Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 34

Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 34
35ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002 Inngangur. Fæturnir eru stoðir líkamans. Þeir eru undirstaða líkamans eins og allir vita og í öllum eðlilegum tilfellum eru það þeir sem hafa borið okkur á þá staði sem við höfum farið um og förum frá vöggu til grafar ef allt er eðlilegt. Það er ekki þar með sagt að við höfum virt fætur okkar að sama skapi, það er langt í frá. Fátækt, sparnaður, níska, forgangsröðun og ekki síst tískustraumbylgjur kynslóðanna hafa þar ráðið miklu, þeim hefur að jafnaði verið haldið ofan í lok- uðum skóm oft á tíðum þröngum, skældum, ljótum, óþægilegum daginn út og daginn inn hvort sem þeim líkaði betur eða ver. Mörg okkar, sérstaklega þeir sem eru komnir á efri ár bera glögglega merki þessarar meðferðar á fótum sínum og kemur þar inn í afleiðingar frá uppvexti eldra fólks eins og kal á fótum sem var nokkuð algengt og skófatnaður eins og kúskinnsskór sem voru hannaðir eins og eftir nýjustu tísku í dag, þröngir, þunnir og támjóir. Ef skótíska liðinna alda er skoðuð er það með ein- dæmum hvað hún hefur oftast verið támjó en ekki löguð eftir lagi fótarins, þetta hefur trúlega þótt frá örófi alda fallegra og dæmi hver fyrir sig. Fótavandamál. Orsök fótameina er mjög oft skófatnaður sem veldur óeðlilegum núningi og orsök núningsins er oft á tíðum tábeinsskekkjur vegna sina og eða liðbanda veikleika. Vörn líkamans er siggmyndun til að verja áreytta svæðið, þar sem áreytið heldur áfram snýst vörnin upp í andhverfu sína, þannig að siggmyndunin fer að þrýsta sér niður í neðri lög húðarinnar og þá oftast dýpra á einum punkti á áreytta svæðinu, þannig að það verður eins og örvaroddur af siggi sem smýgur dýpra, þetta kallast líkþorn, dauð sigghúð sem er komin niður í neðri lög húðarinnar þar sem taugaþræðir liggja, þetta veldur sársauka. Verk fótaaðgerðarfræðingsins er ma.að hreinsa þetta sigg eða líkþorn í burtu. Ef áreytið heldur áfram kemur líkþornið að sjálfsögðu aftur. Þannig að það sem verður að gera er að komast fyrir áreytið, þá með hlífðarmeðferðum, siliconmeðferðum osfv. Af þessu má sjá að líkþorn hafa ekki rót, en það er spurning sem fótaaðferðarfræðingar eru oft spurðir um. „Ertu búinn að ná rótinni“ Vörtur hafa rót, þær eru vírus og nærast á okkur, þar þarf að drepa rótina til að uppræta meinið. Sveppir er einnig algengt vandamál sem setjast ma. á fæturnar bæði í húð og neglur. Yfirleitt er auðvelt að uppræta sveppi úr húð með kremameðferð en ef sveppurinn er komin í neglur þarf á lyfjameðferð að halda sem er miklu meiri og alvar- legri meðferð. Ráðlegg ég eldra fólki að spyrjast vel um hjá læknum áður en lagt er upp í þá meðferð. Þá skiptir máli á hvaða öðrum lyfjum viðkomandi er á, hvernig áhrif þau lyf hafa á sveppameðferðina og þau saman á lifrina, fara fram lifraskoðun áður en meðferð hefst o.s.frv. Víða erlendis eru miklar kröfur gerðar á skoð- un og ástandi líkamans fyrir lyfjameðferð á sveppum og fólki kynntar aukaverkanir sem kunna myndast í meðferð. Niðurgrónar neglur, naglaþykknun, naglrótar- vandamál eru meðferðir sem koma daglega upp á borð fótaaðgerðafræðinga og eru þar til gerðar spangar- meðferðir, fræsun, o.fl. sem er til ráða. Þannig mætti lengi telja. Fætur aldraðra Eygló Þorgeirsdóttir fótaaðgerðarfræðingur

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.