Öldrun - 01.03.2002, Page 3
3ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002
20. árg. 1. tbl. 2002
EFNISYFIRLIT:
Músikþerapía fyrir Alzheimerssjúklinga
Helga Björg Svansdóttir 4
Hjúkrunarheimili framtíðarinnar
Anna Birna Jensdóttirl 13
Sjón á efri árum
Guðmundur Viggósson 17
Heilabilunareining
– þjónustukeðja fyrir aldraða með
heilabilun og aðstandendur þeirra
Hanna Lára Steinsson 21
Líknardeildin á Landakoti
Bryndís Gestsdóttir 25
Ráðstefnur 30
Minningarorð 31
Fætur aldraðra
Eygló Þorgeirsdóttir 35
•
ÚTGEFANDI:
Öldrunarfræðafélag Íslands
Pósthólf 8391, 128 Reykjavík
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Berglind Magnúsdóttir
UMSJÓN AUGLÝSINGA:
Öflun ehf. – Faxafeni 5
UMBROT OG PRENTUN:
Gutenberg
UPPLAG:
500 eintök
Tímaritið Öldrun kemur út
tvisvar á ári
STJÓRN
ÖLDRUNARFRÆÐAFÉLAGS ÍSLANDS
(frá mars 2001)
Sigríður Jónsdóttir, formaður
Marta Jónsdóttir, ritari
Ólafur Þór Gunnarsson, gjaldkeri
Berglind Magnúsdóttir, meðstjórnandi
Ella Kolbrún Kristinsdóttir, meðstjórnandi
Steinunn K. Jónsdóttir, varastjórn
Kristín Einarsdóttir, varastjórn
ISSN 1607-6060
ÖLDRUN
Frá ritnefnd
Öldrun kemur nú út tuttugasta árið í röð. Ekki hefur
blaðið alltaf verið á sama formi og nú, en mörg fyrstu
árin var það unnið á gamaldags ritvél sem er orðin
sjaldgæf sjón nú á dögum. Svo tóku prentsmiðjur við
vinnslunni á blaðinu og það kom lengi vel út í formi
fjórblöðungs þar sem allra helstu upplýsingar af
öldrunarsviðinu komu fram. Á ári aldraðra 1999 var
hins vegar ákveðið að breyta Öldrun í faglegt og
metnaðarfullt tímarit og hefur það komið út á þessu
formi upp frá því. Enn hafa ritrýnar ekki verið
notaðir en sú hugmynd hefur vissulega verið rædd.
Sama ritnefnd hefur stjórnað blaðinu frá
breytingunum 1999, en einhver mannaskipti munu
verða á vordögum sem ákveðið verður nánar um á
aðalfundi Öldrunarfræðafélagsins. Þessi ritnefnd
hefur ekki aðeins verið frjósöm varðandi tímaritið,
sem hefur fengið ákaflega góðar viðtökur, en á þessum
tíma sem liðinn er hefur allur kvenpeningur
ritnefndarinnar átt afkvæmi og Ársæll eignaðist tvö
barnabörn. Það er vonandi að slíkur afrakstur eigi
eftir að tengjast Öldrun um ókomna tíð.
Ritnefnd Öldrunar í þessari mynd þakkar fyrir sig.
Ársæll Jónsson, Jóhanna Rósa Kolbeins, Hanna Lára
Steinsson, Berglind Magnúsdóttir.