Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 41

Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 41
ÍSLENSKI JARÐVARMAKLASINN LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2015 Kynningarblað HS Orka, Efla, Orka náttúrunnar, KPMG, Mannvit, Verkís, Kadeco, Rarik og VSÓ Iceland Geothermal, sem í dag-legu tali er kallað Íslenski jarð-varmaklasinn, er nátengt iðn- aðinum og hefur að mestu leyti unnið að verkefnum sem gagnast honum, styrkja og efla nú og í nán- ustu framtíð. Að jafnaði hafa verið um 50 aðildar félagar í klasanum og er grunnstarf hans fjármagnað með aðildargjöldum. Viðar Helgason gegnir hlutverki klasastjóra en starfið snýr einkum að framþróun og styrkingu innviða íslensks jarðvarmaiðnaðar bæði innan lands og utan. Hann vinn- ur með og heyrir undir stjórn klas- ans en í henni sitja fulltrúar Arion banka, GEORGS, HS Orku, Íslands- banka, Landsbankans, Landsnets, Landsvirkjunar, Mannvits, Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands, Orkuveitu Reykjavíkur, VERKÍS og Vélaverk- stæðis Hjalta Einarssonar (VHE). „Helsta hlutverk Iceland Geo- thermal er að kynna Ísland sem land jarðvarmans enda fáum við Íslendingar 70% allrar frumorku úr jarðvarma. Þá er nærri 100% af frumorkuþörf landsins mætt með endur nýjanlegum orkugjöfum,“ segir Viðar en tilgangur klasasam- starfsins er einnig að styðja við sam- keppni innan jarðvarmaklasans, bæta nýtingu auðlindarinnar og stuðla að virðisaukandi verkefnum. Markmið samstarfsins er að sögn Viðars að skapa ný viðskipta- tækifæri innan jarðvarmageirans og byggja upp samstarf innanlands og erlendis til að selja þjónustu og þekkingu. „Stefnan er að Ísland gegni lykilhlutverki í alþjóðlegri virðiskeðju jarðvarmaiðnaðarins.“ Ávinningurinn augljós Frá upphafi hefur Iceland Geo- thermal verið hugsað sem vett- vangur til að markaðssetja íslenskan jarðvarmaiðnað undir sameiginlegu vörumerki erlendis. „Ávinningur af slíku vörumerki er augljós þar sem aðgengi að upplýsingum um orku-, ráðgjafar- og iðnfyrirtæki er allt á einum stað. Þrátt fyrir að farið hafi verið rólega af stað var þegar ljóst árið 2014 að þessi nálg- un væri að skila árangri því aðilar frá Þýskalandi, Alaska, Frakklandi, Ítalíu, Litháen, Póllandi, Indlandi, Mexíkó, Níkar agva og fleiri löndum hafa sett sig í samband við klasann til að kanna möguleika á samstarfi við íslensk fyrirtæki,“ upplýsir Viðar. Hann segir einnig mikilvægt fyrir íslenskar stofnarnir að geta vísað fyrirspurnum sem koma til þeirra til sérhæfðs iðnaðarklasa sem tryggir að erindi fái hlutlausa og málefna- lega meðferð. „Samstarf við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Íslands- stofu og aðra opinbera aðila hefur sömuleiðis reynst klasanum vel. Stjórn hans telur afar mikilvægt að eiga í góðu samstarfi við fulltrúa ríkisins og nægir í því sambandi að nefna samskipti við erlenda embættis menn sem vilja ræða um jarðvarmanýtingu við stjórnvöld og íslenskt atvinnulíf.“ Nýsköpun og aukin menntun Hlutverk klasans innanlands er annars eðlis en erlendis, meðal annars vegna þess að tryggja verð- ur að klasasamstarfið stangist ekki á við samkeppnislög. „Jarðvarma- iðnaðurinn er samheldinn og mik- ill samhugur ríkir um að þróa og styrkja innviði hans. Áhersluverk- efni klasans hafa verið tengd ný- sköpun og kemur klasinn meðal annars að viðskiptahraðli. Þá eru önnur verkefni tengd nýsköpun á landsbyggðinni í skoðun,“ upplýs- ir Viðar. Menntamál eru ekki síður mikilvæg fyrir klasann og er horft til þess að byggja upp námskeið á háskólastigi til að þjálfa verkfræð- inga og tæknifræðinga til að vinna í jarðvarmageiranum. „Það er í þessu samhengi mjög mikilvægt að styðja við og bæta ímynd iðnnáms. Við- hald og rekstur orkuvera, hitaveit- ur og iðnaðurinn sem þjónar þess- um atvinnugreinum líður nú um stundir fyrir skort á hæfum iðn- aðarmönnum, sem hefur neikvæð áhrif á samkeppnishæfni íslensks samfélags.“ Önnur verkefni klasans eins og gerð kynningarefnis og heimasíða eru að sögn Viðars í stöðugri þróun. „Að mínu mati er nauðsynlegt að Ís- lendingar geri sér grein fyrir þeirri sérstöðu sem þeir búa við þegar kemur að upphitun híbýla sinna með jarðvarma. Jarðvarmaauðlind- in er ein helsta forsenda þess að Ís- land býður upp á þau lífsgæði sem við teljum sjálfsögð. Þeir sem muna örlítið lengra aftur en aftur fyrir miðja síðustu öld átta sig á þeim verðmætum sem jarðvarminn hefur skapað íslensku samfélagi. Íslensk- ar hitaveitur og fjölþætt og sam ofin nýting jarðvarmans einkennir ís- lenskt samfélag öðru fremur.“ Ísland er land jarðvarmans Meginhlutverk Íslenska jarðvarmaklasans er að kynna Ísland sem land jarðvarmans en íslenskar hitaveitur og samofin nýting jarðvarmans eru einkennandi fyrir land og þjóð. Klasanum tilheyra að jafnaði 50 aðildarfélagar sem allir starfa nátengt iðnaðinum. Íslendingar fá 70 prósent allrar frumorku úr jarðvarma. Nærri 100 prósentum af frumorkuþörf landsins er mætt með endurnýjanlegum orkugjöfum. Að mínu mati er nauðsynlegt að Íslendingar geri sér grein fyrir þeirri sérstöðu sem þeir búa við þegar kemur að upphitun híbýla sinna með jarðvarma. Viðar Helgason
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.