Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 5

Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 5
5ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002 kennd um alla Evrópu og þykir mjög eftirsóknarvert bæði að nema, sem og að kenna við deildina. Andrúms- loft deildarinnar er alþjóðlegt þar sem kennarar og gestakennarar, ekki síður en nemendur koma víðs- vegar að úr heiminum. Um þessar mundir eru m.a. nemendur frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Austurríki, Belgíu, Þýskalandi og Ísrael sem stunda nám við deild- ina. Til að komast inn í deildina verður fólk að fara í inntökupróf og eru einungis 10 – 12 umsækjendur teknir inn ár hvert, en yfirleitt eru umsækjendur yfir 60 talsins. Hvað er músíkþerapía? Músíkþerapía er ein tegund meðferðar þar sem skipulögð notkun tóna, hljóða og hreyfinga er beitt til að hjálpa viðkomandi skjólstæðingi við að auka vellíðan eða ná fram þeim mögulega þroska og eigin- leikum sem skjólstæðingurinn býr yfir. Músíkþerapist- inn vinnur eftir mismunandi músíkþerapíufræðum og aðferðum sem hentar hverjum og einum skjólstæðingi í samræmi við sett markmið. Gert er mat á ýmsum eig- inleikum skjólstæðingsins, styrk hans og meðferðar- þörf. Út frá þessu mati eru síðan gerð markmið sem unnið er með í þerapíunni. Músíkþerapíu er hægt að nota með margskonar markhópum t.d. líkamlega og andlega fötluðum ein- staklingum, heyrnalausum einstaklingum, einstak- lingum sem eiga erfitt með mál, börn og unglingum með hegðunarvandamál eða börnum sem eiga erfitt með nám. Einnig er hægt að nota músíkþerapíu með geðfötluðum einstaklingum og síðast en ekki síst öldr- uðum einstaklingum. Með öðrum orðum má nota mús- íkþerapíu með öllum börnum og fullorðnum sem hafa sérstakar andlegar, félagslegar, vitsmunalegar eða lík- amlegar þarfir. Það sem gerir músíkþerapíu frábrugðna öðrum meðferðum er sjálf tónlistin. Í hverjum tíma upplifir skjólstæðingurinn tónlistarlega reynslu af einhverju tagi. Sem dæmi má nefna „að impróvisera“ eða að spinna en þá býr skjólstæðingurinn til tónlist án undir- búnings með því að syngja eða að spila á einhver hljóð- færi. Skjólstæðingurinn ræður algjörlega hvað hann vill spila en oft út frá fyrirfram ákveðnu þema og mús- íkþerapistinn spilar með. Skjólstæðingurinn getur líka endurskapað tónlist en það gerir hann þegar hann syngur og spilar fyrirfram tilbúna tónlist. Einnig getur skjólstæðingurinn samið tónlist en þá hjálpar músíkþerapistinn skjólstæðingnum að skrifa tónlistina niður, hvort sem er með nótum, teikna og mála, eða með einhverjum öðrum hætti sem hentar viðkomandi skjólstæðingi. Skjólstæðingurinn getur einnig hlustað á tónlist af öllu tagi en þá er mjög mikilvægt að músíkþerapistinn finni hina réttu tónlist sem hentar viðkomandi skjól- stæðingi svo að hann fái sem mest út úr þerapíunni. Það er alls ekki sama hvað er spilað og hér er gott að fá upplýsingar frá t.d. fjölskyldu skjólstæðingsins eða öðrum sem er náinn skjólstæðingnum. Það þarf enga tónlistarmenntun af neinu tagi til að geta nýtt sér músíkþerapíu. Tónlistin er alltaf sniðin að þörfum og þroska viðkomandi skjólstæðings. Margir vilja rugla saman tónlistarkennslu og mús- íkþerapíu en það er alls ekki sami hluturinn. Munurinn á tónlistarkennslu og músíkþerapíu er sá að í tónlistar- kennslu er tónlistin aðalatriðið og þar er markmiðið að kenna viðkomandi tónlist. Tónlistin virkar algjörlega eftir hæfni þess sem tekur þátt í að flytja hana. Í músíkþerapíu er það einstaklingurinn sem er aðal- atriðið. Þar skiptir máli að nota tónlistina á þann hátt að hægt sé að hjálpa viðkomandi til að ná fram t.d. mögu- legum þroska. Það getur vel verið að tónlistin hljómi vel og fagurfræðilega rétt en það er alls ekki mark- miðið. En af hverju tónlist? Jú, tónlistin skapast af þeim sem hlustar á hana. Það þýðir að fólk upplifir ekki endi- lega tónlist á sama hátt. Upplifunin er m.a. í tengslum við tíma og stað, menningu, tónlistaruppeldi og félags- legt samhengi. Tónlist er þess vegna ekki einhver fyr- irfram ákveðin framleiðsla sem passar öllum heldur lif- andi fyrirbæri sem lagar sig eftir persónuleika og sál- arástandi hlustandans, umhverfi og augnabliki. Tónlist er líka samskiptatæki sem getur haft boðskap eða inni- hald. Þessi boðskapur getur verið margbreytilegur allt eftir því hver á í hlut. Það er mikilvægt fyrir alla að fá tækifæri til að tjá sig. Þeir sem ekki geta tjáð sig með orðum geta orðið mjög einangraðir og getur það valdið mikilli vanlíðan Með tónlistin geta þeir fengið að tjá sig og tilfinningar sínar og það er síðan músíkþerapistans að lesa úr henni. (Ruud, 1997) Músíkþerapía með heilabiluðum einstaklingum Músíkþerapía getur verið mjög mikilvægur þáttur í lífi heilabilaðra einstaklinga. Meðal annars er hún mjög góð til: • að mynda samband við einstaklinginn • að hjálpa einstaklingnum að vinna gegn einmana- leika, vonleysi og aðgerðarleysi • að gefa einstaklingnum möguleika á tjáningu án orða • að skapa sálrænt og líkamlegt jafnvægi hjá einstak- lingnum • að byggja upp lífsgleði hjá einstaklingnum • að efla hæfni einstaklingsins til að velja eða gefa honum möguleika á vali • að styrkja og efla sjálfsálit og sjálfsvirðingu hjá ein- staklingnum • að efla félagslega samveru og hæfni til að vera/ starfa í félagsskap við aðra • að örva mál hjá einstaklingnum • að styrkja einbeitingu og úthald hjá einstaklingn- um

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.