Fréttablaðið - 24.02.2016, Page 24
Fólk er kynningarblað sem
býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í
blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn
efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir,
vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447,
Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage,
johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
„Við gerum þetta fyrst og fremst
af því að við elskum bjór og bjór
er menningarlegt fyrirbæri fyrir
okkur,“ segir Ólafur Ágústsson,
framkvæmdastjóri veitingastað-
arins á Kexi hosteli. „Við höfum
myndað tengsl við bruggara og
brugghús úti um allan heim og á
hátíðina til okkar að þessu sinni
koma bruggarar frá Ameríku,
frá Oregon og miðríkjunum, og
frá Danmörku og Svíþjóð. Einnig
verða þar bruggarar frá helstu ís-
lensku brugghúsunum.“
Ólafur segir gesti hátíðarinnar
fá að smakka bjór, kynnast bjór-
menningunni og upplifa hana.
Að auki fáist með henni gott inn-
legg frá erlendum aðilum inn í ís-
lenska bjórmenningu sem alltaf
sé að verða stærri og betri. „Þetta
verður sett upp þannig að alla
daga hátíðarinnar á milli klukk-
an fimm og sjö geta gestir henn-
ar mætt á svæðið, fengið fullt að-
gengi að bruggurum, smakkað
bjórinn þeirra og spjallað við þá
og fengið þannig upplýsingar frá
fyrstu hendi,“ lýsir hann.
erum að Verða betri
Hátíðin hefur vaxið ár frá ári að
sögn Ólafs. „Á fyrstu hátíðina kom
allt of mikið af fólki og þá varð
þetta svona dæmigerð drykkjuhá-
tíð og okkur fannst hvorki við né
gestir fá neitt út úr þessu. Við
breyttum því fyrirkomulaginu,
niðurnjörvuðum þetta og fórum
að rukka inn. Á hátíðunum á eftir
voru um hundrað og fimmtíu til
tvö hundruð manns á svæðinu á
sama tíma og allir fengu þá hell-
ing út úr þess, fengu andrými til
að spá og spekúlera í bæði bjór,
menningu og fólkinu og við vilj-
um halda því þannig.“
Eins og flestir hafa tekið eftir
hefur íslensk bjórmenning auk-
ist töluvert að umfangi á undan-
förnum árum, brugghúsum hefur
fjölgað og þar af leiðandi íslensk-
um bjórtegundum. „Við erum að
verða betri og betri í bjórgerðinni
þannig að óhjákvæmilega stækk-
ar þetta. Það má segja að þetta sé
óendanlegt áhugamál, möguleik-
arnir eru endalausir bæði hjá þeim
sem kjósa að vinna í kringum
þetta og þeim sem brugga sjálfir
heima hjá sér,“ segir Ólafur.
menningin er mikilVæg
Hann nefnir einnig að ef menn-
ingin í kringum þetta allt saman
væri ekki til staðar þá væri þetta
ekki skemmtilegt. „Ef þetta sner-
ist bara um það að drekka eitthvað
sem skiptir ekki máli þá værum
við ekki í þessu. Þetta er oft ákveð-
in athöfn hjá fólki og það mynd-
ast skemmtilegt samtal manna á
milli við bjórsmökkun. Fólk upp-
lifir þetta ólíkt og smekkurinn er
sem betur fer ólíkur.“
Tilraunamennskan er spenn-
andi fyrir þá sem lifa og hrær-
ast í þessum bjórheimi. „Oft koma
einhverjir skemmtilegir hlutir
úr einhverri fáránlegri tilrauna-
mennsku eða einhverju sem mis-
tókst eða átti ekki að gerast. Það
er líka skemmtilegt,“ segir Ólafur.
Á lokakvöldi hátíðarinnar á
laugardaginn verður allt lagt í
hana og þá mæta öll brugghúsin í
einu á Kex Hostel. „Þar verður ein
stór smakksamkoma. Öll brugg-
húsin koma aftur til okkar með
einn sérstakan kút af einhverjum
bjór sem er í uppáhaldi hjá þeim.
Svo verða þarna fleiri aðilar með
vín, súkkulaði og fleira. Við búum
til gott partí fyrir gesti og brugg-
ara sem geta þá haldið áfram að
tala saman um bjór,“ segir Ólafur
og hlær. Hljómsveitin FM Belfast
spilar svo fyrir gesti hátíðarinnar
um kvöldið á Kexi.
andrými
til að Spá í bjór
Hin íslenska bjórhátíð hefst í kvöld en hún hefur verið haldin árlega á Kexi
hosteli í fjögur ár. Hátíðin stendur yfir til laugardags og er haldin í tilefni
þess að þann fyrsta mars hefur bjórinn verið leyfður í 27 ár hérlendis.
„Þetta verður sett upp þannig að alla daga hátíðarinnar á milli klukkan fimm og sjö geta gestir hennar mætt á svæðið, fengið
fullt aðgengi að bruggurum, smakkað bjórinn þeirra og spjallað við þá og fengið þannig upplýsingar frá fyrstu hendi,“ segir
Ólafur Ágústsson, framkvæmdastjóri Kex. Með honum á myndinni (t.v.) er forstjórinn Kristinn Vilbergsson. MYND/ANTON BriNK
BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16
WILD FLOWER - SVEFNFLÖTUR 120X200 cm kr. 109.900
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r2 f ó l K ∙ K y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X X ∙ K y n n I n G a r b l a Ð V I Ð b U r Ð I r
2
4
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
9
1
-8
C
E
C
1
8
9
1
-8
B
B
0
1
8
9
1
-8
A
7
4
1
8
9
1
-8
9
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K