Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 6

Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 6
6 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002 Tónlistin getur einnig virkað sem vitræn örvun, hana er hægt að nota í tengslum við líkamlegar æfingar og síðast en ekki síst getur tónlistin verið mjög áhrifa- rík til að vekja upp minningar og efla umræður hjá ein- staklingnum. (Friis, 1987) Músíkþerapíu er hægt að nota til að hugsa um og hjálpa viðkomandi í sambandi við líkamlega heilsu. Einnig er hægt að minnka virkni sjúkdómsins, hindra að viðkomandi lendi í ógöngum vegna sjúkdómsins, viðhalda stöðu viðkomandi sem einstaklings og passa upp á virðingu hans sem manneskju. Einnig er hægt að minnka og fyrirbyggja tilfinningalega og einstaklings- bundna erfiðleika sem viðkomandi getur lent í. Músíkþerapía getur hjálpað heilabiluðum einstak- lingum að ná sambandi her við annan og minnka þar með þeirra einangrun. Tónlistin getur virkað hvetjandi og örvað minni einstaklinganna í endurminningahópi. Hún getur einnig verið mikilvægur þáttur sem áhuga- mál hjá viðkomandi og tónlistarleikir geta verið not- hæfir í tengslum við líkamlegar æfingar. Tónlistin virkar afslappandi t.d. þegar að viðkomandi einstak- lingar eru órólegir, hræddir eða þunglyndir. (Bright, 1997) Það er ekki hægt að segja neitt ákveðið um það hvernig er best að vinna með heilabiluðum einstak- lingi. Það er með þennan hóp eins og aðra hópa að nauðsynlegt er að vinna mjög persónubundið með hverjum og einum einstaklingi. Hvaða þörf hefur við- komandi, hvað þarf hann að fá út úr músíkþerapíunni? Áhrif tónlistarinnar á heilabilaða einstaklinga Tónlistin er mjög margbreytileg og hefur marga þætti s.s. rytma, laglínu, hljóma, tempó og fleira sem hægt er að vinna með allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Í músíkþerapíu er það reyndar ekki ein- göngu tónlistin sjálf sem virkar heldur líka hvernig hún er notuð af músíkþerapistanum og skiptir það auð- vitað öllu máli. Þó svo að það geti haft góð áhrif að spila tónlist fyrir heilabilaða einstaklinga þá er ekki endilega nóg að setja bara tónlist í tækið og láta hana hljóma daginn út og daginn inn. Geislaspilarinn spyr ekki við- komandi einstakling spurninga og getur heldur ekki tekið á móti þeim mörgu og misjöfnu tilfinningum sem fram koma hjá viðkomandi þegar hann hlustar. Fyrir heilabilaða einstaklinga er léttara að muna gamlar minningar heldur en nýjar. Þegar tónlistin hefur svo sterka eiginleika að hún vekur upp minn- ingar hjá okkur, er það sjálfsagt í samhengi við, að tón- listin er oft hluti af okkar siðum og venjum. (Ruud, 1997) Nauðsynlegt er fyrir músíkþerapista að hafa þetta í huga þegar velja á lög fyrir skjólstæðingana. Barna- söngvar, ættjarðarsöngvar og jólalög er það sem fólk man best og það sem vekur upp flestar minningarnar og er það vegna þess að allar okkar upplifanir, sögur okkar og minningar með tónlist eru einn hluti af sjálfri tónlistarupplifuninni. Við syngjum þessa söngva ár eftir ár í tengslum við fasta viðburði í tilveru okkar t.d. jólasöngva sem við syngjum á jólum, árstíðarsöngva sem við syngjum allt árið og vögguvísur sem voru sungnar fyrir okkur þegar við vorum lítil og við sungum svo fyrir börnin okkar. Eins minnumst við heimahaga okkar þegar við syngjum ættjarðarsöngva. Tónlistin er því mikilvægur miðill til að minna okkur á tíma og staði. (Rolvsjord, 1999). Söngur er ómissandi þegar kemur að auknum lífs- gæðum fólks með heilabilun og aðstandendum þeirra. Söngurinn hvetur til aukinnar meðvitundar, kunnings- skapar, huggunar og samskipta meira en nokkuð annað. Margir geta sungið saman og er engin nauðsyn- leg þekking á tónlist nauðsynleg til að fólk geti verið með (Clair, 2000). Minningarnar streyma fram þegar við syngjum og hlustum á tónlist. Sumar eru góðar og aðrar vondar og sumar bera með sér sorg af því að þær eru því miður bara minningar, en ekki sjálfur raunveruleikinn (Rolv- sjord, 1999). Fyrir heilabilaðan einstakling eru minningarnar mjög mikilvægar vegna þess að í gegnum þær getur viðkomandi haldið fast í sjálfsvitund sína og í sitt líf. Margar minningar koma fram þegar við syngjum eða hlustum á tónlist en þessar minningar sem að tónlistin kallar fram geta verið uppspretta lífskraftsins (Rolf- sjord, 1998). Það er með tónlistina sem og svo margt annað að það er mismunandi hverju fólk heillast af. Þetta á auð- vitað jafnt við um heilabilaða einstaklinga sem og aðra. Ekki eru allir sem heillast af söngnum og sumir neita algjörlega að taka þátt í honum hafa kannski aldrei sungið fyrr á sinni lífsleið og vilja ekki taka upp á því núna. Því er mjög mikilvægt að músíkþerapían sé fjöl- breytt. Eitt af því sem mörgum finnst spennandi að gera í músíkþerapíunni er að spila á hljóðfæri. Margir eru hálf hræddir í byrjun, hræddir um að „spila vit- laust“ og hafa aldrei spilað á hljóðfæri fyrr. Þegar búið er að skýra út að það sé ekki hægt að „spila vitlaust“ í músikþerapíu freistast margir til að prófa og sjá þá að þeim gengur bara ágætlega þó svo þeir hafi aldrei spilað fyrr. Áhrif músíkþerapíu á hegðun og þung- lyndi heilabilaðra einstaklinga Þar sem músíkþerapían er tiltölulega ný fræði- grein, alla vega miðað við margar aðrar fræðigreinar er mörgum spurningum enn ósvarað. Því er mikið rann- sakað og á það líka við um músíkþerapíu með heilabil- uðum einstaklingum. Langar mig hér á eftir að minn- ast á örfáar þar að lútandi. Árið 1989 var framkvæmd rannsókn á vegum Mill- ard og Smith í Bandaríkjunum þar sem þeir athuguðu áhrif hópsöngs á félagslega hegðun Alzheimerssjúk- linga. Þeir framkvæmdu rannsóknina með 10 sjúk- lingum sem komu tvisvar í viku í fimm vikur, 30 mín. í

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.