Fréttablaðið - 24.02.2016, Side 27

Fréttablaðið - 24.02.2016, Side 27
Coke Zero og aðra sykurlausa val- kosti, meðal annars kolsýrða vatns- drykki. „Þú hefur valmöguleika án kaloría.“ Carlos segir að markaðurinn með drykki með fáum eða engum kaloríum sé um 34 prósent af heildar gosdrykkjamarkaðnum. Hann segir að á síðasta ári hafi sala gosdrykkja með fáum eða engum kaloríum vaxið um 2,5 prósent en sala á venjulegum gosdrykkjum dregist saman um 4,2 prósent. Hann segir að bregðast verði við breyttum aðstæðum með aukinni nýsköpun. Hvar sérðu þig og Vífilfell fyrir þér eftir tíu ár? „Ég hét því að tryggja vöxt Vífil- fells. Það þýðir ekki að ég muni vera að eilífu á Íslandi. Ég gerði samning um að vera hérna í þrjú til fjögur ár og er núna búinn að vera í eitt ár. En ég held að það sé líka mikilvægt fyrir fyrirtækið að hafa íslenskan leið- toga til frambúðar,“ segir Carlos og bendir á að hann sé að undirbúa að það lið sem starfar undir hans stjórn geti tekið við keflinu og stýrt áfram- haldandi vexti. Carlos telur líka að fyrirtækið hafi mikið bolmagn til þess að vaxa áfram. Eiginfjárhlutfall félagsins sé 53 prósent og félagið því vel fjármagnað fyrir reksturinn. Miklar framkvæmdir standa nú yfir við höfuðstöðvar Vífilfells á Stuðlahálsi en þegar þeim lýkur mun öll starfsemi fyrirtækisins verða að nýju undir einu þaki. Starfsemi Vífilfells á þessum stað hófst árið 1973, en glerbygg- ingin sem hýst hefur skrifstofur fyrirtækisins er frá árinu 1992. Innandyra var þar áður stórt and- dyri og stórt fundarherbergi auk margra lítilla lokaðra skrifstofa á tveimur hæðum. Búið er að brjóta niður flesta veggi og koma opin vinnurými í stað skrifstofanna sem voru þar áður. Glerið hleypir inn birtu og eftir breytingarnar mun hún skína inn í flest vinnurými starfsfólks. Nýir eigendur Vífilfells töldu að tími væri kominn á endurbætur og nútímavæðingu höfuðstöðvanna, ekki síst með vellíðan starfsfólks í huga. Nemur heildarkostnaðurinn við breytingarnar um hundrað milljónum króna. Framkvæmdir fyrir á annað hundrað milljóna Tvær nýjar Tetrapak hátæknivéla- samstæður voru vígðar í verk- smiðju Vífilfells á Stuðlahálsi í síðustu viku. Í vélunum fer fram pökkun og áfylling allra safa fyrirtækisins auk pökkunar á pró- teindrykknum Hámarki. Verkefnið er stærsta fjárfestingarverkefni Vífilfells á síðustu fimm árum og í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér segir að heildarfjárfestingin sé tæplega 500 milljónir króna. Markmið eigenda fyrirtækisins er að verksmiðjan hér verði nægi- lega tæknileg og afkastamikil til að hægt verði að sækja á erlenda markaði með íslensk vörumerki eins og Trópí, Svala og Hámark. Í tilkynningunni segir að hlutfall tekna vegna útflutnings hafi vaxið hratt síðustu ár. Aðallega á bjór. Nýju vélarnar voru settar upp í lok síðasta árs og hafa verið í notkun síðustu vikurnar undir handleiðslu sérfræðinga frá The Coca-Cola Company og Tetrapak. Fjárfestu fyrir tæplega 500 milljónir króna prósent af sölunni, er bjór. Þriðja sviðið er safar og það er um átta pró- sent af sölunni. Hin fjögur svið starf- seminnar eru vatnsframleiðsla, kaffi- sala, áfengi og svo prótein drykkir með Hámarki. „Áttatíu prósent af starfseminni snúast því um þrjú svið hennar. Tekjurnar voru um 7,3 milljarðar íslenskra króna árið 2015 og þá eru ekki talin með áfengisgjöld eða annað sem við þurfum að standa skil á.“ Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta er í kringum 100 milljónir króna árið 2015 en rekstrarhagnaður (EBITDA) er í kringum 700 milljónir króna. Carlos segir að sala á innanlands- markaði á óáfengum drykkjum í versl- anir, þar sem allir framleiðendur eru meðtaldir (veitingahús ekki meðtal- in), hafi verið í kringum 28 milljónir lítra í fyrra og samdrátturinn um 0,2 prósent. Bjórsala í Vínbúðinni, fyrir alla framleiðendur, hafi verið í kring- um 15 milljónir lítra og vöxturinn um 0,6 prósent. Hann sér sóknarfæri í bjórframleiðslunni, ekki síst vegna fjölgunar ferðamanna hér á landi. Býst við vaxandi bjórframleiðslu Carlos býst við og vonar að bjór- framleiðslan muni vaxa fyrir innan- landsmarkað og að það séu líka tæki- færi til aukins útflutnings á bjór. Í fyrra  flutti Vífilfell  út 1,4 milljónir lítra. Þar af voru 1,3 milljónir lítra af Einstök. „Einstök selst gríðarlega vel í Bandaríkjunum og selst líka í Bret- landi og Danmörku. Móttökurnar eru gríðarlega góðar, ekki síst vegna þess að bjórinn er frá Íslandi,“ segir Carlos. Hann segir að þar fyrir utan sé verið að selja Víking bjór og Thule út. Hann vill skapa frekari markaðs- tækifæri fyrir þær tegundir í löndum eins og í Ástralíu og í Kína. Hvernig er að reka fyrirtæki eins og Vífilfell, sem framleiðir Coke, á tímum þar sem er þessi mikla heilsubylting? „Þetta er mikil áskorun. Ekki bara fyrir drykkjarvöruiðnaðinn heldur fyrir matvælaiðnaðinn í heild sinni,“ Einstök selst gríðar- lega vel í Bandaríkj- unum og selst líka í Bretlandi og Danmörku. Móttökurnar eru gríðarlega góðar, ekki síst vegna þess að bjórinn er frá Íslandi Carlos Cruz forstjóri Vífilfells segir Carlos. Sykurinn einn og sér sé þó ekki vandamálið. „Við erum að innbyrða fleiri kaloríur en við ættum að gera. Eða, við erum alla vega að innbyrða fleiri kaloríur en við brennum,“ segir Carlos. Lykil atriðið sé að stunda reglusamt líferni og eyða aftur kaloríunum sem eru innbyrtar. Carlos bendir á að kókdós sé 139 kaloríur en eðlilegt sé að fólk neyti um 2.000 kaloría á dag. Kókdósin sé því um sjö prósent af öllum þeim kaloríum sem fólk ætti að neyta. Hann bendir síðan líka á að sykrað kók sé ekki það eina sem boðið er upp á. Bendir hann þar á meðal á UM HV ERFISMERKI Prentgripur 141 825 Suðurhraun 1 Garðabæ Sími: 59 50 300 www.isafold.is Umbúðir • Bækur • Tímarit • Fyrir skrifstofuna • Bæklingar Fjölpóstur • Kynningarefni • Dagblöð • Stafrænt • Allskonar! Á meðan við prentum fyrir þig… Verið er að taka allt húsnæðið að Stuðlahálsi í gegn svo starfsemin í Reykjavík verði sameinuð þar til frambúðar. Markaðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . f e b R ú A R 2 0 1 6 2 4 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 9 1 -A 0 A C 1 8 9 1 -9 F 7 0 1 8 9 1 -9 E 3 4 1 8 9 1 -9 C F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.