Fréttablaðið - 24.02.2016, Qupperneq 32
Markaðurinn
Miðvikudagur 24. febrúar 2016fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Íslenska úrvalsvísitalan
1.837,40 21,45
(1,18%)
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is
Stjórnar -
maðurinn
@stjornarmadur
Íslandsbanki færði virði eigin fjár
Borgunar í reikningum sínum
upp um 5,4 milljarða króna vegna
sölu Visa Europe Ltd. til Visa Inc
sem tilkynnt var um í nóvember.
Þetta kemur fram í ársreikningi
bankans fyrir árið 2015. Salan
muni líklega koma til með að
ganga eftir á öðrum ársfjórðungi
þessa árs.
5,4
milljarða hagnaður
22.02.2016
Þetta staðfestir alveg sam-
keppnishæfni okkar. Sumir
vilja halda það að við séum að verð-
leggja okkur of hátt. En þegar staðan er
þannig að eftirspurnin er meiri en fram-
boðið þá myndu flest markaðslög-
mál segja að við værum frekar
að verðleggja okkur of lágt.
Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkjunar.
Íslandsbanki birti í gær uppgjör
sitt fyrir 2015.
Sem endranær voru það fregnir af
launakjörum stjórnenda sem mesta
athygli vöktu í fjölmiðlum og að því
er virtist sérstaklega sú staðreynd
að bankastjórinn hefði á síðasta
ári fengið ríflega sjö milljóna króna
bónus í sinn hlut. Ekki þurfti sú
nálgun sérstaklega að koma á óvart,
né viðbrögðin í athugasemdakerfum
og annars staðar sem einkenndust af
upphrópunum og mikilli hneykslan.
Stjórnarmaðurinn hefur raunar
aldrei skilið þessa miklu athygli á
launaumslagi fólks. Laun banka-
stjórnenda á Íslandi eru alls ekki há
í alþjóðlegum samanburði, og það
er erfitt að sjá að sæmileg launakjör
hafi nokkuð annað en jákvæð sam-
félagsleg áhrif.
Annað fangaði þó athygli stjórnar-
mannsins, og það var sú staðreynd
að svokölluð virðisbreyting útlána
skilaði Íslandsbanka 8,1 milljarði í
hagnað á síðasta ári. Þetta er í takti
við þróunina síðustu ár þar sem um
og yfir helmingur hagnaðar bankans
hefur komið fram undir þessum lið.
Uppgjörið í ár er þó sögulegt að
því leyti að fram kemur að endur-
skipulagningu á lánum og kröfum
sem bankinn tók yfir með miklum
afföllum sé lokið, og því ekki gert
ráð fyrir frekari jákvæðum áhrifum
á reksturinn af þessum völdum á
komandi árum.
Lán þessi og kröfur voru færð úr
gömlu bönkunum í þá nýju eftir
efnahagshrunið 2008. Samkvæmt
svari Steingríms J. Sigfússonar, fyrr-
verandi fjármálaráðherra, við fyrir-
spurn á Alþingi árið 2011, voru lán
flutt úr gamla Glitni í Íslandsbanka
með um 425 milljarða afslætti.
Eins og áður sagði nam þessi tekju-
liður átta milljörðum hjá Íslands-
banka á árinu 2015, árið áður var
hann rétt tæpir níu milljarðar og
árið 2013 um 16 milljarðar – samtals
um 32 milljarðar undanfarin þrjú ár.
Erfiðara er að nálgast sundurliðaðar
tölur lengra aftur í tímann.
Svipaða sögu er að segja af hinum
bönkunum.
Áhugavert væri þó ef fjölmiðlar
legðu sig fram um að nálgast þessar
tölur, þannig að hægt sé að greina
með nokkuð óyggjandi hætti hvers
konar forgjöf þeir kumpánar Stein-
grímur J. og Gylfi Magnússon veittu
nýju bönkunum á sínum tíma.
Ljóst er að minnsta kosti að þeir
geta andað léttar að bankarnir eru
nú aftur komnir eða á leiðinni í
ríkiseigu, enda vart verið líklegt
til vinsælda ef kröfuhafar gömlu
bankanna hefðu fengið að hlæja alla
leiðina í bankann með forgjöf þeirra
Gylfa og Steingríms í vasanum.
Forgjöfin
loksins ljós
Helgi Magnússon, stjórnarmaður í Marel, seldi 526
þúsund hluti í félaginu í gær. Í tilkynningu til Kaup-
hallar kemur fram að hann seldi á genginu 236,5 á
hlut. Samtals seldi Helgi því fyrir 124 milljónir króna.
Eftir viðskiptin á Helgi 3.779.044 hluti í félaginu.
Miðað við söluverðmæti er markaðsverð þess hlutar
tæplega 894 milljónir íslenskra króna. Uppgjör Mar-
els fyrir árið 2015 var birt þann 3. febrúar síðastlið-
inn. Þar kemur fram að hagnaður fyrirtækisins eftir
skatta nam rúmlega átta milljörðum króna.
124 milljóna króna sala á
bréfum helga
Miðasala á miði.is
O L D B E S S A S T A Ð I R
Sokkabandið kynnir
eftir Sölku Guðmundsdóttur
í leikstjórn Mörtu Nordal
Sýningar
14. febrúar – 20.30
18. febrúar – 20.30
20. febrúar – 20.30
27. febrúar – 19.00
04. mars – 20.30
„Byltingin er hafin! Til hamingju með Old Bessastaði!“ – Kristín Ómarsdóttir
„Meinfyndið og beitt leikverk...talar beint inn í okkar samtíma.“
– S.J. Fréttablaðið
„Allar vinna þær (leikkonurnar) vel úr efnivið sínum undir
smekkvísri stjórn Mörtu Nordal...“ – Þ.T. Morgunblaðið
2
4
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
9
1
-B
4
6
C
1
8
9
1
-B
3
3
0
1
8
9
1
-B
1
F
4
1
8
9
1
-B
0
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K