Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 10

Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 10
10 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002 15 mögulegum. Spönnin var frá 0 til 10 stig. Á öðru mati reyndist meðalgildið vera 1,2 þar sem spönnin var 0 til 2 stig. Þegar litið er á þriðja mat reyndist meðal- gildið hafa hækkað í 1,6 stig og var spönnin þar frá 0 til 6 stig ( sjá töflu nr. 3). Önnur breyta sem mig langar til að fjalla um, er til- gátan um hvort að músíkþerapía hafi áhrif á ofskynj- anir hjá Alzheimerssjúklingum. Á annarri breytu matsins sem er ofskynjanir reynd- ist meðalgildi þátttakenda í fyrsta mati vera 5,2 stig af Tafla 3. Meðalgildi og staðalfrávik á breytunni ofskynjanir. Skjólst.1 Skjólst.2 Skjólst.3 Skjólst.4 Skjólst.5 Meðalgildi Staðalfrávik Mæling 1 8 1 0 10 7 5,2 4,4 Mæling 2 0 0 2 2 2 1,2 1,1 Mæling 3 0 0 2 6 0 1,6 2,6 Skali mæligilda er frá 0-15 Tölfræðilegur munur reyndist vera (p=0,11). Miðað er við marktækan mun (p>0,05) en mark- tækur munur á þessum tveim breytum sem nefndar voru hér að ofan er samkvæmt tölfræðilegum útreikn- ingum (p = 0,12) og (p=0,11). Samkvæmt þessu virðist því ekki tölfræðilega marktækur árangur af meðferð- inni. Hins vegar þarf að hafa í huga að fjöldi mælinga (mat á hegðun á þremur tímabilum og fimm einstak- linga, þ.e. 15 mælingar) er mjög lítill og áreiðanleiki tölfræðiprófanna fremur lítill. Því þarf að túlka allar töl- fræðilegar niðurstöður með varúð. Umræður Þegar litið er á þessar niðurstöður könnunarinnar ber að hafa í huga að lagt var af stað með 8 sjúklinga og endað með 5 sem gerði það að verkum að mælingar urðu mjög fáar eða einungis 15 mælingar í allt. Það er mjög lítið og gerir það að verkum að áreiðanleiki töl- fræðiprófanna verður fremur lítill og því verður að túlka allar tölfræðilegar niðurstöður með mikilli varúð. Sá tími sem notaður var í músíkþerapíuna gat því miður ekki verið lengri en oft þarf meðferð að vara í mörg ár hjá hverjum sjúklingi. Þetta ber að hafa í huga þegar niðurstöður eru skoðaðar. Því er merkilegt að skoða nánar, að þó svo ekki reyndist tölfræðilega mark- tækur munur á hegðun sjúklinganna miðað við ofsóknar og aðrar ranghugmyndir fyrir og eftir músik- þerapíu miðað við 95% tölfræðileg skekkjumörk, er hins vegar munur miðað við 85% tölfræðileg skekkju- mörk og nálægt því að vera marktækt miðað við 90%. Segjast verður eins og er að það er ótrúlega góð breyting á sjúklingunum miðað við þennan stutta tíma sem þeir fengu í músikþerapíu. Þegar litið er á hvern einstakan sjúkling, sést að músíkþerapíumeðferðin hefur haft mjög mikil áhrif á b) Ofskynjanir 0 2 4 6 8 10 12 14 16 Skjólst. 1 Skjólst. 2 Skjólst. 3 Skjólst. 4 Skjólst. 5 Meðalgildi Gott Slæmt Mesta gildi Mæling 1 Mæling 2 Mæling 3

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.