Fréttablaðið - 24.02.2016, Qupperneq 40
Leikhús
illska
HHHHH
Óskabörn ógæfunnar
Borgarleikhúsið
Höfundar: Óskabörn ógæfunnar,
byggt á samnefndri skáldsögu Eiríks
Arnar Norðdahl
Leikstjóri: Vignir Rafn Valþórsson
Aðstoðarleikstjóri: Pétur Ármanns
son
Leikarar: Hannes Óli Ágústsson,
Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn
Ólafur Gunnarsson
Ungliðahreyfing ógæfunnar: Andrea
Vilhjálmsdóttir, Embla Huld Þor
leifsdóttir, Fannar Arnarson, Hildur
Ýr Jónsdóttir, Jónas Alfreð Birkis
son, Telma Huld Jóhannesdóttir og
Vilhelm Þór Neto
Leikmyndahönnuður: Brynja Björns
dóttir
Sviðshreyfingar: Brogan Davidson
Búningar: Guðmundur Jörundsson
Myndvinnsla: Frosti Jón Runólfsson
Hljóðmynd: Garðar Borgþórsson
Skriðþungi mannskynssögunnar er
ofsafenginn. Nýleg rannsókn stað
hæfði að börn eftirlifenda helfarar
innar séu líklegri en annað fólk til
að berjast við þunglyndi og aðra
andlega kröm. Ástæðan er svokölluð
formaukningararfleifð sem á hvers
dagsmáli þýðir einfaldlega: Börn geta
erft áföll foreldra sinna, erfðamengið
sér til þess. Síðastliðinn fimmtu
dag var leikverkið Illska frumsýnt í
Borgarleikhúsinu, byggt á skáldsögu
Eiríks Arnar Norðdahl en textinn er
endurunninn af leikhópnum Óska
börn ógæfunnar. Ástarþríhyrningur
Agnesar, Ómars og Arnórs myndar
kjarna verksins en helförin og upp
risa hægrisinnaðra öfgahópa í Evrópu
mynda umgjörð framvindunnar.
Agnes er úr Kópavoginum, dóttir
innflytjenda frá Litháen. Ómar er frá
Selfossi en flúði í höfuðborgina eftir
voðaverk. Arnór kemur frá Ísafirði en
yfirgefur bæjarfélagið í leit að öryggi,
sem hann finnur í nasismanum. Þau
eru andlegt flóttafólk; alls staðar á
jaðrinum, finna hvergi stöðugleika
og stjórnast af örvæntingu.
Sólveig Guðmundsdóttir leikur
Agnesi, tengiliðinn í ástarþríhyrn
ingnum, og skilar gamansömu atrið
unum vel. Hún er bráðfyndin þegar
Agnes snýr ofurölvi heim og tíma
setningarnar hennar hitta í mark.
Aftur á móti dvína áhrifin í drama
tískari senum. Hinn umkomulausa
Ómar leikur Hannes Óli Ágústsson af
næmni og nákvæmni. Hann er utan
veltu í lífinu en finnur jarðsamband
með Agnesi. Hannes Óli gerir Ómar
aumkunarverðan án þess að gera
hann aumingjalegan. Nýnasistinn
Arnór, sem Sveinn Ólafur Gunnars
son leikur af kunnáttu, verður hins
vegar einum of kómískur með sínum
óteljandi kækjum og fornu máli. Af
þeim sökum verður persóna Arn
órs og hans hugmyndafræði nánast
hlægileg. Uppgangur öfgahægrisinna
í Evrópu, þar á meðal Íslandi, er ógn
vænleg staðreynd.
Ungliðar sýningarinnar missa
marks. Þótt þau framkvæmi sín verk
efni vel þá virðast þau vera frekar til
skrauts en dýpka ekki verkið, sviðs
verur sem táknmyndir frekar en mann
legar myndir. Sviðshreyfingarnar eru í
höndum Brogan Davison og gerir hún
vel en úrvinnslan er á skjön við verkið
heldur en að styðja það og styrkja.
Leikhandritið er ekki nægilega vel
unnið en höfundar ákveða að gera
söguna línulega og meitla textann
utan um aðalpersónurnar þrjár. Máls
greinar verða að einræðum og upp
lýsingar settar í eins konar skemmti
dagskrá. Gallinn er sá að persónurnar
einangrast, nánast samhengislausar
við íslenskt samfélag og brotthvarf
Ómars til meginlands Evrópu kemst
ekki til skila. Íslenskar leikgerðir
treysta ætíð of mikið á að áhorfendur
hafi lesið upphaflega skáldverkið.
Veikleikar sýningarinnar varða ekki
bara handritið heldur líka leikstjórn
og sviðsmynd. Brynja Björnsdóttir
er hæfileikaríkur sviðshönnuður en
yfirgnæfandi hvítu tröppurnar eru til
trafala. Erfitt er að finna fókuspunkt,
leikararnir verða að klöngrast upp
og niður þrepin og öll spenna á milli
persónanna fer þá fyrir lítið. Vignir
Rafn Valþórsson reiðir sig á uppbrot,
húmor og kaldhæðni frekar en leggja
áherslu á tilfinningalega þungamiðju
sögunnar. Kabarettinn svífur yfir
vötnum en er aldrei nægilega vel
útfærður á sviðinu. Hér er treyst um of
á tónlistina til að skapa andrúmsloft,
hljóðmynd sem sækir frekar í kímni
en alvöru.
Búningar Guðmundar Jörunds
sonar eru sérlega fallegir en vafamál
hvort þeir hæfi persónum verksins.
Þau eru nemar, atvinnuleysingjar og
pítsusendlar, einstaklega vel saumuð
jakkaföt og samfestingar eru ekki í
þeirra fataskáp. Háir hælar Agnesar
hamla henni alltof mikið í stiga
prílinu. Ljósahönnun Jóhanns Frið
riks Ágústssonar var aftur á móti
áhrifamikil og hún kveikti líf á sviðinu
í annars erfiðri leikmynd. En spyrja
má hvort myndvinnslu Frosta Jóns
Runólfssonar sé ofaukið, þrátt fyrir
ágæta hönnun þá bætti hún litlu við.
Þrátt fyrir fína frammistöðu leik
aranna þá týnist sú tilfinningalega
alvara sem er kjarni verksins í húmor
og látalátum. Leikstjórnin veldur því
að áhorfendur ná litlu sambandi við
persónurnar og botninn dettur úr
sýningunni eftir hlé. Sá boðskapur
sem verkinu er ætlað að flytja og
brennur á samtíma okkar fer þá fyrir
lítið. Sigríður Jónsdóttir
Niðurstaða: Þreytandi kaldhæðni
ræður ríkjum í Illsku.
Skuggi sögunnar
Leikhópurinn í Illsku, þau Hannes Óli
Ágústsson, Sólveig Guðmundsdóttir og
Sveinn Ólafur Gunnarsson.
FréttABLAðIð/PJetUr
Grafísk verk Hildar Björnsdóttur
eru til sýnis í veitingastofum Hann
esarholts að Grundarstíg 10. Sýn
ingin ber titilinn Innlit.
Hildur býr í Noregi og starfar þar
sem myndlistarmaður og mynd
listarkennari. Hún hefur haldið fjöl
margar sýningar en þetta er í fyrsta
sinn sem verk hennar koma fyrir
almenningssjónir á Íslandi. Flest
verkin á sýningunni í Hannesar
holti eiga uppruna sinn í skissum
af augnablikum, þar sem Hildur
einbeitir sér að viðfangsefninu og
teiknar upplifun sína án þess að líta
á pappírinn – með svokallaðri blind
teikningu. Hún sækir meðal annars
innblástur í íslenska náttúru og
ferðalög víðs vegar um heim verða
að litlum sögum í verkum hennar.
Hildur verður í Hannesarholti
frá klukkan 14 sunnudaginn 28.
febrúar, sýningin mun standa til
20. mars. – gun
Skissur af
augnablikum
eitt af verkum Hildar Björnsdóttur.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Hagasmári 1, 201 Kópavogur Sími : 512 8900 reginn@reginn. is
Stjórn Regins hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann
haldinn í Hörpu tónlistar – og ráðstefnuhúsi, í fundarsalnum Rímu,
Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 22. mars 2016 og hefst
stundvíslega kl. 17.00.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Tillaga um heimild til stjórnar til að hækka hlutafé félagsins
um allt að 126.600.000,- kr. að nafnvirði með breytingu á
samþykktum félagsins sem felst í eftirfarandi viðbót við 4. gr.
samþykkta félagsins:
„Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt
að 126.600.000,- kr. að nafnvirði. Lögbundinn forgangsréttur
hluthafa gildir ekki um hið nýja hlutafé. Stjórninni skal ráðstafa
hlutafjárhækkuninni sem greiðslu fyrir hlutafé í CFV 1 ehf. og
Ósvör ehf. í samræmi við kaupsamning þar að lútandi á genginu
19,0 kr. á hlut. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá
skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Framangreind heimild
stjórnar Regins hf. rennur út þann 31. desember 2016.”
2. Tillaga um eftirfarandi breytingar á 22. gr. samþykkta
félagsins:
a) Eftirfarandi setning í 2. mgr. 22. gr. falli niður:
„Náist ekki viðhlítandi niðurstaða má samþykkja nauðsynlega
breytingu með nýrri ákvörðun hluthafafundar“.
b) Ný málsgrein sem verður 3. mgr. 22. gr. bætist við og hljóði svo:
„Ef ljóst er fimm dögum fyrir aðalfund að komandi stjórn mun
ekki uppfylla skilyrði um kynjahlutföll samkvæmt 2. mgr. 22. gr.
samþykkta þessa er sitjandi stjórn heimilt að leita eftir framboðum
einstaklinga af því kyni sem hallar á. Hafi frambjóðendur af því kyni
sem hallar á ekki boðið sig fram tveimur dögum fyrir aðalfund skal
stjórn boða til framhaldsaðalfundar 3-4 vikum eftir aðalfund og
auglýsa að nýju eftir framboðum. Skal boða til framhaldsaðalfundar
svo oft sem þörf krefur til þess að ná kynjahlutfalli skv. 2. mgr.
22. gr. og skal stjórn sitja þar til slíku kynjahlutfalli er náð.“
c) Ný málsgrein sem verður 4. mgr. 22. gr. bætist við og hljóði svo:
„Náist kynjahlutföll 2. mgr. 22. gr. ekki við kosningu stjórnar á
hluthafafundi skal sá er fékk flest atkvæði af þeim sem náðu ekki
kjöri, og er af því kyni sem hallar á, taka sæti þess er fæst atkvæði
fékk af þeim sem náðu kjöri, og er af fjölmennara kyninu. Hafi slík
kynjahlutföll ekki enn náðst skal sá er fékk næstflest atkvæði af þeim
sem náðu ekki kjöri, og er af því kyni sem hallar á, taka sæti þess er
næstfæst atkvæði fékk af þeim sem náðu kjöri, og er af fjölmennara
kyninu.“
3. Önnur mál
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd.
Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal
það dagsett. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu
eftir að því hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir
setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafa-
fundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar með það
löngum fyrirvara, að unnt sé samkvæmt samþykktum þessum að taka
málið á dagskrá fundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin
til meðferðar á fundinum vísast til samþykkta félagsins sem finna má á
heimasíðu þess.
Hluthafafundurinn er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits
til þess hversu margir sækja hann skv. 2. mgr. 16. gr. sbr. 14. gr.
samþykkta félagsins.
Dagskrá og endanlegar tillögur með greinargerð ásamt öðrum gögnum
sem tillögunni kunna að fylgja munu vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félagsins í Smáralind, 3. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, þremur vikum
fyrir hluthafafundinn. Dagskrá og endanlegar tillögur verða auk þess
aðgengilegar á heimasíðu félagsins, www.reginn.is.
Kópavogur, 23. febrúar 2016.
Stjórn Regins hf.
Hluthafafundur í Reginn hf.
verður haldinn 22. mars 2016
2 4 . f e B r ú a r 2 0 1 6 M i ð V i k u D a G u r24 M e N N i N G ∙ f r É t t a B L a ð i ð
menning
2
4
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
9
1
-9
B
B
C
1
8
9
1
-9
A
8
0
1
8
9
1
-9
9
4
4
1
8
9
1
-9
8
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K