Fréttablaðið - 24.02.2016, Page 20
Þetta veltur allt á
hvernig verktaka-
geirinn og byggingabransinn
bregðast við því. Nú er hann
í fullri nýtingu. Það er
spurning hvernig hann
bregst við því að þurfa að
flytja inn vinnuafl og annað.
Konráð S.
Guðjónsson
Heimildir: Reykjavíkurborg, Fréttablaðið 20. janúar sl., greiningardeild Arion banka.
1.000
900
800
700
600
500
400
300
200
100
0
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
2014 2015 2016 2017 2018 2019
n Mat í september - Fjöldi herbergja á hbsv.
u Mat í september - Aukning hbsv. (h. ás)
n Nýtt mat - Fjöldi herbergja á hbsv.
u Nýtt mat - Aukning hbsv. (h. ás)
Fjöldi hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu
áætlað framboð
1.100 herbergi
til viðbótar
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
7
82
71
0
1/
20
16
ER ÞITT
FYRIRTÆKI
Á FLUGI?
Regluleg ferðalög á vegum
fyrirtækisins eru oft nauðsynleg.
Það getur því borgað sig að gera
fyrirtækjasamning við Icelandair.
Kauphöllin í London, London Stock
Exchange (LSE), hefur staðfest sam-
runaviðræður við þýsku kauphöll-
ina Deutsche Boerse. Hlutabréf í LSE
hækkuðu um 17 prósent eftir til-
kynninguna en hlutabréf í Deutsche
Boerse um sjö prósent.
BBC greinir frá því að bæði fyrir-
tækin myndu halda áfram að starfa
undir eigin nafni eftir sameiningu.
Þetta er í þriðja sinn sem kauphall-
irnar reyna að ná samningum. Þær
reyndu það áður árið 2000 og 2004-
2005.
Ef af sameiningu verður mun LSE
eiga 45,6 prósent í samstæðunni en
Deutsche Boerse 54,5 prósent. – sg
Stefnt að
sameiningu
Við sameiningu myndi London Stock
Exchange eiga 45,6 prósent í samstæð-
unni. FréttabLaðið/aFP
Flugfélag Íslands tekur á móti fyrstu
Bombardier Q400 flugvélinni sinni
eftir hádegi í dag. Með komu þess-
arar flugvélar er áætlað að endur-
nýjun á flugflota Flugfélagsins sé
formlega hafin.
Tilkynnt var í mars í fyrra að
Flugfélag Íslands hefði ákveðið að
taka Q400 vélarnar í rekstur í stað
Fokker 50 flugvélanna sem verið
hafa í rekstri félagsins allt frá árinu
1992. Q400 vélarnar eru stærri en
Fokker 50 og gerir Flugfélag Íslands
ráð fyrir að taka þrjár vélar í 74 sæta
útgáfu í sinn rekstur í stað þeirra
fimm Fokker 50 véla sem félagið
hefur hingað til verið með. Fimm-
tíu sæti eru í Fokkervélunum. – jhh
Fyrsta Q400
vélin kemur
Ketill Sigurjónsson, lögfræðingur
og umsjónamaður Orkubloggsins,
og Davíð Stefánsson, starfsmaður
Íslandssjóða, dótturfélags Íslands-
banka, sækjast báðir eftir einu lausu
sæti í stjórn Fáfnis Offshore á hlut-
hafafundi í dag. Sjóðurinn Akur,
sem er í rekstri Íslandssjóða, er
stærsti hluthafi Fáfnis og íslenskir
lífeyrissjóðir eru stórir hluthafar í.
Steingrímur Erlingsson, sem sagt
var upp sem forstjóra Fáfnis í des-
ember, og danska félagið Optima
A/S, boðuðu til fundarins.
„Maður var pínulítið undrandi að
frétta af því að þeir tilnefni einhvern
annan í stjórn því það er beðið um
þennan fund að beiðni Steingríms
og Optima í Danmörku sem vilja
koma inn sínum stjórnarmanni
og þau eiga næstum 25 prósent í
félaginu. Manni finnst furðulegt að
aðrir hluthafar ætli að koma í veg
fyrir það,“ segir Ketill.
Ekki þarf að kjósa nýja stjórn í
heild sinni fyrr en á aðalfundi Fáfnis
sem heimilt er að halda í síðasta
lagi í lok ágúst á þessu ári. Því geta
eigendur tæplega fjórðungs hluta-
fjár í Fáfni verið án fulltrúa í stjórn
þangað til, hljóti Ketill ekki brautar-
gengi á fundinum í dag.
DV greindi frá því í síðustu viku
að stjórn Fáfnis hygðist leggja fyrir
fundinn heimild til að breyta sam-
þykktum félagsins svo félagið geti
lagt í tæplega 200 milljóna króna
skuldabréfaútgáfu á 20 prósenta
vöxtum. Ketill segir að ráðgert sé
að kaupendur bréfanna geti breytt
þeim í hlutafé, sem numið geti
allt að 60 prósenta hlut í Fáfni. Til
saman burðar nemur hlutaféð sem
áður hefur verið í Fáfni tæpum
þremur milljörðum króna. Sam-
kvæmt heimildum Markaðarins
hafa núverandi hluthafar forkaups-
rétt til þess að skrifa sig fyrir skulda-
bréfinu í hlutfall við eign sína í Fáfni.
Þá segir Ketill einnig tillögu liggja
fyrir fundinum um að færa skipið
Fáfni Viking, sem enn er í smíðum,
inn í sérstakt félag sem yrði dóttur-
félag Fáfnis. – ih
Finnst furðulegt að hindra eigi stjórnarsetu hans í Fáfni
Ketill Sigurjónsson, frambjóðandi til stjórnar Fáfnis.
Hóteluppbygging hefur hingað til
haft lítil áhrif á íbúðabyggingu en
gæti komið til með að gera það á
næstu árum. Þetta er mat Konráðs
S. Guðjónssonar, sérfræðings hjá
greiningardeild Arion banka. Hann
heldur erindi um efnið á Fasteigna-
ráðstefnunni 2016 sem fer fram í
Hörpu á morgun.
„Það er klárlega of lítil íbúðafjár-
festing búin að vera núna undan-
farið, það er komin uppsöfnuð þörf.
Það er ýmislegt sem spilar þar inn, ég
er ekki svo viss um að það sé hótel-
uppbygging eins og hún hefur verið
nú þegar. Það hefur svo sem verið
einhver slaki á byggingamarkaðnum,
hann hefur verið að ná sér eftir efna-
hagshrunið,“ segir Konráð. „Fjöldi
annarra þátta en hóteluppbygging
spilar þar inn í og ýmsar kenningar
eru um af hverju ekki sé meiri íbúða-
fjárfesting. Hótelbygging hefur ein-
hver áhrif, hversu mikið er erfitt að
segja.“
Eins og staðan er núna varðandi
uppbyggingu hótela segir Konráð að
fólk sé of svartsýnt að telja að hótel
séu að drepa niður alla íbúðaupp-
byggingu. „Ef þú setur þessi hótelher-
bergi í samhengi við íbúðafjölda þá
er þetta ekki svo gríðarlegt miðað
við hvað þyrfti að byggja mikið af
íbúðum til að eiga við fólksfjölgun.
Bygging sjö hundruð hótelherbergja
í fyrra er eins og að byggja innan við
fimm hundruð íbúðir," segir Konráð.
„Það sem maður aðallega veltir
fyrir sér er þegar maður lítur fram á
veginn og þar er aukin uppsöfnuð
Hóteluppbygging gæti haldið
aftur af íbúðabyggingum
Ef erfitt verður að fá erlent vinnuafl gæti hóteluppbygging haldið aftur af íbúðabyggingum. Sérfræðingur
hjá greiningardeild Arion telur þó enn of snemmt að segja að íbúðauppbygging líði fyrir fjölgun hótela.
þörf fyrir íbúðir og fleiri hótel að
bætast við áætlun. Það eru hug-
myndir um að fleiri hótel bætist við
í ár en í fyrra. Þegar kominn er meiri
þrýstingur á verktakabransann þá
gæti þetta farið að hafa áhrif,“ segir
Konráð
„Þetta veltur allt á hvernig verk-
takageirinn og byggingabransinn
bregðast við því. Nú er hann í fullri
nýtingu. Það er spurning hvernig
hann bregst við því að þurfa að flytja
inn vinnuafl og annað. Ef það næst að
flytja inn vinnuafl, þá mun hótelupp-
bygging ekki hafa áhrif á byggingu
íbúða. En ef það tekst ekki þá getur
það þrýst á. Það er ekki ástæða til
svartsýni en fólk þarf að velta þessu
fyrir sér,“ segir Konráð.
Annað sem spilar inn í er hugsan-
leg mettun á hótelmarkaði. Í nýleg-
um Markaðspunktum greiningar-
deildar Arion banka kemur fram að
miðað við þá uppbyggingu sem er á
teikniborðinu, og hversu hratt bæst
hefur við áform um hótelbyggingu á
síðustu mánuðum, telur greiningar-
deildin rétt að staldra aðeins við. Enn
sé þörf fyrir fleiri hótel og gistirými,
en það sem nú sé á teikniborðinu
virðist fara langt með að fullnægja
þörf á hótelrýmum ef spá um tvær
milljónir ferðamanna innan þriggja
ára gengur eftir. saeunn@frettabladid.is
Fáfnir rekur eitt skip í dag, olíuþjónustuskipið Polarsyssel.
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r4 markaðuriNN
2
4
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
9
1
-B
4
6
C
1
8
9
1
-B
3
3
0
1
8
9
1
-B
1
F
4
1
8
9
1
-B
0
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K