Fréttablaðið - 24.02.2016, Síða 13

Fréttablaðið - 24.02.2016, Síða 13
Mál sem Embætti sérstaks saksóknara hefur höfðað gegn fyrrverandi starfs­ mönnum fjármálafyrirtækja hafa verið fyrirferðarmikil í réttarkerf­ inu og umfjöllun fjölmiðla síðari ár. Málin hafa iðulega verið mikil að vöxtum og algengt að málsgögn nemi þúsundum eða tugþúsundum blaðsíðna. Verjendur einstakling­ anna sem sóttir hafa verið til saka í þessum málum hafa gagnrýnt starfsaðferðir embættisins, jafnt við rannsókn málanna sem með­ ferð þeirra fyrir dómi. Meðal þess sem sætt hefur gagnrýni er með­ ferð embættisins á gögnum sem aflað hefur verið við rannsókn málanna. Sökuðum mönnum er í lögum tryggður aðgangur að gögnum máls. Samkvæmt 37. gr. sakamála­ laga skal verjandi „fá afrit af öllum skjölum máls sem varða skjól­ stæðing hans, svo og aðstöðu til að kynna sér önnur gögn í málinu“. Réttur sakaðs manns til aðgangs að sömu gögnum og ákæruvaldið hefur aflað við rannsókn máls er jafnframt ríkur þáttur í grund­ vallarreglunni um réttláta máls­ meðferð sem birtist í 6. gr. Mann­ réttindasáttmála Evrópu og 70. gr. stjórnarskrárinnar. Þessi mikil­ væga regla hefur verið umfjöll­ unarefni í fjölmörgum dómum Mannréttinda­ dómstóls Evr­ ópu. Við rannsókn Embættis sér­ staks saksókn­ ara á málefnum föllnu viðskipta­ bankanna hafa f y r r v e r a n d i starfsmenn og verjendur þeirra hvorki fengið afhent þau gögn sem aflað var við rannsóknina né aðstöðu til að kynna sér gögnin. Þess í stað hafa rannsakendur sjálf­ ir lagt mat á það hvaða gögn teljast hafa sönnunargildi og hver ekki. Aðgangur verjendanna og skjól­ stæðinga þeirra er bundinn við þau gögn. Af því leiðir að margir sem sóttir hafa verið til saka fyrir meinta refsiverða háttsemi hafa átt þann kost einan að treysta því að starfsmenn embættisins hafi við þetta mat hugað jafnt að gögnum sem benda til sektar sem hinna sem leitt geta til sýknu. Mótmæli verjenda gegn starfsháttum emb­ ættisins og kröfur um aðgang að rannsóknargögnum hafa lítinn hljómgrunn fengið fyrir dóm­ stólum. Við meðferð máls sem ákæru­ valdið höfðaði gegn þremur fyrr­ verandi stjórnendum Kaupþings, þar sem undirrituð voru verjendur og dæmt var 26. janúar sl. í Héraðs­ dómi Reykjavíkur, gerðist það hins vegar að ákærðu var veittur aðgangur að litlum hluta gagnanna sem ákæruvaldið hafði aflað við rannsókn málsins. Um var að ræða tölvupósthólf tveggja viðskipta­ stjóra en annar þeirra hafði gegnt lykilhlutverki við framkvæmd lánveitinganna sem ákæruvaldið taldi til umboðssvika. Í ákæru var fullyrt að lán hafi verið veitt án Réttlát málsmeðferð? Ákvörðun dómara um að veita ákærðu þennan tak- markaða aðgang að gögnum skipti hér sköpum við úrlausn málsins. Ef kröfum ákærðu hefði verið hafnað er ljóst að mikilvæg gögn hefðu aldrei komið fyrir augu dómara málsins. Málið hefði þá verið dæmt á grund- velli þeirra gagna einna sem ákæruvaldið taldi máli skipta. Gestur Jónsson hæstaréttarlög- maður Hörður Felix Harðarson hæstaréttarlög- maður Kristín Edwald hæstaréttarlög- maður Kolvetnaskert og próteinríkt með suðrænu bragði – Nú fáanlegt í 500 g umbúðum Náttúrulegur sætugjafi Hafðu okkur með í ráðum 569 6900 08–16www.ils.is nokkurra trygginga. Ákærðu and­ mæltu þessu, m.a. á þeim grunni að andvirði lánanna hafi runnið til kaupa á skuldabréfum útgefnum af Deutsche Bank. Töldu ákærðu að skuldabréfin hefðu verið í vörslum bankans og staðið til tryggingar umræddum lánum. Aðgangur að gögnum skipti sköpum Það tók ákærðu og verjendur fáeinar klukkustundir að finna gögn í tölvupósthólfi annars við­ skiptastjórans þar sem sjá mátti að skuldabréfin voru kyrfilega veð­ sett bankanum. Meðal gagnanna voru skjámyndir úr tölvukerfum bankans sem sýndu glöggt varð­ veislu skuldabréfanna, sem voru rafrænt skráð, auk samskipta milli starfsmanna bankans um þetta efni. Í dómi héraðsdóms var vísað til þessara nýju gagna, auk fram­ burða ákærðu og vitna sem voru í samræmi við gögnin, og komist að þeirri niðurstöðu að fullyrðingar í ákæru um að lánin hafi verið veitt án trygginga væru rangar. Þegar af þessari ástæðu voru ákærðu sýkn­ aðir. Ákæruvaldið reyndi á öllum stig­ um málsins að koma í veg fyrir að ákærðu kæmust í þessi gögn. Nið­ urstöðu héraðsdóms um aðgang skaut ákæruvaldið til Hæstaréttar. Þeirri kæru var vísað frá af forms­ ástæðum. Ákæruvaldið barðist einnig gegn því að gögn sem fund­ ust við leit ákærðu og verjenda þeirra kæmust að í dómsmálinu og skaut þeim ágreiningi einnig til Hæstaréttar en aftur án árangurs. Ákvörðun dómara um að veita ákærðu þennan takmarkaða aðgang að gögnum skipti hér sköp­ um við úrlausn málsins. Ef kröfum ákærðu hefði verið hafnað er ljóst að mikilvæg gögn hefðu aldrei komið fyrir augu dómara máls­ ins. Málið hefði þá verið dæmt á grundvelli þeirra gagna einna sem ákæruvaldið taldi máli skipta. Sú staða hefur verið uppi í öðrum málum sem rekin hafa verið á hendur þessum sömu einstakl­ ingum og mörgum öðrum. Er ekki eitthvað rangt við þetta? Hvernig samrýmist þetta framangreindum grundvallarreglum um jafnan aðgang ákæruvalds og ákærðu að gögnum? Mér skilst að einhver nefnd sé að endurskoða regluverk TR og þess vegna langar mig að leggja orð í belg um málið. Ég vann lengi á hávaðasömum vinnustað og af þeim sökum minnk­ aði heyrnin smám saman sem end­ aði með því að ég varð að fá mér heyrnartæki. Slík tæki kostuðu um kr. 400.000. Nú er það svo að stéttar­ félagið sem ég er í hefur öflugan sjúkrasjóð og félagið veitti mér styrk vegna heyrnartækjakaupanna upp á kr. 100.000 svo minn hlutur minnk­ aði í kr. 300.000. Nú kemur það fram við árlega skoðun TR á því hvort eftirlaun frá TR hafi verið rétt reiknuð til hvers og eins, að þar sem ég hafði fengið þennan styrk frá mínu stéttarfélagi hefði ég fengið of há eftirlaun frá TR og mér gert að endurgreiða það sem ofgreitt hafði verið. Ég ræddi þetta við fulltrúa TR hjá sýslumanninum í Hafnarfirði, spurði hvort ekki væri leyfilegt að hafa tekjur allt að kr. 100.000 á mánuði án þess að laun frá TR skertust. Það gildir aðeins um vinnulaun, sagði fulltrúinn en taldi að skerðingin væri ekki alveg króna á móti krónu. Dæmisaga um tvo menn Nú langar mig að setja fram litla dæmisögu um tvo menn sem eru komnir með eftirlaun frá TR og hafa báðir áunnið sér sama rétt til eftir­ launa frá lífeyrissjóðum, hafa svip­ aðar heimilisaðstæður og fá því sömu greiðslu frá TR. Við getum kallað þá Jón og Pétur. Jón hefur unnið á hávaðasömum vinnustað og af þeim sökum tapað heyrn smám saman sem endar með því að hann verður að fá sér heyrnar­ tæki, en Pétur hefur sloppið við þetta sem betur fer og heldur sinni heyrn nokkuð vel. Heyrnartæki Jóns kosta kr. 400.000 en hann fær styrk frá sínu stéttarfélagi upp á kr. 100.000 sem leiðir til þess að TR telur að af þeim sökum hafi hann fengið of há eftir­ laun og hann verður að endurgreiða það sem ofgreitt hafði verið. Niðurstaðan er því sú að Pétur, sem ekki varð fyrir neinu heilsutjóni og þurfti þess vegna ekki að leggja út í neinn kostnað, hann heldur sínum eftirlaunum óskertum. Jón sem varð fyrir heilsutjóni og varð að leggja út kr. 300.000 af þeim sökum, honum var refsað með því að lækka eftirlaunin, vegna þess eins að stéttarfélagið vildi létta honum fjárútgjöldin. Mér hefur alltaf skilist að hlut­ verk Tryggingastofnunar ríkisins sé m.a. að létta undir og hjálpa því fólki sem verður fyrir heilsutjóni og fjárútlátum af þeim sökum, því lítur svona dæmi sérkennilega út. Er ekki ástæða fyrir endurskoðunarnefndina að velta fyrir sér svona dæmum? Nokkur orð um regluverk TR Helgi Arnlaugsson eldri borgari Er ekki ástæða fyrir endur- skoðunarnefndina að velta fyrir sér svona dæmum? s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 2 4 . F e B R ú A R 2 0 1 6 2 4 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 9 1 -8 C E C 1 8 9 1 -8 B B 0 1 8 9 1 -8 A 7 4 1 8 9 1 -8 9 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.