri
2 4 . f e B r ú a r 2 0 1 6 m i Ð V i k u d a G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð
2
4
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
9
1
-9
6
C
C
1
8
9
1
-9
5
9
0
1
8
9
1
-9
4
5
4
1
8
9
1
-9
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K