Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 18

Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 18
18 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002 eða einn sjónskertur af hverjum 1.000 íbúum og eykst lítið fram að sextugu, enda fágætt að menn verði blind- ir á því aldursbili, þar sem orsakir sjónskerðingar meðal ungs fólks eru flestar meðfæddar. Eftir sextugt eykst algengið aftur á móti hratt og kemst upp í 30% í elstu aldurshópum. Ekki er síður erfitt að missa les- sjón á efri árum þegar hreyfigeta dvínar og lítið annað hægt að gera en að líta í bók. Ævikvöldið er alltaf að lengjast og því ættu menn að reyna að viðhalda lífsgæð- um eins og sjón með öllum ráðum. Aldurstengd augnbotnahrörnun Algengi augnbotnahrörnunar fer ört vaxandi með auknum aldri. Algengið er aðeins 2,4% í aldurshópnum 60-65 ára, 27% í hópnum 75-80 ára en meira en 50% hjá þeim sem komnir eru yfir áttrætt. Flestir eru á aldrinum 75-80 ára eða 70% allra, enda er sá aldurshópur einn fjöl- mennasti hópur aldraðra. Nafngiftin aldursrýrnun er til- komin vegna þessara nánu tengsla við aldur. Sjá mynd 2. lespunktinum og því beint ofan í skemmdina. Stundum er auðveldara er að greina smáatriði með því að gera sér far um að horfa framhjá því sem ætlunin er að skoða, þannig að myndin lendi utan við skemmdina. Algengast er að skarpa sjónin versni smám saman á löngum tíma uns fólk hættir að geta lesið með venju- legum lesgleraugum. Einnig er til í dæminu að sjónin versni nokkuð skyndilega vegna bjúgs eða blæðinga í lespunktinn. Til eru nefnilega tvö ólík form af sjúk- dómnum, annarsvegar svokölluð þurrarýrnun með hægfara versnun og hins vegar votarýrnun, en þá bjag- ast sjónin vegna leka frá nýæðamyndunum. Algengast er að aldursrýrnun byrji fyrst aðeins í öðru auga og geta jafnvel liðið nokkur ár þar til seinna augað gefur sig. Getur þetta skipt sköpum varðandi meðferð, sér- staklega fyrir þá sem hafa votarýrnun, þar sem með- ferð er nú loksins möguleg í sumum tilvikum hennar. Menn geta þá verið á sérstökum verði gagnvart fyrstu einkennum seinna augans, það er bjöguninni, því bestu möguleikar til meðferðar eru á byrjunarstigi sjúkdóm- urinn. Ekkert er því miður hægt að gera til lækninga eftir að ör hefur náð að myndast í lespunktinum. Það verður því aldrei of brýnt fyrir fólki að láta augnlækni skoða augu reglulega þegar aldurinn færist yfir eða breytingar verða á sjón. Meðferð Algengt er að fólk með augnbotnahrörnun spyrji hvort ekki sé hægt að bæta sjón með sérstöku matar- æði. Því miður hefur ekki verið hægt að sýna fram á það. Stórreykingarfólki er mun hættara við aldurs- hrörnun en þeim sem ekki reykja. Hófleg áfengis- neysla virðist ekki vera til skaða. Sterkt sólarljós er örugglega ekki hollt fyrir augun og því skyldi varast að horfa upp í sólina og skynsamlegt að nota vönduð sól- gleraugu og jafnvel derhúfu meðan sól er á lofti. Hing- að til hefur ekki verið unnt að beita lyfjameðferð við augnbotnahrörnun en nýlega birtist þó grein í viður- kenndu augnlæknatímariti, þar sem lýst er nokkurri gagnsemi af inntöku málmsins Zinks í stórum skömmtum. Samkvæmt rannsókninni virðist um fjórði hver sjúklingur hafa eitthvert gagn af inntöku Zinks, hvort heldur sem sjúkdómurinn er á byrjunarstigi eða lengra genginn. Á allra síðustu árum hefur komið fram sérstök lasermeðferð við votarýrnun, en hún hrjáir tæpan helming þeirra sem haldnir eru aldurshrörnun í augnbotni. Meðferðin felst í því að skemmdin er lituð með sérstökum grænum lit (Verteporfin), sem spraut- að er inn í æðakerfið og grænlituð skemmdin síðan geisluð með rauðu laserljósi, sem lokar nýæðamynd- unum og lekum nýæðum og kemur þannig í veg fyrir áframhaldandi skemmdir. Árangursríkast er að beita meðferðinni í byrjun sjúkdómsins, eða þegar vart verð- ur fyrstu breytinga á sjón, eins og bjögunar. Eru menn nú jafnvel farnir að líta á þessa tegund augnbotna- hrörnunar sem bráðasjúkdóm með tilliti til meðferðar. Meðferðin hentar því miður fremur litlum hópi eða 2,4% 27,0% 50,0% 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 60-65 ára 75-80 ára 80-85 ára 5 ára aldurshópar Mynd 2 Samband aldurs og aldursrýrnunar í augn- botnum Fyrir utan náin tengsl við aldur er reyndar fátt vitað um orsakir aldursrýrnunar. Hún heldur algengari meðal hvítra en svartra. Nánast enginn munur á al- gengi aldursrýrnunar meðal karla og kvenna. Oft spyr fólk sem haldið sjúkdómnum, hvort ekki sé skaðlegt að reyna á augun. Því er til að svara að ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að augnáreynsla skaði sjónina. Fremur má segja að æskilegt sé að viðhalda lesgetu með daglegum lestri, þótt hann valdi iðulega þreytu vegna óeðlilega stuttrar lesfjarlægðar, sem skapast af sterkum gleraugum. Það hefur og sýnt sig að þeir sem hætta lestri vegna sjónskerðingar hefja hann sjaldnast aftur síðar. Einkenni aldurstengdrar augnbotnahrörnunar Fyrsta einkenni aldursrýrnunar í lespunkti er versnandi lessjón og að fólk á í erfiðleikum með að sjá texta á sjónvarpi og þekkja andlit fólks á förnum vegi. Skýrist það af því að mynd þess sem horft er á lendir á

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.